Hoppa yfir valmynd
27. mars 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Árni Sverrisson, forstjóri Sólvangs, lætur af störfum.

Árni Sverrisson, forstjóri hjúkrunarheimilisins Sólvangs, lætur af störfum 31. mars nk. að eigin ósk.

Árni hóf störf á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði árið 1980 og var forstjóri sjúkrahússins frá 1985.  Árni tók einnig við stöðu forstjóra hjúkrunarheimilisins Sólvangs árið 2006 þegar þessar tvær stofnanir voru sameinaðar.

Heilbrigðisráðherra þakkar Árna vel unnin störf á löngum ferli og óskar honum alls góðs á komandi árum.

Kristján Sigurðsson hefur verið skipaður tímabundið til að gegna  stöðu forstjóra Sólvangs.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum