Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2021 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Skýrsla um stöðu og þróun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða: 5,5 milljarðar á tíu árum í framkvæmdir

Innviðauppbygging við Goðafoss er dæmi um vel heppnað verkefni þar sem hugað er að öryggi og náttúruvernd með ráðgjöf fagaðila.  - mynd

Frá stofnun Framkvæmdasjóðs ferðamanna árið 2011 hefur 5,5 milljörðum króna verið úthlutað til stórra og smárra verkefna um land allt. Verkefnin snúa að náttúruvernd og öryggi, uppbyggingu ferðamannastaða og hönnunar og skipulags. Í nýrri skýrslu sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamál, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra lét taka saman kemur fram að 3,6 ma.kr. hafi verið varið til uppbyggingar ferðamannastaða, 1,6 ma.kr. til verkefna í þágu náttúruverndar og öryggis og rúmum 300 m.kr. til hönnunar og skipulags.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra: 

„Fyrir tilstilli framkvæmdasjóðsins hefur orðið sannkölluð bylting í aðstöðu og innviðum á fjölmörgum áfangastöðum, eins og allir sem ferðast um landið hafa orðið varir við. Sjóðurinn hefur tekið jákvæðum breytingum sem endurspegla breytta nálgun hins opinbera í stuðningi við innviðauppbyggingu á ferðamannastöðum. Ég tel ljóst að hann hafi enn miklu hlutverki að gegna við að stuðla að því að íslensk ferðaþjónusta sé í fremstu röð hvað varðar upplifun gesta, uppbyggingu nýrra áfangastaða, náttúruvernd og sjálfbæra nýtingu þeirra miklu verðmæta sem felast í náttúru Íslands.“

Skýrslan nær yfir tímabilið 2011 til síðustu áramóta. Í henni er farið yfir reynslu af starfi sjóðsins í takt við þróun í regluverki og breyttar aðstæður í starfsumhverfi íslenskrar ferðaþjónustu. Þrátt fyrir auknar fjárveitingar til uppbyggingar ferðamannastaða síðustu ár er enn brýn þörf fyrir meiri uppbyggingu víða um land auk þess sem uppbygging og viðhald á fjölsóttum ferðamannastöðum er og verður viðvarandi verkefni.

Framkvæmdir laða að ferðamenn og skapa verðmæti

Í skýrslunni er einnig horft til framtíðar og hvernig hægt sé að bregðast við áskorunum hraðs vaxtar, m.a. í tengslum við áfangastaði þar sem uppi eru ólíkar áherslur á meðal landeigenda og mögulegt frumkvæði annarra að undirbúningi framkvæmda. 
Styrkir eru nú eingöngu veittir sveitarfélögum og einkaaðilum og er áhersla sjóðsins að byggja upp á svæðum sem eru „kaldari“ og styðja við svæðisbundna þróun. Sveitarfélög sækja nú um styrki fyrir stærri og dýrari framkvæmdum en áður sem eru vel útfærðar og þar sem hugað er að hönnun, skipulagningu og innviðum. Slíkar framkvæmdir geta laðað að fjölda ferðamanna og þar með skapað störf og önnur verðmæti fyrir nærsamfélög. 

Skýrsluna má nálgast hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
11. Sjálfbærar borgir og samfélög

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum