Eldri fréttir FEL

Breyting á vöxtum, hámarkslánum og skuldabréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs - 31.12.2003

Félagsmálaráðherra hefur ákveðið nokkrar breytingar á húsnæðislánakerfinu m.a. í ljósi þeirra áforma sem boðuð hafa verið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Fjallað var um málið á fundi ríkisstjórnar í morgun.

Lesa meira
 

Aukaframlag að upphæð 400 m.kr. til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - 22.12.2003

Aukaframlag að upphæð 400 m.kr. til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Lesa meira
 

Verkefnisstjórn vegna atvinnuleysis einstakra hópa - 16.12.2003

Félagsmálaráðherra og Vinnumálastofnun hafa ákveðið að setja af stað sérstakt átak varðandi langtímaatvinnuleysi og atvinnuleysi ungs fólks.

Lesa meira
 

Samstarfssamningur við Háskóla Íslands um fötlunarfræði - 15.12.2003

Þriðjudaginn 2. desember undirrituðu rektor Háskóla Íslands og félagsmálaráðherra samstarfssamning sem felur í sér að stofnað verður starf lektors í fötlunarfræðum. Lesa meira
 

Netútgáfur um húsnæðismál - 14.12.2003

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út á netinu skýrslu samráðsnefndar um húsaleigubætur 2002 og fréttabréf um húsaleigubætur.

Lesa meira
 

Íslendingur varaforseti nefndar Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum - 12.12.2003

Séra Baldur Kristjánsson var á síðasta ári tilnefndur af íslenskum stjórnvöldum í nefnd Evrópuráðsins sem fjallar um aðgerðir gegn kynþáttafordómum. Lesa meira
 

Tillaga að úthlutun framlaga vegna nýbúafræðslu á árinu 2004 - 10.12.2003

Á fundi ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 5 desember sl. samþykkti nefndin að leggja til að fyrsta tillaga að úthlutun framlaga vegna nýbúafræðslu á árinu 2004 næmi allt að 55.800.000 kr. Lesa meira
 

Tillaga að úthlutun stofnframlaga vegna framkvæmda í sveitarfélögum - 10.12.2003

Á fundi ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 5 desember sl. samþykkti nefndin að leggja til að fyrsta tillaga að úthlutun stofnframlaga á árinu 2004 á grundvelli 10. gr. reglugerðar nr. 113/2003 næmi allt að 228.457.000 kr. Lesa meira
 

Úthlutun stofnframlaga vegna framkvæmda við grunnskóla á árinu 2004 - 10.12.2003

Á fundi ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 5. desember sl. samþykkt nefndin að leggja til að fyrsta tillaga að úthlutun stofnframlaga á árinu 2004 næmi allt að 232.038.000 kr. Lesa meira
 

Áætlun um úthlutun framlaga vegna lækkaðra fasteignaskattstekna á árinu 2004 - 10.12.2003

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum 5. desember sl. áætlun um úthlutun framlaga vegna lækkaðra fasteignaskattstekna á árinu 2004. Lesa meira
 

Móttaka í tilefni flutnings SMFR - 3.12.2003

Föstudaginn 28. nóvember buðu félagsmálaráðuneytið og Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Reykjanesi starfsmönnum og velunnurum SMFR til móttöku í nýtt skrifstofuhúsnæði. Lesa meira
 

Málþing rektors Háskóla Íslands varðandi Evrópuár fatlaðra 2003 - 2.12.2003

Ávarp félagsmálaráðherra, Árna Magnússonar, á málþingi rektors Háskóla Íslands sem haldið var í samstarfi við félagsmálaráðuneytið 2. desember 2003. Lesa meira
 

Fréttatilkynning - 28.11.2003

Vegna fullyrðinga Guðjóns Rúnarssonar, framkvæmdastjóra Sambands banka og verðbréfafyrirtækja í fjölmiðlum um skort á samráði við undirbúning tillagna um það stefnumið ríkisstjórnar að koma á 90% húsnæðislánum vill félagsmálaráðuneytið upplýsa eftirfarandi. Lesa meira
 

Íbúðalánasjóður veiti 90% almenn íbúðalán - 27.11.2003

Hækkun lánshlutfalls almennra íbúðalána í 90% af verði hóflegrar íbúðar mun verða framkvæmd innan vébanda Íbúðalánasjóðs. Þetta er niðurstaða samráðs félagsmálaráðherra, forsætisráðherra, utanríkisráðherra og fjármálaráðherra sem kynnt hefur verið í ríkisstjórn. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra veitti styrki úr styrkjasjóði Evrópuárs fatlaðra - 26.11.2003

Félagsmálaráðherra veitti styrki til verkefna úr nýsköpunar- og styrkjasjóði Evrópuárs fatlaðra á Listasafni Reykjavíkur í gær. Lesa meira
 

Vaxandi klámvæðing áhyggjuefni - 21.11.2003

Vaxandi klámvæðing í samfélaginu var meðal annars til umfjöllunar á fundi norrænna jafnréttisráðherra í Stokkhólmi miðvikudaginn 19. nóvember síðastliðinn. Lesa meira
 

Breyting á reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga - 12.11.2003

Reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga nr. 374/2001 hefur verið breytt með reglugerð nr. 829/2003. Lesa meira
 

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur flutt í nýtt húsnæði - 5.11.2003

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði á Hverfisgötu 6, 2. hæð, 101 Reykjavík. Lánasýsla ríkisins flutti úr húsnæðinu fyrir allnokkru í Höfðaborg og var það endurgert að ýmsu leyti. Lesa meira
 

Sjálfsbjargarkrakkar í heimsókn - 31.10.2003

Í sumar heimsótti Árni Magnússon félagsmálaráðherra Lesa meira
 

Fötlunarfræði - nýjar íslenskar rannsóknir - 31.10.2003

Árni Magnússon félagsmálaráðherra veitti fyrsta eintaki bókarinnar Fötlunarfræði viðtöku úr höndum ritstjóra bókarinnar Rannveigu Traustadóttur í Norræna húsinu 17. október sl.

Lesa meira
 

Skýrsla um undanþágu elli- og örorkulífeyrisþega frá fasteignaskatti - 31.10.2003

Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út skýrslu um niðurstöður könnunar sem það stóð fyrir á vormánuðum um beitingu sveitarfélaga á heimildarákvæði um tekjustofna sveitarfélaga. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra heimsækir virkjunarsvæðið við Kárahnjúka - 15.10.2003

Árni Magnússon félagsmálaráðherra skoðaði vinnusvæði og aðbúnað stafsmanna við Kárahnjúka í heimsókn sinni þangað þann 11. október sl. Lesa meira
 

Nýtt álit í sveitarstjórnarmálum - 15.10.2003

Tilnefning fulltrúa á aðalfund einkahlutafélags, skylt að vísa máli til bæjarstjórnar vegna ágreinings í bæjarráði. Lesa meira
 

Formannsskipti hjá varasjóði húsnæðismála - 15.10.2003

Nýr formaður hefur tekið við störfum yfir ráðgjafarnefnd varasjóðs húsnæðismála. Lesa meira
 

Hlutfall framlags sveitarfélaga til tryggingar viðbótarlánum lækkað - 15.10.2003

Félagsmálaráðherra hefur gert breytingu á reglugerð um varasjóð húsnæðismála. Með breytingunni er hlutfall framlags sveitarfélaga til tryggingar viðbótarlánum lækkað úr 5% af veittum viðbótarlánum í 4%. Lesa meira
 

Ný könnun á sviði húsnæðismála - 9.10.2003

Félagsmálaráðherra kynnti í dag nýja spurningakönnun á sviði húsnæðismála sem Gallup vann fyrir félagsmálaráðuneytið. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 8.10.2003

Niðurgreiðsla málsverða í grunnskólum, jafnræðisregla. Lesa meira
 

Staðfest heiti sameinaðs sveitarfélags - 7.10.2003

Félagsmálaráðuneytið hefur staðfest heiti sameinaðs sveitarfélags sem varð til við sameiningu Búðahrepps og Stöðvarhrepps. Lesa meira
 

Skipanir í embætti - 6.10.2003

Félagsmálaráðherra hefur skipað í embætti ríkissáttasemjara og framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Lesa meira
 

Vinnumálaráðherrar OECD ríkja funda - 3.10.2003

Árni Magnússon félagsmálaráðherra sat í vikunni fund vinnumálaráðherra OECD ríkjanna. Lesa meira
 

Fundur um byggingarframkvæmdir á Austurlandi - 1.10.2003

Félagsmálaráðherra hélt fund með sveitarfélögum og framkvæmdaaðilum á Austurlandi fimmtudaginn 25. september síðastliðinn. Á fundinum var fjallað um áætlanir um íbúðabyggingar á Austurlandi á næstu árum. Lesa meira
 

Nýtt álit í sveitarstjórnarmálum - 30.9.2003

Samningur um byggingu miðbæjarkjarna, skylda til að afla sérfræðiálits skv. 2. mgr. 65. gr. sveitarstjórnarlaga. Lesa meira
 

Fundur vinnumálaráðherra - 24.9.2003

Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, tók þátt í fundi norrænna vinnumálaráðherra dagana 22. og 23. september sl. Lesa meira
 

Yfirlýsing frá ráðherrafundi Norrænu ráðherranefndarinnar - 24.9.2003

Átta ráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna gáfu út yfirlýsingu um sameiginlega stefnumótun í baráttunni gegn fíkniefnum. Yfirlýsingin kom í kjölfar fundar ráðherra frá átta löndum í norðanverðri Evrópu sem haldinn var í Lundi í Svíþjóð 24. september 2003 á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Lesa meira
 

List án landamæra - 24.9.2003

Árni Magnússon félagsmálaráðherra var viðstaddur opnun listasýningar á Kjarvalstöðum 18. september. Lesa meira
 

Sveitarstjórnarkosningar í Búða- og Stöðvarhreppi - 23.9.2003

Kosið var til sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Búða- og Stöðvarhrepps 20. september sl. Lesa meira
 

Heimsókn félagsmálaráðherra til Brussel - 19.9.2003

Árni Magnússon félagsmálaráðherra kynnti sér málefni EFTA og ESB í heimsókn sinni til Brussel. Lesa meira
 

Evrópsk samgönguvika 2003 - 12.9.2003

Dagana 16. til 22. september tekur Reykjavíkurborg þátt í Evrópsku samgönguvikunni. Meginþema vikunnar að þessu sinni verður aðgengi fyrir alla í tengslum við Evrópuár fatlaðra. Lesa meira
 

Embætti ríkissáttasemjari - 12.9.2003

Umsóknir um embætti ríkissáttasemjara. Lesa meira
 

Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu - 12.9.2003

Umsóknir um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Lesa meira
 

Nýir þjónustusamningar hjá Ráðgjafarstofu - 11.9.2003

Framkvæmdastjórn Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna ákvað í lok síðasta árs að kanna vilja og áhuga fleiri sveitarfélaga en koma að gildandi samkomulagi. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 10.9.2003

Ráðning slökkviliðs- og aðstoðarslökkviliðsstjóra við Slökkvilið Akureyrar. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 5.9.2003

Innheimta gjalds fyrir sölu á byggingarrétti við endurúthlutun lóðar, frávísun. Lesa meira
 

Nýr forstöðumaður hjá Ráðgjafarstofu - 5.9.2003

Ásta S. Helgadóttir hefur verið ráðinn forstöðumaður á Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Lesa meira
 

Nýjar reglur Ábyrgðasjóðs launa - 3.9.2003

Nýjar Reglur um greiðslur Ábyrgðasjóðs launa á innheimtukostnaði vegna krafna sem njóta ábyrgðar sjóðsins. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 25.8.2003

Heimild til afsláttar af fasteignaskatti skv. 4. mgr. 5. gr. tekjustofnalaga, tenging við tekjur maka. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 25.8.2003

Frávísun, uppsögn á samningi um rekstur leikskóla. Lesa meira
 

Rannsóknarsetur í húsnæðismálum á Bifröst - 25.8.2003

Árni Magnússon félagsmálaráðherra, Guðmundur Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs og Runólfur Ágústsson rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst undirrita samkomulag um stofnun Rannsóknarseturs í húsnæðismálum. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra heimsækir Barnaverndarstofu og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins - 25.8.2003

Félagsmálaráðherra heimsótti síðastliðinn miðvikudag Barnaverndarstofu í húsnæði hennar við Borgartún 21 í Reykjavík og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins við Digranesveg 5 í Kópavogi. Lesa meira
 

Átak í sameiningarmálum sveitarfélaga - 19.8.2003

Í dag héldu félagsmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga sameiginlegan fund með fréttamönnum um átak í sameiningarmálum sveitarfélaga á kjörtímabilinu. Lesa meira
 

Nýtt Jafnréttisráð - 15.8.2003

Félagsmálaráðherra hefur skipað nýtt Jafnréttisráð. Lesa meira
 

Fréttatilkynning - 12.8.2003

Ráðherra hefur ákveðið að setja Ingibjörgu Broddadóttur, deildarstjóra í félagsmálaráðuneytinu, tímabundið í stöðu framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu frá og með deginum í dag. Lesa meira
 

Nýtt álit í sveitarstjórnarmálum - 5.8.2003

Hlutverk stjórnar og forstöðumanns náttúrustofu og staða þeirra gagnvart sveitarstjórn. Lesa meira
 

Þjónustustofnanir fyrir fatlaða - 5.8.2003

Félagsmálaráðherra heimsótti síðastliðinn fimmtudag Sjálfsbjargarhúsið við Hátún 12 og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi við Digranesveg 5 í Kópavogi. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 1.8.2003

Kosning varamanna í bæjarráð Vestmannaeyjabæjar. Lesa meira
 

Ný álit í sveitarstjórnarmálum - 31.7.2003

Synjun sveitarfélags um greiðslu kostnaðar vegna tónlistarnáms á framhaldsskólastigi; vísað frá ráðuneytinu kæru v/ágreining um ályktunarhæfi fundar í stjórn ÞV. Lesa meira
 

Fréttatilkynning - 23.7.2003

Félagsmálaráðherra hefur í dag samþykkt sameiginlega yfirlýsingu ásamt jafnréttisráðherrum Svíþjóðar, Noregs, Finnlands og Eystrasaltslandanna. Lesa meira
 

Fjölskylduskemmtun að Holti - 22.7.2003

Þann 20. júlí sl. stóð Svæðisskrifstofa Vesturlands fyrir fjölskylduskemmtun að Holti. Lesa meira
 

Fréttatilkynning - 21.7.2003

Félagsmálaráðherra og framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, Valgerður H. Bjarnadóttir, hafa orðið sammála um að hún láti af störfum. Lesa meira
 

Nýtt álit í sveitarstjórnarmálum - 16.7.2003

Endurupptaka, tveir sveitarstjórnarmenn vanhæfir við afgreiðslu máls. Lesa meira
 

Rafræn könnun um húsaleigubætur - 15.7.2003

Félagsmálaráðuneytið hefur hafið sína árlegu könnun varðandi húsaleigubætur. Sú könnun sem nú á sér stað markar tímamót því framkvæmdin fer nú fram í fyrsta skipti með rafrænum hætti. Lesa meira
 

Fréttatilkynning - 11.7.2003

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hefur komist að niðurstöðu í máli er varðar rétt foreldra sem hafa tekið fæðingarorlof til greiðslna í orlofi. Lesa meira
 

Sendiherra Svíþjóðar heimsækir ráðuneytið - 10.7.2003

Í dag tók Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, á móti Bertil Jobeus, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi. Lesa meira
 

Nýtt álit í sveitarstjórnarmálum - 10.7.2003

Heimildir sveitarfélaga til að ábyrgjast lántöku hitaveitu í þeirra eigu. Lesa meira
 

Torfastaðir sóttir heim - 9.7.2003

Þann 4. júlí sl. heimsótti Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, meðferðarheimilið á Torfastöðum. Lesa meira
 

Atvinnumál kvenna - 7.7.2003

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna árið 2003. Lesa meira
 

Nýtt álit í sveitarstjórnarmálum - 7.7.2003

Meint vanhæfi formanns bæjarráðs vegna hjúskapartengsla við sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs sveitarfélagsins. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 4.7.2003

Beiting heimildar skv. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995, öryrkja synjað um afslátt á fasteignaskatti. Lesa meira
 

Sameining sveitarfélaga - 4.7.2003

Félagsmálaráðuneytið staðfesti þann 2. júlí sl. sameiningu tveggja sveitarfélaga í umdæmi sýslumannsins á Eskifirði. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 25.6.2003

Málsmeðferð við fyrirhugaða sölu á hitaveitu, um skyldu sveitarstjórnarmanna og framkvæmdastjóra til að mæta á opinn fund um málið. Lesa meira
 

Nýtt álit í sveitarstjórnarmálum - 24.6.2003

Um skyldu sveitarfélags til að endurgreiða gatnagerðargjald ef hús er fjarlægt af lóð. Lesa meira
 

Nýtt álit í sveitarstjórnarmálum - 20.6.2003

Hæfi skoðunarmanna sem sæti áttu í fráfarandi sveitarstjórn, skylda til að kjósa varamenn skoðunarmanna. Lesa meira
 

Nýtt álit í sveitarstjórnarmálum - 18.6.2003

Heimildir sveitarfélaga til að semja um gjaldfrest á lögveðskröfum. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 18.6.2003

Breytingar á skipulagi heimanaksturs grunnskólanemenda úr dreifbýli, jafnræðisregla. Lesa meira
 

Nýskipuð úrskurðarnefnd félagsþjónustu - 16.6.2003

Í maí sl. skipaði félagsmálaráðherra að nýju úrskurðarnefnd félagsþjónustu. Lesa meira
 

Fréttatilkynning - 13.6.2003

Endurskoðun á lögum um húsnæðismál, nefnd um leigumarkað og könnun á húsnæðismarkaði. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 10.6.2003

Skylda bæjarstjórnarfulltrúa til að undirrita ársreikning. Lesa meira
 

Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra - 30.5.2003

Sigurjón Örn Þórsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Árna Magnússonar, félagsmálaráðherra. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum - 26.5.2003

Málsmeðferð við úthlutun byggingarlóða, jafnræði, rannsóknar- og leiðbeiningarskylda, meðalhóf. Lesa meira
 

Leiðbeiningar um reglur sveitarfélaganna um fjárhagsaðstoð - 26.5.2003

Félagsmálaráðuneytið hefur í samvinnu við Samtök félagsmálastjóra á Íslandi og Samband íslenskra sveitarfélaga samið leiðbeiningar um reglur sveitarfélaganna um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum. Lesa meira
 

Ársfundur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna - 23.5.2003

Ársfundur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var haldinn í dag á Grand Hótel í Reykjavík. Ný ársskýrsla Ráðgjafarstofu fyrir árið 2002 var kynnt en þar kemur m.a. fram að árið 2002 sé metár í sögu Ráðgjafarstofunnar. Heildarfjöldi afgreiddra umsókna var 835 eða 25% fleiri en árið á undan. Lesa meira
 

Breyting á reglugerð um húsbréf og húsbréfaviðskipti - 14.5.2003

Félagsmálaráðherra hefur breytt reglugerð um húsbréf og húsbréfaviðskipti, nr. 157/2001, með síðari breytingum. Með reglugerðarbreytingunni er m.a. gildandi heimild til veðlánaflutninga rýmkuð. Lesa meira
 

Breyting á reglugerð um lánaflokka Íbúðalánasjóðs - 14.5.2003

Félagsmálaráðherra hefur breytt reglugerð um lánaflokka Íbúðalánasjóðs nr. 458/1999, með síðari breytingum. Gengur breytingin út á það að afnema heimild leigusala til að selja leigjanda afnotarétt í almennum leiguíbúðum og þeim leiguíbúðum sem falla undir sérstaka átakið til fjölgunar leiguíbúðum. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 2.5.2003

Álagning gatnagerðargjalds án þess að sveitarfélag komi að gerð götu, eignarhald og viðhald götu. Lesa meira
 

Norræn barnaverndarráðstefna - 2.5.2003

Dagana 28. - 31 ágúst nk. verður haldin norræn barnaverndarráðstefna í Reykjavík. Á ráðstefnunni verða fluttir fjölmargir fyrirlestrar, málstofur og boðið upp á heimsóknir á ólíkar stofnanir sem sinna málefnum barna. Lesa meira
 

Ísland kosið í kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna - 30.4.2003

Ísland var hinn 29. apríl 2003 kosið í nefnd Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um stöðu kvenna (Commission on the Status of Women). Kosningar fóru fram á fundi í Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) í New York. Lesa meira
 

Álit reikningsskila- og upplýsinganefndar - 28.4.2003

Reikningsskila- og upplýsinganefnd hefur skilað umbeðnu áliti til félagsmálaráðuneytis um meðhöndlun stofnframlaga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga vegna þeirra framkvæmda sem fjármagnaðar eru samkvæmt samningum um einkaframkvæmd. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 25.4.2003

Nýjustu úrskurðir og álit í sveitarstjórnarmálum. Lesa meira
 

Rekstur félagslegra leiguíbúða sveitarfélaga - 25.4.2003

Samband íslenskra sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytið gengust fyrir ráðstefnu föstudaginn 4. apríl sl. um rekstur félagslegra leiguíbúða sveitarfélaga. Markmið hennar var að miðla reynslu og þekkingu á rekstri leiguíbúða sveitarfélaga. Á ráðstefnunni var fjallað um reynslu Félagsbústaða hf. og Félagsþjónustunnar í Reykjavík í þeim efnum á undanförnum árum. Lesa meira
 

Breyting á nafni sveitarfélags - 23.4.2003

Hinn 7. apríl sl. staðfesti ráðuneytið breytingu á heiti Grindavíkurkaupstaðar. Nefnist sveitarfélagið framvegis Grindavíkurbær. Lesa meira
 

Samningur um gerð fjölskylduvogar - 22.4.2003

Samningur félagsmálaráðuneytis, fjölskylduráðs og Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri um hönnun og þróun mælitækis fyrir vísitölu fjölskyldumála var undirritaður í dag. Lesa meira
 

Evrópuár fatlaðra 2003 - 5.4.2003

Í dag opnaði félagsmálaráðherra nýtt vefsvæði sem tileinkað er Evrópuári fatlaðra 2003. Lesa meira
 

Morgunverðarfundur vegna Evrópuárs fatlaðra 2003 - 4.4.2003

Laugardaginn 5. apríl nk. stendur félagsmálaráðuneytið fyrir morgunverðarfundi þar sem málefni fatlaðra á árinu verða til umræðu. Fundurinn verður haldin á Grand Hótel Reykjavík. Lesa meira
 

Ný lög um húsnæðissamvinnufélög - 4.4.2003

Þann 15. mars sl. samþykkti Alþingi frumvarp félagsmálaráðherra til nýrra heildarlaga um húsnæðissamvinnufélög sem koma í stað laga um húsnæðissamvinnufélög, nr. 161/1998. Lögin taka gildi 1. júlí 2003. Lesa meira
 

Breyting á sveitarstjórnarlögum - 3.4.2003

Nýlega var samþykkt á Alþingi frumvarp til laga sem félagsmálaráðherra lagði fram um breytingar á sveitarstjórnarlögum. Lögin öðlast þegar gildi. Lesa meira
 

Ný heildarlög um Ábyrgðarsjóð launa - 28.3.2003

Við lok Alþingis var samþykkt frumvarp félagsmálaráðherra til nýrra heildarlaga um Ábyrgðasjóð launa. Lesa meira
 

Ráðstefna um nýja stjórnunarhætti hjá ESB - 28.3.2003

Föstudaginn 4. apríl nk. standa utanríkisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir ráðstefnu á Nordica hóteli um nýja stjórnunarhætti hjá ESB og áhrif þeirra á sveitarstjórnarstigið. Lesa meira
 

Fyrstu sameiningarkosningar á þessu kjörtímabili - 28.3.2003

Samstarfsnefnd um sameiningu Búðahrepps og Stöðvarhrepps hefur ákveðið að leggja til að íbúar þessara sveitarfélaga greiði atkvæði um sameiningu þeirra í eitt sveitarfélag. Lesa meira
 

Koma flóttamanna frá fyrrum Júgóslavíu - 21.3.2003

Mánudaginn 24. mars eru væntanlegir til landsins 24 flóttamenn frá fyrrum Júgóslavíu. Um er að ræða 6 fjölskyldur sem koma frá Belgrad. Lesa meira
 

Ráðstefna um rekstur félagslegra leiguíbúða sveitarfélaga - 19.3.2003

Föstudaginn 4. apríl nk. efna Samband íslenskra sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytið til ráðstefnu um rekstur félagslegra leiguíbúða sveitarfélaga. Ráðstefnan verður haldin á Nordica Hotel (áður Hótel Esja) og hefst hún kl. 9.00 Lesa meira
 

Lokaskýrsla um reynslusveitarfélög - 17.3.2003

Félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi lokaskýrslu verkefnisstjórnar reynslusveitarfélaga. Einnig er komin út lokaskýrsla PwC ásamt samantekt á helstu niðurstöðum. Lesa meira
 

Framkvæmd við móttöku flóttamanna til Akureyrar - 12.3.2003

Félagsmálaráðuneytið, Rauði kross Íslands og Akureyrarkaupstaður munu verða í nánu samstarfi vegna móttöku þeirra 24 flóttamanna sem koma til landsins 24. mars næstkomandi. Lesa meira
 

Undirritun samnings vegna móttöku flóttamanna - 12.3.2003

Í dag verður undirritaður samningur milli félagsmálaráðuneytis og Akureyrarkaupstaðar vegna móttöku flóttamanna. Af því tilefni verður boðað til blaðamannafundar í félagsmálaráðuneyti kl. 10:30. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 7.3.2003

Afgreiðsla þriggja ára áætlunar, áhrif þess að farið er fram yfir tímafrest skv. 63. gr. sveitarstjórnarlaga. Lesa meira
 

Átak gegn verslun með konur - kvikmyndasýning - 6.3.2003

Fyrirhugað var að sýna sænsku kvikmyndina Lilya 4-ever 27. febrúar sl. í tengslum við ráðstefnuna vegna átaks gegn verslun með konur sem haldin var á Grand Hótel 28. febrúar sl. Lesa meira
 

Ný reglugerð um meðferð krafna Íbúðalánasjóðs sem glatað hafa veðtryggingu - 3.3.2003

Félagsmálaráðherra hefur sett nýja reglugerð um meðferð krafna Íbúðalánasjóðs sem glatað hafa veðtryggingu, nr. 119/2003. Lesa meira
 

Reglugerðir varðandi húsaleigubætur - 3.3.2003

Félagsmálaráðherra hefur sett tvær nýjar reglugerðir. Það er annars vegar reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna húsaleigubóta, nr. 122/2003, og hins vegar reglugerð um húsaleigubætur, nr. 118/2003. Reglugerðir þessar hafa tekið gildi. Lesa meira
 

Nýtt frumvarp til laga um Ábyrgðasjóð launa - 28.2.2003

Félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til nýrra heildarlaga um Ábyrgðasjóð launa. Núgildandi lög um sjóðinn, nr. 53/1993, eru tíu ára gömul og hefur endurskoðun þeirra staðið yfir um nokkurt skeið. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 28.2.2003

Auglýsing nýrrar stöðu starfsmanns eignaumsjónar, skilyrði um samþykki sveitarstjórnar. Lesa meira
 

Fréttabréf 1. tbl. 2003 - 28.2.2003

Meðal efnis: Átak gegn verslun með konur, ný tilskipun á sviði vinnumála, átak í málefnum fatlaðra o. fl.

Lesa meira
 

Fréttatilkynning um viðbrögð við atvinnuleysi - 24.2.2003

Atvinnuleysi hefur í vetur aukist mun hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Nýboðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Reykjavíkurborgar og stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi munu á næstu árum kalla eftir miklu vinnuafli. Lesa meira
 

Nýtt frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum - 24.2.2003

Félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi nýtt frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 45/1998. Lesa meira
 

Tilkynningarskylda heilbrigðisstarfsfólks til barnaverndarnefnda - 21.2.2003

Nýjar verklagsreglur um tilkynningarskyldu heilbrigðisstarfsfólks til barnaverndarnefnda hafa verið birtar. Verklagsreglurnar eru unnar í samstarfi Barnaverndarstofu, Barnaverndar Reykjavíkur og starfsfólks Landspítala háskólasjúkrahúss. Lesa meira
 

Samstarfsnefnd um veitingu atvinnuleyfa útlendinga - 20.2.2003

Með nýjum lögum nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga, sem tóku gildi um síðustu áramót, urðu breytingar á lögskipuðu samráði félagsmálaráðuneytisins við helstu samtök á vinnumarkaði um framkvæmd laga um atvinnuréttindi. Lesa meira
 

Nefnd um aðgerðir gegn ofbeldi gagnvart konum - 19.2.2003

Félagsmálaráðherra hefur skipað samráðsnefnd um aðgerðir gegn ofbeldi gagnvart konum. Lesa meira
 

Átak gegn verslun með konur - ráðstefna - 17.2.2003

Ráðstefna verður haldin um verkefnið Átak gegn verslun með konur dagana 27.-28. febrúar nk. Upplýsingar um verkefnið og dagskrá ráðstefnunnar. Lesa meira
 

Nýr úrskurður í sveitarstjórnarmálum - 14.2.2003

Heimildir sveitarstjórna til að ákveða seturétt áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda, jafnræði fulltrúa meirihluta og minnihluta. Lesa meira
 

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins - 14.2.2003

Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna fjallaði um skýrslu Íslands um framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins fyrir 28. janúar sl. Sendinefnd á vegum íslenskra stjórnvalda var við skýrsluvörnina. Niðurstaða eftirlitsnefndarinnar, dags. 31. janúar sl., hefur verið birt. Lesa meira
 

Fjárhæð framlags sveitarfélaga vegna orlofs húsmæðra - 13.2.2003

Félagsmálaráðuneytið auglýsir fjárhæð framlags sveitarfélaga samkvæmt lögum um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, fyrir árið 2003. Lesa meira
 

Breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga - 12.2.2003

Félagsmálaráðherra, Páll Pétursson, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002. Lesa meira
 

Endurskoðun laga um vatnsveitur sveitarfélaga - 12.2.2003

Félagsmálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi á Alþingi um breytingu á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, með síðari breytingum. Lesa meira
 

Þrjár reglugerðir er varða jafnréttismál - 7.2.2003

Settar hafa verið þrjár reglugerðir með stoð í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000. Lesa meira
 

Tvö frumvörp á Alþingi - 6.2.2003

Félagsmálaráðherra mælti fyrir tveimur frumvörpum á Alþingi í dag. Lesa meira
 

Úrskurðir og álit - 17.1.2003

Heimildir til að skuldbinda Reykjavíkurborg vegna ábyrgða Landsvirkjunar. Lesa meira
 

Skýrari réttur námsmanna við töku fæðingarorlofs - 7.1.2003

Breyting á reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks tók gildi 1. janúar sl. Með þeirri breytingu var réttur þeirra sem uppfylla skilyrði þess að fá greiðslu sem námsmenn í fæðingarorlofi bættur. Lesa meira
 

Uppreiknuð tekju- og eignamörk - 6.1.2003

Tekju- og eignamörk viðbótarlána samkvæmt reglugerð um viðbótarlán nr. 783/1998, sbr. reglugerð nr. 395/2001, og félagslegra leiguíbúða samkvæmt reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001, hafa verið uppreiknuð. Lesa meira
 

Nýsamþykkt lög um tekjustofna sveitarfélaga og húsnæðismál - 2.1.2003

Alþingi samþykkti fyrir jól tvenn lög ráðuneytisins um tekjustofna sveitarfélaga og um húsnæðismál og hafa þau bæði tekið gildi. Lesa meira
 

Breyting á lögum um húsaleigubætur - 2.1.2003

Ný lög nr. 168/2002 um breytingu á lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997, með síðari breytingum, hafa tekið gildi.

Lesa meira
 

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica