Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2014 Forsætisráðuneytið

Ráðstefna um jafnréttismál í Þórshöfn

Fánar Norðurlanda. Ljósmynd: Johannes Jansson/norden.org
Fánar Norðurlanda. Ljósmynd: Johannes Jansson/norden.org

Dagana 27. og 28. maí mun Jafnréttisstofa, í samvinnu við velferðarráðuneytið og Norrænu ráðherranefndina standa fyrir ráðstefnu um jafnréttismál í Þórshöfn í Færeyjum. Ráðstefnan er einn af mörgum viðburðum vegna formennsku Íslands í Norræna ráðherraráðinu.

Dagana 27. og 28. maí mun Jafnréttisstofa, í samvinnu við velferðarráðuneytið og Norræna ráðherraráðið, standa að ráðstefnu um jafnréttismál í Þórshöfn, Færeyjum. Ráðstefnan er einn af mörgum viðburðum vegna formennsku Íslands í Norræna ráðherraráðinu.Á ráðstefnunni verða málstofur á fjölmörgum sviðum jafnréttismála. Ræddar verða spurningar um áhrif hlutastarfa á kynskiptan vinnumarkað, áhrif kynjajafnréttis á byggðaþróun á afskekktum svæðum, þátttöku karla í umræðu um jafnréttismál ásamt spurningum um tengsl jafnréttis og verkaskiptingu á heimili. Dagskrá verður fljótlega birt á vef Jafnréttisstofu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum