Hoppa yfir valmynd
10. október 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félags- og heilbrigðismála lausir til umsóknar

Auglýsing frá velferðarráðuneyti

Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði 
félags- og heilbrigðismála lausir til umsóknar.


Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum um verkefni sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins, þ.e. á sviði félags- og heilbrigðismála. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.

Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 10. nóvember 2014. Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar 2015.

Með forsetaúrskurði nr. 72/2013, um skiptingu starfa ráðherra, er málaflokkum velferðarráðuneytisins skipt á milli heilbrigðisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra. Hvor ráðherra um sig úthlutar styrkjum í samræmi við stjórnarmálefni, eins og þau eru ákvörðuð í forsetaúrskurðum nr. 71/2013 og 72/2013.

Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum ráðherra hverju sinni. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Styrki má m.a. veita til verkefna sem felast í því að:

  1. Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi,
  2. vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna,
  3. bjóða félagsmönnum upp á stuðning og ráðgjöf.

Ekki eru veittir styrkir eingöngu til reksturs.

Styrkir á sviði félagsmála

Auk verkefna og rekstrarstyrkja eru veittir styrkir til félagasamtaka sem starfa á sviði endurhæfingar, málefna fatlaðs fólks, forvarna og fræðslu og fjölskyldu- og jafréttismála. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á verkefni er miða að því að auka jafnrétti og vinna gegn ofbeldi og afleiðingum þess.

Styrkir á sviði heilbrigðismála

Auk verkefna og rekstrarstyrkja eru veittir styrkir til félagasamtaka er starfa á sviði forvarna og fræðslu og endurhæfingar.

Mat á umsóknum

Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytisins. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á, svo sem:

  1. gildi og mikilvægi verkefnis fyrir viðkomandi málaflokk,
  2. að umsækjandi muni takast að ná þeim markmiðum sem að er stefnt,
  3. að verkefnið sé byggt á faglegum grunni,
  4. fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Minnt er á að hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)

Innskráning á mínar síður - þrjár leiðir:

  1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vef Island.is
  2. Auðkenning með Íslykli á vef Island.is
  3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð.

Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða.

Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum og þar undir velferðarráðuneyti er umsóknareyðublaðið Styrkur af safnliðum fjárlaga 2015.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um gerð umsókna á rafrænum eyðublöðum er að finna á vef ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum