Hoppa yfir valmynd
27. maí 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra laus til umsóknar

Skjaldarmerki velferðarráðuneytisins
Skjaldarmerki velferðarráðuneytisins
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2014. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 468/2014. Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til heilbrigðisráðherra  um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til.

Við ákvörðun um úthlutun er stefna heilbrigðisráðherra í öldrunarmálum höfð til hliðsjónar.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og er umsóknarformið, ásamt nánari upplýsingum, aðgengilegt á vef velferðarráðuneytisins.

Umsóknum ber að skila í síðasta lagi 13. júní 2014.

Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum