Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Embætti landlæknis verður auglýst samkvæmt lögum

Embætti landlæknis
Embætti landlæknis

Fimm ára skipunartími landlæknis rennur út 31. desember næstkomandi og verður embættið auglýst laust til umsóknar í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt Geir Gunnlaugssyni landlækni um ákvörðun sína en samkvæmt lögum ber að tilkynna embættismanni eigi síðar en sex mánuðum áður en skipunartími hans rennur út hvort embættið verði auglýst laust til umsóknar. Sé það ekki gert framlengist skipunartíminn sjálfkrafa um fimm ár.

Embætti landlæknis verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum frá 1. janúar 2015. Um hlutverk landlæknis er fjallað í lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum