Auglýsing um próf til viðurkenningar bókara
Með vísan til laga nr. 145/1994 um bókhald, er fyrirhugað að halda próf til viðurkenningar bókara 2018 sem hér segir:
- Prófhluti I: Reikningshald 11. október 2018 – prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.
- Prófhluti II: Skattskil og upplýsingatækni 20. nóvember 2018 – prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.
- Prófhluti III: Raunhæft verkefni 15. desember 2018 – prófið hefst kl. 13 og stendur til kl. 18.
Um efnissvið prófanna vísast til 3. gr. reglugerðar nr. 686/2015 um próf til viðurkenningar bókara og til prófefnislýsingar sem birt er á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins www.anr.is.
Próftökugjald fyrir hvert próf er kr. 37.500.
Próftökugjöld skal greiða í síðasta lagi á eindaga sem verður auglýstur síðar. Við skráningu skal staðfest að fullnægt sé skilyrðum 43. gr. laga nr. 145/1994 um að próftökumaður sé lögráða og hafi forræði á búi sínu (að búið hafi ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta).
Væntanlegir prófmenn skulu skrá sig til prófs á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins eða á heimasíðu framkvæmdaraðila prófanna www.promennt.is
Reykjavík, 7. ágúst 2018
Prófnefnd viðurkenndra bókara