Hoppa yfir valmynd
14. mars 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Páll Matthíasson skipaður forstjóri Landspítala

Pál Matthíasson forstjóri Landspítala
Pál Matthíasson forstjóri Landspítala

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað Pál Matthíasson til að gegna embætti forstjóra Landspítala til næstu fimm ára. Skipunin tekur gildi 1. apríl. Lögskipuð nefnd sem mat hæfni umsækjenda taldi Pál hæfastan.

Fjórir sóttu um stöðuna sem var auglýst í lok janúar síðastliðinn. Niðurstaða hæfnisnefndar sem starfar á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu mat Pál hæfastan til að gegna embættinu, segir meðal annars í umsögn sinni að Páll eigi glæstan náms- og starfsferil og búi yfir góðri og farsælli reynslu af stjórnun, bæði erlendis og á Landspítala.

Skýr framtíðarsýn fyrir Landspítala

Páll var ráðinn í stöðu yfirlæknis á geðdeild Landspítala árið 2007 og árið 2009 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Geðsviðs sem fól í sér faglega og rekstrarlega ábyrð á starfseminni. Hann hefur átt sæti í framkvæmdastjórn Landspítala og í október 2013 var hann settur forstjóri sjúkrahússins. Í umsögn hæfnisnefndar segir um störf Páls: „Honum hefur tekist að byggja upp traust milli stjórnenda og starfsfólks. Hann býr yfir miklum samstarfshæfileikum og leiðtogastíll hans einkennist af hógværð. Færni hans í mannlegum samskiptum er mikil og stjórnunarreynsla hans farsæl. Hann vinnur náið með sínum næstráðandi. Hann hefur skýra sýn á framtíð LSH og hvað þurfi að gera til að LSH geti orði enn öflugri sem Landspítali Íslendinga. Páll Matthíasson er mjög vel hæfur til að gegna embætti forstjóra LSH.“

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir niðurstöðu hæfnisnefndarinnar afgerandi og skýra: „Ég horfi mjög til þess hvernig Páli hefur tekist að byggja upp traust milli stjórnenda og starfsfólks spítalans. Þetta traust er grundvallaratriði og forsenda þeirrar samvinnu sem verður að vera fyrir hendi til þess að gera Landspítala að enn öflugra sjúkrahúsi allra landsmanna.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum