Hoppa yfir valmynd
19. desember 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Lögfræðiráðgjöf við innflytjendur

Lagasafn
Lagasafn

Velferðarráðuneytið hefur endurnýjað samning við Mannréttindaskrifstofu Íslands um að annast lögfræðiráðgjöf við innflytjendur þeim að kostnaðarlausu. Mannréttindaskrifstofan hefur sinnt slíkri þjónustu síðastliðin tvö ár og er samningurinn endurnýjaður í ljósi góðrar reynslu af verkefninu.

Fengin reynsla sýnir að veruleg þörf er fyrir þessa þjónustu og voru á þessu ári veitt 463 viðtöl. Mest er óskað eftir ráðgjöf á sviði fjölskylduréttar, einkum vegna skilnaðar- forsjár- og umgengnismála, en ýmis önnur mál koma einnig við sögu, s.s. ráðgjöf vegna dvalar- og atvinnuleyfa, húsnæðismála, fjárhagsörðugleika og ýmis önnur mál sem varða félagsleg réttindi innflytjenda. Óski einstaklingur eftir að hafa túlk með sér í viðtalið er það honum að kostnaðarlausu.

Mannréttindaskrifstofa Íslands fær fjórar milljónir króna til verkefnisins samkvæmt samningnum og er fénu fyrst og fremst ætlað að standa straum af kostnaði vegna lögfræðiráðgjafar og túlkaþjónustu.

Lögfræðiráðgjöf Mannréttindaskrifstofu Íslands við innflytjendur er veitt í húsnæði skrifstofunnar, Túngötu 14, á miðvikudögum frá kl. 14-20 og á föstudögum frá kl. 9-14. Tekið er við tímapöntunum í síma 552-2720 eða í tölvupósti: [email protected]

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum