Hoppa yfir valmynd
2. september 2015 Heilbrigðisráðuneytið

Samningur um fullnaðarhönnun meðferðarkjarna nýs Landspítala

Frá hægri: Grímur M. Jónasson, Páll Matthíasson, Kristján Þór Júlíusson og Dagur B. Eggertsson
Frá hægri: Grímur M. Jónasson, Páll Matthíasson, Kristján Þór Júlíusson og Dagur B. Eggertsson

Heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, skrifaði í dag undir samning við Corpus hópinn um fullnaðarhönnun á meðferðarkjarna vegna byggingar nýs Landspítala við Hringbraut.

Samningurinn er milli Nýs Landspítala ohf. og Corpus hópsins sem var lægstbjóðandi í verkið í útboði sem fram fór síðastliðið sumar í samræmi við fjárlög ársins 2015 og lög um skipan opinberra framkvæmda.

Samninginn undirrituðu Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Grímur M. Jónasson frá VSÓ ráðgjöf fyrir hönd Corpus hópsins.

Meðal viðstaddra voru Dagur B. Eggertsson, borgarstjórinn í Reykjavík, og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, og vottuðu þeir samninginn.

Ákvæði samningsins snýr að fullnaðarhönnun meðferðarkjarna nýs Landspítala. Hönnunin mun byggja á forhönnun verksins sem þegar er lokið. Einnig hafa allar skipulagsáætlanir verið samþykktar vegna verkefnisins, þ.e.svæðaskipulag, aðalskipulag og deiliskipulag lóðarinnar við Hringbraut.

Áætluð heildarstærð meðferðarkjarnans er um 58.500 m². Byggingin mun verða á 6 hæðum neðan götu, 5 hæðum ofan götu auk kjallara. Mun byggingin rísa á lóð Landspítala við Hringbraut. Meðferðarkjarninn mun tengjast öðrum byggingum á Landspítalalóðinni.

Fjögur fyrirtæki standa að Corpus hópnum, þ.e. Basalt arkitektar, Hornsteinar arkitektar, Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar og VSÓ ráðgjöf.

Í þessari viku mun Nýr Landspítali bjóða út verkframkvæmd á sjúkrahóteli.  Áætlað er að hefja framkvæmdir þar í byrjun nóvember og mun það rísa á Hringbrautarlóðinni norðan kvennadeildar Landspítalans.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum