Hoppa yfir valmynd
27. júlí 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Ný heilsugæslustöð rís í Mývatnssveit

Fyrsta skóflustungan

Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri heilsugæslustöð í Mývatnssveit sem áætlað er að taka í notkun í febrúar á næsta ári. Núverandi heilsugæsla er rekin í gömlu íbúðarhúsi sem hentar illa starfseminni. Trésmiðjan Rein ehf. sem byggir húsnæðið átti lægsta tilboð í verkið, tæpar 96 milljónir króna.

Áform um byggingu heilsugæslustöðvar í Mývatnssveit eiga sér langa sögu, en til þessa hefur gamla íbúðarhúsið að Helluhrauni 17 í Reykjahlíð verið látið duga með lítilsháttar lagfæringum sem gerðar hafa verið á síðari árum. Í apríl 2014 lauk Framkvæmdasýsla ríkisins frumathugun á mögulegum kostum til að bæta úr húsnæðismálum heilsugæslunnar. Niðurstaðan var sú að skynsamlegast væri að byggja, fremur en að ráðst í framkvæmdir við núverandi húsnæði, þar sem gagngerar endurbætur myndu ekki nægja til að sníða af því ýmsa vankanta.

Sérstaða vegna mikils fjölda ferðamanna

Heilsugæslan í Mývatnssveit þjónar grunnheilsugæslu í um 400 manna byggðarlagi. Íbúafjöldinn segir þó lítið um notkun þjónustunnar þar sem ferðamannastraumur á svæðinu er mikill og sívaxandi allan ársins hring. Fjöldinn er þó langmestur á sumrin, eða um 5.000 ferðamenn dag hvern, samkvæmt tölum frá árinu 2013 og skapar þessi mikli fjöldi ferðamanna ákveðna sérstöðu varðandi þjónustu heilsugæslustöðvarinnar.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Dagbjört Sigríður Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur tóku fyrstu skóflustunguna að nýju heilsugæslustöðinni sem mun rísa við hlið sveitarstjórnarskrifstofu Skútustaðahrepps að Hlíðavegi í Reykjahlíð. Húsið er timburhús og verður um 240 fermetrar að stærð, með um 30 fermetra opnu bílskýli. Arkitekt er Björn Kristleifsson.

„Örugg og góð heilbrigðisþjónusta er einn af hornsteinum hvers byggðarlags og því er augljóst að tímamótin hér í dag eru mikilvæg fyrir alla íbúa sveitarfélagsins – og auðvitað líka þá fjölmörgu ferðamenn sem hingað koma, þurfi þeir á heilbrigðisþjónustu að halda“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra við athöfnina í dag: „Þetta verður mikil bót fyrir notendur þjónustunnar og stórbætir aðstöðu starfsfólksins sem ekki er vanþörf á.“

Heilsugæslan í Mývatnssveit er hluti af Heilbrigðisstofnun Norðurlands sem varð til við sameiningu heilbrigðisstofnana 1. október 2014. Starfssvæði hennar nær frá Blönduósi austur á Þórshöfn og starfsstöðvarnar eru 18. Forstjóri stofnunarinnar er Jón Helgi Björnsson.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum