Hoppa yfir valmynd
20. júní 2014 Forsætisráðuneytið

Jafnlaunastaðall verði öðrum Norðurlandaþjóðum fyrirmynd

Fánar Norðurlandanna
Fánar Norðurlandanna

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að fyrirtækjum geti verið mikill hagur í því að fá formlega jafnlaunavottun, enda styrki það stöðu þeirra í samkeppninni um hæfasta starfsfólkið. Í viðtali við vefritið Arbeidsliv i Norden hvetur hann atvinnurekendur annar staðar á Norðurlöndum til að taka upp jafnlaunastaðal sambærilegan þeim sem þróaður hefur verið hér á landi.

Nýjasta tölublað Arbeidsliv i Norden er tileinkað Íslandi en ritstjórn blaðsins og blaðamenn komu til landsins í tengslum við norræna ráðstefnu sem haldin var í Hörpu í tilefni 60 ára afmælis samnorræns vinnumarkaðar. Í leiðara blaðsins er vitnað í orð Christian Kastrop, framkvæmdastjóra skrifstofu stefnumótunarfræða hjá OECD sem telur eftirtektarvert hve Íslendingar hafi verið fljótir að ná sér á strik í kjölfar efnahagshrunsins. Í blaðinu er meðal annars rætt við Christian um norræna velferðarmódelið og framtíð þess. Einnig er þar fjallað um íslensku velferðarvaktina, vinnumarkaðsaðgerðir og ýmis átaksverkefni fyrir atvinnuleitendur á liðnum árum og sitthvað fleira.

Þorsteinn Víglundsson /- Mynd: Arbeidsliv i NordenÍ vefritinu Arbetsliv i Norden er fjallað um jafnréttismál og launajafnrétti kynja í viðtali við Þorstein Víglundsson framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins þar sem hann er sérstaklega spurður um innleiðingu jafnlaunastaðals og jafnlaunavottun. Sagt er frá því hvernig staðið var að þróun jafnlaunastaðalsins af hálfu velferðarráðuneytisins og aðila vinnumarkaðarins með aðkomu fleiri aðila undir handleiðslu Staðlaráðs Íslands. Í viðtalinu segir Þorsteinn augljóst að fyrirtæki hafi hag af því að geta sýnt fram á með vottun óháðs aðila að þau uppfylli skilyrði jafnlaunastaðalsins, það styrki stöðu þeirra í samkeppninni um hæfasta starfsfólkið. Þorsteinn telur líklegt að fyrirtæki muni nýta sér jafnlaunastaðalinn, sérstaklega þau stærri og telur raunhæft að meira en helmingur af 3–4.000 stærstu fyrirtækjunum muni sækjast eftir jafnlaunavottun. Hann hvetur jafnframt aðila vinnumarkaðarins annars staðar á Norðurlöndunum til þess að nýta sér þá vinnu sem fram hefur farið á Íslandi og taka upp jafnlaunastaðal sambærilegan þeim sem þróaður hefur verið hér á landi.

Reglugerð um vottun jafnlaunakerfa

Félags- og húsnæðismálaráðherra mun á næstunni setja reglugerð um vottun á jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana á grundvelli jafnlaunastaðalsins (ÍST-85:2012). Heimild til að setja slíka reglugerð var fest í lög á nýliðnu þingi þegar Alþingi samþykkti frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra til breytinga á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Með reglugerðinni verður kveðið nánar á um framkvæmd jafnlaunavottunar, þar á meðal um innleiðingu staðals um launajafnrétti og hæfniskröfur til vottunarstofa.

Aðgerðahópur um launajafnrétti mun í haust efna til hönnunarsamkeppni um sérstakt jafnlaunamerki sem fyrirtæki eða stofnanir geta auðkennt sig með hafi þær hlotið jafnlaunavottun á grundvelli staðalsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum