Hoppa yfir valmynd
27. ágúst 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Skýrsla um leiðir öryrkja til að sækja rétt sinn

Alþingishúsið
Alþingishúsið

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skilað Alþingi skýrslu um leiðir öryrkja til að sækja rétt sinn innan stjórnsýslunnar. Í skýrslunni er meðal annars fjallað um kæruheimildir, málskot til dómara og kvartanir til umboðsmanns Alþingis og gefið yfirlit um réttindi sem leiða af örorkumati.

Beiðni til ráðherra um skýrslu þessa var samþykkt á Alþingi 15. maí síðastliðinn þar sem þess var óskað að félags- og húsnæðismálaráðherra flytti Alþingi skýrslu með tæmandi yfirliti yfir leiðir öryrkja til að sækja réttindi sín hjá opinberri stjórnsýslu og skyldur samfara því.

Í skýrslunni er farið yfir þær reglur sem gilda um ákvarðanatöku innan stjórnsýslunnar og hvaða reglur gilda þegar einstaklingur er ósáttur við þá niðurstöðu sem fæst í máli hans og vill leita réttar síns. Einnig er gefið yfirlit yfir þau réttindi hjá opinberri stjórnsýslu sem verða virk þegar einstaklingur fær örorkumat og hvernig eigi að nálgast þau. Eins er tilgreint hvert unnt sé að skjóta ákvörðunum um réttindi og skyldur. Loks er ítarlega fjallað um kæruleiðir í málum sem varða verkefnasvið velferðarráðuneytisins og geta varðað réttindi öryrkja með beinum eða óbeinum hætti, hvort sem um er að ræða kæru- og úrskurðarnefndir sem falla undir ráðuneytið eða ákvarðanir sem kæranlegar eru til ráðuneytis.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum