Hoppa yfir valmynd
19. ágúst 2016 Forsætisráðuneytið

Fjölmiðlaviðurkenning Jafnréttisráðs 2016

Jafnréttisráð
Jafnréttisráð

Jafnréttisráð óskar eftir tilnefningum til fjölmiðlaviðurkenningar Jafnréttisráðs.

Í ár mun Jafnréttisráð, ásamt ráðherra jafnréttismála, veita sérstaka fjölmiðlaviðurkenningu aðilum sem hafa skarað fram úr þegar kemur að umfjöllun um mál sem tengjast jafnrétti kynjanna á liðnu ári.

Viðurkenningu getur hlotið:

  • Fjölmiðill sem skarað hefur fram úr á sviði jafnréttismála, svo sem hvað varðar efnistök, umfjöllun og miðlun efnis.
  • Þáttur, þáttaraðir, greinar eða annað afmarkað efni þar sem jafnrétti er sérstakt viðfangsefni eða leiðarstef.
  • Einstaklingur sem með störfum sínum á fjölmiðli hefur unnið sérstaklega að jafnréttismálum.

Tilnefningar skulu vera rökstuddar. Til að koma til álita við veitingu viðurkenningarinnar þarf viðkomandi aðili að vera tilbúinn að veita frekari upplýsingar.

Tilnefningum skal skila eigi síðar en 20. september 2016 á rafrænu formi á netfangið [email protected]

(Með fjölmiðli er átt við stofnun eða fyrirtæki, lögaðila, sem safnar, metur og setur fram upplýsingar í því skyni að dreifa þeim reglulega til umtalsverðs fjölda fólks á tilteknu svæði (Menntamálaráðuneytið, apríl 2005).

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum