Hoppa yfir valmynd
28. október 2015 Heilbrigðisráðuneytið

Átak til að stytta bið eftir þjónustu hjá Þroska- og hegðunarstöðinni

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auka fjárveitingar til Þroska- og hegðunarstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (ÞHS) til að stytta bið eftir þjónustu. Gert er ráð fyrir að með átaksverkefni á þessu og næsta ári megi veita allt að 200 fleiri börnum þjónustu en ella.

Tilvísunum barna til ÞHS hefur fjölgað verulega ár frá ári, en þangað er vísað börnum til greiningar og meðferðar s.s. vegna ofvirkni og athyglisbrests, röskunar á einhverfurófi, hegðunarvanda, kvíða og  depurðar. Árið 2013 voru tilvísanir til stöðvarinnar 405, árið 2014 voru þær 456 og á þessu ári stefnir í að þær verði yfir 500. Biðlistar hafa því lengst jafnt og þétt síðustu misserin og bíða nú hátt í fjögur hundruð börn sem fengið hafa tilvísun eftir þjónustu og meðferð.

Velferðarráðuneytið hefur frá því í sumar haft til skoðunar mögulegar leiðir til að stytta bið eftir þjónustu Þroska- og hegðunarstöðvarinnar í samráði við stofnunina. Niðurstaðan er annars vegar sú að veita aukið fé í átaksverkefni sem gerir stofnuninni kleift að veita um 200 fleiri börnum þjónustu en ella væri mögulegt til loka næsta árs. Hins vegar verður settur á fót vinnuhópur til að að skoða í víðu samhengi stöðu þeirrar þjónustu sem veitt er á Þroska- og hegðunarstöðinni, í samvinnu við þá aðila sem málið varðar og er stefnt að því að ljúka þeirri vinnu fyrir lok næsta árs.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum