Umsóknir félagasamtaka um styrki til velferðarráðuneytis - eyðublöð
Breytt fyrirkomulag vegna umsókna um styrki og úthlutanir
Árið 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga eins og verið hefur. Alþingi mun áfram ákvarða umfang styrkja til einstakra málaflokka en úthlutun þeirra flyst til ráðuneyta, lögbundinna sjóða, menningarráða landshluta eða annarra sem sjá um og bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum.
Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir.
Til velferðarráðuneytisins er hægt að sækja um tvenns konar styrki:
- Styrki til félagasamtaka sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
- Verkefnastyrki á sviði velferðarmála til félagasamtaka til að hrinda í framkvæmd verkefnum og aðgerðum sem falla að verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
Styrkirnir verðar veittir í samræmi við fjárheimildir sem ákveðnar eru á fjárlögum hverju sinni og reglur velferðarráðherra um úthlutanir.
Umsóknarfrestur vegna umsókna fyrir árið 2012 er runnin út.
Úthlutað er einu sinni á ári, eigi síðar en 31. janúar ár hvert.
