Beint í leiðarkerfi vefsins.
Komið er út 3. tölublað 2004 af vefriti Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur.
Lesa meiraÁ fundi ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 10. desember sl. samþykkti nefndin eftirfarandi áætlanir framlaga fyrir árið 2005.
Lesa meiraFélagsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra jafnréttis- og vinnumálaskrifstofu.
Lesa meiraVísað er til fyrstu tillagna nefndar um sameiningu sveitarfélaga frá 30. september 2004 þar sem gerðar eru tillögur um fækkun og eflingu sveitarfélaga um allt land. Þar kemur fram að umsagnarfrestur sveitarstjórna og íbúa um tillögurnar sé til 1. desember 2004. Í bréfi sem fylgir tillögunum er óskað eftir því að allar sveitarstjórnir taki tillögurnar til athugunar og umræðu og að ályktanir þeirra verði sendar nefndinni ásamt rökstuddri greinargerð.
Í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og félagsmálaráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar.
Þann 8. október sl. var Hæfingarstöð fyrir fatlaða formlega tekin í notkun á Ísafirði. Einnig fengu fyrrum íbúar í Bræðratungu afhenta lykla að íbúðum sínum að Sindragötu 4 á Ísafirði.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra hefur gefið út reglugerð nr. 798/2004 um hækkun hámarkslána Íbúðalánasjóðs. Samkvæmt reglugerðinni hækka hámarkslán vegna kaupa á notuðum íbúðum úr 9,2 milljónum króna og vegna nýbygginga úr 9,7 milljónum króna í 11,5 milljónir króna.
Lesa meiraKomin er niðurstaða í útreikning á framlögum til sveitarfélaga á grundvelli reglugerðar nr. 80/2001 með síðari breytingum um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti.
Lesa meiraTvennar sameiningarkosningar munu fara fram laugardaginn 20. nóvember nk. og er utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þeirra þegar hafin.
Lesa meiraRáðherranefnd norrænna vinnumálaráðherra kom saman til fundar undir forsæti Árna Magnússonar félagsmálaráðherra á Egilsstöðum í gær.
Lesa meiraRitaðar hafa verið leiðbeiningar til sveitarfélaga um húsaleigubætur og teknar hafa verið saman niðurstöður um könnun á framkvæmd húsaleigubóta sem gerð var meðal sveitarfélaga.
Lesa meiraStöðluðu eyðublaði fyrir húsaleigusamninga hefur verið breytt þannig að nú er í lið 2, lýsing á leiguhúsnæði, að finna reit fyrir fastanúmer eignar.
Lesa meiraDagana 10. og 11. ágúst funduðu fulltrúar heilbrigðisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og dómsmálaráðuneytis um fíkniefnamál í blíðskaparverði á Ísafirði.
Lesa meiraUmsóknarfrestur um embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins rann út 10. ágúst sl. og voru umsækjendur sjö.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra staðfesti nýlega breytingar á tveimur reglugerðum er varða Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Lesa meiraFélagsmálaráðuneytið staðfesti þann 20. júlí sl. sameiningu Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar.
Lesa meiraNefnd sem félagsmálaráðherra skipaði til að meta framkvæmd laga og reglugerða um viðbótarlán hefur lokið störfum. Nefndin hefur skilað af sér skýrslu með sameiginlegum niðurstöðum og tillögum.
Lesa meiraAlþjóðavinnumálaþingið var háð að venju í Genf dagana 1.–17. júní 2004. Eitt af höfuðmálefnum þingsins var öryggi og aðbúnaður sjómanna um borð í fiskiskipum.
Lesa meiraAlþingi samþykkti í sl. viku frumvarp félagsmálanefndar Alþingis um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Lögin fela í sér að gildistími bráðabirgðaákvæðis IV við lögin er framlengdur um eitt ár.
Lesa meiraVantraust á varaoddvita, skipti á fulltrúum í nefndum, fundarstjórn.
Lesa meiraBeiting sveitarfélags á heimild 4. mgr. 5. gr. tekjustofnalaga, tekjur yfir viðmiðunarfjárhæð.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra hefur sett reglugerð um breytingu á reglugerð um húsbréf og húsbréfaviðskipti. Breytingin varðar lán vegna endurbóta og byggingu eða kaupa á viðauka.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra hélt samráðsfund um málefni heimilislausra, þann 3. maí sl., með fulltrúum félagsþjónustunnar í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Á fundinn komu einnig fulltrúar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og lögreglunnar í Reykjavík.
Lesa meiraAtkvæðagreiðsla um sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Héraði fer fram 26. júní nk.
Lesa meiraFélagsmálaráðuneytið hefur staðfest breytingu á mörkum Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss, í samræmi við samkomulag sem sveitarstjórnir þessara sveitarfélaga gerðu með sér 29. mars sl. Samkomulagið felur í sér að Hveragerðisbær stækkar um tæpa 80 hektara.
Nú liggur fyrir ensk þýðing á 9. útgáfu bæklings um húsaleigubætur.
Lesa meiraHeimildir sveitarfélaga til að segja sig úr héraðsnefnd; niðurlagning stöðu forstöðumanns, valdbærni, skipulagsbreytingar og úthlutun byggingarlóða, tilkynning ákvörðunar sem háð er staðfestingu nefndar
Lesa meiraNefnd skipuð til að endurskoða lög um atvinnuleysistryggingar og lög um vinnumarkaðsaðgerðir.
Lesa meiraVegna formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni hefur Ísland umsjón með heimasíðu um jafnréttismál.
Lesa meiraEyðublað fyrir húsaleigu um íbúðarhúsnæði hefur verið þýtt yfir á pólsku.
Lesa meiraRíkisstjórnin hefur að tillögu félagsmálaráðherra samþykkt að lagt verður fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til nýrra heildarlaga um vatnsveitur sveitarfélaga, sem er ætlað að koma í stað gildandi laga um sama efni, nr. 81/1991, með síðari breytingum.
Lesa meiraHeimildir sveitarfélaga til að ábyrgjast lán til einkahlutafélags í þeirra eigu og heimildir sveitarfélaga til að veita afslátt af fasteignaskatti o.fl.
Lesa meira