Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2012 Heilbrigðisráðuneytið

Stefnt að langtímasamningi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um sjúkraflutninga

Staðfestur hefur verið sameiginlegur vilji velferðarráðuneytisins og stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) um að slökkviliðið sinni áfram sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu. Samstarfshópi verður falið að undirbúa grundvöll langtímasamnings um þjónustuna og er honum ætlað að skila tillögum sínum fyrir 15. desember næstkomandi.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík og formaður stjórnar SHS, lögðu í morgun fram sameiginlega tillögu um form og meginmarkmið samningaviðræðna sem stjórn SHS hefur samþykkt.

Samningur við SHS um sjúkraflutninga rann út um síðustu áramót og er ágreiningur um hve mikið þarf að hækka heildargreiðslur fyrir þjónustuna. Ánægja ríkir með þá þjónustu sem SHS hefur veitt og er sterkur vilji aðila til þess að ná samkomulagi um framhald sjúkraflutninga á vegum SHS með samningi til fimm ára að lágmarki.

Samkomulag um kostnaðarskiptingu

Stofnendur og eigendur SHS eru sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarneskaupstaður og Sveitarfélagið Álftanes. Samkomulag er um kostnaðarskiptingu sveitarfélaga og ríkisins vegna sjúkraflutninganna miðað við núverandi rekstrarfyrirkomulag.

Í samræmi við tillögu velferðarráðherra og borgarstjóra verður skipaður fjögurra manna starfshópur með tveimur fulltrúum frá hvorum samningsaðila; SHS og ríkinu, en Sjúkratryggingar Íslands fara með samningsumboðið fyrir hönd hins opinbera. Verkefni hópsins verður að gera kostnaðargreiningu og leggja fram drög að nýjum samningi fyrir 15. desember næstkomandi.

 Velferðarráðuneytið og Reykjavíkurborg
23. nóvember 2012

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum