Hoppa yfir valmynd
10. september 2012 Heilbrigðisráðuneytið

Drög að heilbrigðisáætlun til umsagnar

Óskað er umsagna um drög að heilbrigðisáætlun sem nú liggja fyrir. Í áætluninni er birt framtíðarsýn í heilbrigðismálum til ársins 2020, auk markmiða og aðgerða til að ná þeim árangri sem að er stefnt.

Við gerð heilbrigðisáætlunar til ársins 2020 var lögð rík áhersla á víðtækt samráð. Í þeim anda var boðað til þjóðfundar um heilbrigðismál í mars 2012 sem 220 fulltrúar tóku þátt í. Í maí, ágúst og september sama ár voru haldnir fundir með sérfræðingum og fulltrúum sveitarfélaga um tiltekna hluta áætlunarinnar. Auk þess hafa verið haldnir fjölmargir smærri fundir með leikum og lærðum. Margar góðar tillögur sem komið hafa fram á þessum fundum má sjá í nýrri heilbrigðisáætlun.

Öllum er frjálst að gera athugasemdir við drögin. Óskað er eftir að athugasemdir séu stuttar og hnitmiðaðar. Ef athugasemdir varða texta og orðalag er óskað eftir beinum tillögum að nýjum texta í stað almennra athugasemda.

Umsagnir skal senda fyrir 25. september nk. á netfangið: [email protected] og skrifa í efnislínu: „Umsögn um heilbrigðisáætlun“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum