Hoppa yfir valmynd
12. september 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Ný hjúkrunareining við hjúkrunarheimilið Lund á Hellu

Skóflurnar á lofti
Skóflurnar á lofti

Heilbrigðisráðherra og sveitarstjórar Rangárþings ytra og Ásahrepps undirrituðu í gær samkomulag um viðbyggingu við hjúkrunarheimilið Lund á Hellu og tóku fyrstu skóflustungu að framkvæmdum. Með byggingunni verður tvíbýlum á heimilinu útrýmt og sköpuð vönduð aðstaða fyrir heilabilaða heimilismenn.

Í nýju byggingunni verða litlar íbúðir fyrir átta heimilismenn og er einingin hönnuð með þarfir heilabilaðra í huga. Hjúkrunarrýmum á Lundi fjölgar ekki við framkvæmdina, heldur verður aukið rými nýtt til að útrýma tvíbýlum og bæta þannig aðstæður allra íbúa heimilisins.

Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er um 238 milljónir króna og er fjármögnunin á hendi Framkvæmdasjóðs aldraðra, sveitarfélaganna tveggja sem að heimilinu standa og ríkisins.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, og Björgvin G. Sigurðsson, sveitarstjóri Ásahrepps, undirrituðu samning um framkvæmdina og tóku að því loknu fyrstu skóflustungu að byggingunni ásamt Drífu Hjartardóttur, formanni stjórnar Lundar, og Margréti Ýrr Sigurgeirsdóttur hjúkrunarforstjóra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum