Málþing um margbreytileika fjölskyldugerða 17. janúar
Velferðarvaktin stendur fyrir málþingi 17. janúar næstkomandi um margbreytileika fjölskyldugerða þar sem meðal annars verður rætt hvernig börn við ólíkar aðstæður skilgreina fjölskyldur sínar og hvort opinber fjölskyldustefna taki mið af fjölbreytilegum fjölskylduformum. Skráning á málþingið fer fram á vef velferðarráðuneytisins.
Velferðarvaktin heldur málþingið í samstarfi við velferðarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Heimili og skóla, Kennarasamband Íslands og Félags stjúpfjölskyldna.
Því hefur verið haldið fram um langt árabil að fjölskyldan sé hornsteinn samfélagsins, þar stígi börnin sín fyrstu spor og þar sé grunnur lagður að framtíð þeirra. Í ljósi þessa þykir velferðarvaktinni tímabært að spyrja hvort samfélagið taki í raun mið af þeim margbreytileika sem birtist þegar fjallað er um ólíkar fjölskyldugerðir.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, flytur ávarp í upphafi málþingsins og Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra flytur ræðu við þinglok.
Staður og stund
Málþingið verður haldið í húsi menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð og stendur frá kl. 12.30 til 16.10. Aðgangseyrir er 1.800 kr. og er tekið við reiðufé og greiðslum með greiðslukorti.
Síðasti skráningardagur er 15. janúar.
Dagskrá
Tekur samfélagið mið af margbreytileika fjölskyldugerða?
Málþing á vegum Velferðarvaktarinnar Í samstarfi við velferðarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Heimili og skóla, Kennarasamband Íslands og Félag stjúpfjölskyldna
Haldið 17. janúar 2014 kl. 12.30 - 16.10 í Bratta, húsi menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Húsið opnar kl. 12 og ráðstefnan hefst kl. 12.30
Fundarstjóri Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður
12.30 Opnun málþings - Lára Björnsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar
12.40 Ávarp - Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra
12.55 Stjúpfjölskyldur, best geymda leyndarmálið - Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ritstjóri
13:15 „Á ég að teikna fjölskylduna mína?“ - Edda Guðmundsdóttir, umsjónarkennari í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði
13.35 Fjölskyldugerðir í barnaverndarmálum - Páll Ólafsson, félagsráðgjafi og sviðsstjóri ráðgjafar- og fræðslusviðs Barnaverndarstofu
13.55 Tekur fjölskyldustefna mið af margbreytileika fjölskyldna? – Guðný Björk Eydal, félagsráðgjafi og prófessor við félagsráðgjafadeild HÍ
14.15 Kaffihlé
14.45 „Það er flóknara að vera í stjúpfjölskyldu en ég átti von á“. Kynning á könnun. Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi, aðjúnkt og formaður Félags stjúpfjölskyldna
15.10 Pallborð – Næstu skref:
Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við HÍ
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði
Ketill Magnússon, formaður Heimilis og skóla
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna
15.45 Samantekt - Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ
16.00 Ráðstefnuslit – Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
Aðgangseyrir 1800 kr. Tekið er á móti greiðslum í reiðufé eða með greiðslukorti.