Beint í leiðarkerfi vefsins.
Tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða hafa verið uppreiknuð miðað við árlega hækkun neysluverðsvísitölu 1. janúar.
Lesa meiraMagnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um að hækka framlög til sveitarfélaganna um tæplega 930 milljónir króna fyrir árið 2006.
Lesa meiraFramkvæmdastjórn ESB hefur sent frá sér grænbók um vinnulöggjöf sem er upphaf á samráðsferli um frekari þróun á reglum sambandsins hvað snertir vinnumarkaðinn. Frestur til að skila athugasemdum er til 31. mars 2007.
Lesa meiraMagnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur ákveðið að endurskipa samráðsnefnd sem samdi aðgerðaáætlunina vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis gegn börnum. Helsta verkefni endurskipaðrar nefndar verður að fylgja aðgerðaáætluninni eftir í framkvæmd og að halda stjórnvöldum við efnið þannig að fjárveitingar sem hún byggist á séu tryggðar hverju sinni. Ráðherra tilkynnti þetta í ávarpi á kynningarfundi í tengslum við 16 daga átak Mannréttindaskrifstofunnar gegn kynbundnu ofbeldi.
Lesa meiraÍ tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi kynnir Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra aðgerðaáætlun stjórnvalda vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis sem tekur til áranna 2006 til 2011. Kynningin fer fram í Hringborðssal Þjóðmenningarhússins miðvikudaginn 6. desember kl. 14.
Lesa meiraVerkefnisstjórn 50+ boðar til síðasta fundar af þremur um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli, Hvammi, þann 7. desember næstkomandi kl. 8.30–10.00.
Lesa meiraGrein Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra í Morgunblaðinu á alþjóðadegi fatlaðra 3. desember.
Lesa meiraMagnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur svarað fyrirspurn Gunnars Örlygssonar alþingismanns um réttindi foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur svarað fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns um bætta þjónustu og uppbyggingu fyrir fatlaða.
Lesa meiraMagnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi á Alþingi um upplýsinga- og samráðsskyldu fyrirtækja gagnvart starfsmönnum þeirra.
Lesa meiraNý alþjóðasamþykkt um vinnuskilyrði farmanna sem birt er í skýrslu félagsmálaráðherra um Alþjóðavinnumálaþing í Genf hefur að geyma ákvæði um lágmarksréttindi að því er varðar aldur farmanna, vinnutíma, hvíldartíma, aðbúnað, fæði, vistarverur og hollustuhætti um borð í skipum öðrum en fiskiskipum.
Lesa meiraHreppapólitík, landsbyggðarpólitík, höfuðborgarpólitík. Breytingin frá einsleitu til alþjóðlegs samfélags. Hinir nýju Íslendingar. Landfræðilegt litróf fasteignamarkaðarsins. Allt eru þetta áleitin málefni sem tekin verða fyrir á ráðstefnunni „Borgin gegn landinu – keppendur eða samherjar?“ á Nordica Hotel föstudaginn 17. nóvember 2006 kl. 13.15–15.15.
Lesa meiraMagnús Stefánsson félagsmálaráðherra heimsótti Stígamót í dag, 10. nóvember, á Hverfisgötu 115 í Reykjavík og fræddist um baráttuna, afleiðingar kynferðisofbeldis, árangur af sjálfshjálparstarfi samtakanna og hugmyndir um starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins.
Lesa meiraAtvinnuleysið í október mælist 1% eða sama og í september sl. Atvinnuleysið var hins vegar 1,4% í október í fyrra.
Lesa meiraRíkisstjórnin hefur að tillögu menntamálaráðherra, dómsmálaráðherra og félagsmálaráðherra ákveðið að stórauka fjárveitingar til íslenskukennslu fyrir útlendinga.
Lesa meiraSunnudaginn 12. nóvember 2006 verður sérstakur dagur tileinkaður feðrum á Íslandi í fyrsta skipti. Íslendingar fylgja þar með fordæmi landa víða um heim. Fjallað verður um feður í samfélagi nútímans og mikla þátttöku feðra á Íslandi í fæðingarorlofi á ráðstefnu sem haldin verður á Nordica Hótel í tilefni dagsins.
Lesa meiraÁvarp Magnúsar Stefánssonar, félagsmálaráðherra, á málþingi um launajafnrétti (“Launajafnrétti ... árið 2588”) haldið í Háskólanum á Bifröst 3. nóvember 2006.
Lesa meiraÞann 1. nóvember sl. undirrituðu félagsmálaráðuneytið og Alþjóðahús samning um verkefnið „Velkomin til Íslands. Upplýsingar fyrir útlendinga sem flytjast til Íslands“ í formi bæklings.
Lesa meiraÞór Jónsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi félagsmálaráðuneytisins.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra og Rannsóknarsetur í vinnurétti og jafnréttismálum við Háskólann á Bifröst efna til málþings um launajafnréttismál næstkomandi föstudag 3. nóvember.
Lesa meiraÁvarp Magnúsar Stefánssonar, félagsmálaráðherra, á ársfundi Alþýðusambands Íslands Nordica hotel fimmtudaginn, 26. október 2006.
Lesa meiraJafnréttisviðurkenning Jafnréttisráðs verður afhent á Grand Hóteli, Háteigi, 4. hæð, í dag klukkan 17.00.
Lesa meiraNámskeið og próf til réttinda leigumiðlunar verður haldið 23. október til 1. nóvember nk. Prófnefnd leigumiðlara heldur námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands ef næg þátttaka fæst.
Lesa meiraSveitarstjórn getur tekið ákvörðun um að greiða hærri húsaleigubætur en sem nemur grunnfjárhæðum húsaleigubóta. Um er að ræða húsaleigubætur sem eru viðbót við grunnfjárhæðir húsaleigubóta, þ.e. ?sérstakar húsaleigubætur?.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra skipaði í dag starfshóp sem semja á reglur um veitingu ættleiðingarstyrkja.
Lesa meiraSamhliða kosningunum fór fram könnun á nafn á hið sameinaða sveitarfélag Ólafsfjarðar og Siglufjarðar.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra fjallaði í dag um jafnréttismál á fundum með ráðherrum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna og lagði sérstaka áherslu á þátttöku ungs fólks í jafnréttismálum, jákvæð áhrif fæðingarorlofs feðra og mikilvægi þess að karlar tækju aukinn þátt í umfjöllun um jafnréttismál.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra og fjármálaráðherra undirrituðu í gær, fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, nýjan samstarfssáttmála ríkis og sveitarfélaga.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt að leggja til að áætlun um heildarúthlutun úgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2006 nemi 3.100 m.kr. og hefur félagsmálaráðherra samþykkt tillögu ráðgjafarnefndarinnar.
Lesa meiraHinn 7. febrúar nk. verður sett í Þjóðabandalagshöllinni í Genf þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) Alþjóðavinnumálaþingið. Um er að ræða aukaþing sem helgað er málefnum sjómanna.
Lesa meiraLokaráðstefna hins fjölþjóðlega verkefnis Íþróttir, fjölmiðlar og staðalímyndir? verður haldin á Hótel Loftleiðum þann 20. janúar næstkomandi kl. 13-17.
Lesa meiraTekju- og eignamörk félagslegra leiguíbúða samkvæmt reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur hafa verið uppreiknuð.
Lesa meira