Hoppa yfir valmynd
22. september 2017 Matvælaráðuneytið

Morgunfundur um áhættumat HAFRÓ – miðvikudaginn 27. sept. kl. 9:00-10:15

Fiskeldismál hafa verið í brennidepli umræðunnar og miðvikudaginn 27. september mun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið halda opinn morgunfund um Áhættumat HAFRÓ vegna mögulegrar erfðablöndunar frá laxeldi sem stofnunin gaf út síðastliðið sumar.

Frummælendur:

  • Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar
  • Dr. Geir Lasse Taranger, norsku Hafrannsóknastofnuninni (Havforskningsinstituttet)
  • Bára Gunnlaugsdóttir, Stofnfiski

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra stýrir fundinum.

Staður: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Skúlagötu 4, salur á 1. hæð

Stund: Miðvikudagsmorguninn 27. september kl. 9:00 – 10:15 

(létt morgunhressing og forspjall frá kl. 8:40)

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum