Eldri fréttir FEL

Skipun starfshóps til að fjalla um þjónustu við langveik börn og fjölskyldur þeirra - 28.12.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur skipað sérstakan starfshóp til að fara yfir þau þjónustuúrræði sem standa fjölskyldum langveikra barna til boða til að fá heildarsýn yfir ólík þjónustukerfi svo unnt verði að tryggja sem heildstæðasta þjónustu við þennan hóp fjölskyldna.

Lesa meira
 

Tryggingastofnun ríkisins mun annast framkvæmd laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna - 28.12.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur ákveðið að fela Tryggingastofnun ríkisins framkvæmd laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Lesa meira
 

Opið málþing félagsmálaráðuneytis og innflytjendaráðs um gerð framkvæmdaáætlunar - 28.12.2007

Félagsmálaráðuneytið og innflytjendaráð standa fyrir málþingi um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda sem haldið verður föstudaginn 11. janúar 2008.

Lesa meira
 

Úthlutun til sveitarfélaga vegna samdráttar í aflamarki þorsks - 28.12.2007

Félagsmálaráðherra hefur ákveðið úthlutun á 250 m.kr. til að koma til móts við þau sveitarfélög sem verða fyrir tekjumissi vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks. Lesa meira
 

Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2008 - 21.12.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 7. desember sl. um áætluð framlög til sveitarfélaga árið 2008.

Lesa meira
 

Undirritun samninga vegna þjónustu við geðfatlaða - 20.12.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra undirritaði í dag annars vegar samkomulag við Brynju, Hússjóð Öryrkjabandalagsins, um kaup á 15 íbúðum í Reykjavík sem notaðar verða í þágu geðfatlaðra, og hins vegar við Klúbbinn Geysi og Geðhjálp, um dagþjónustu við geðfatlaða. Lesa meira
 

Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hækka um 1.000 milljónir króna - 20.12.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um að hækka framlög til sveitarfélaga um rúmlega 1.000 milljónir króna fyrir árið 2007.

Lesa meira
 

1.400 milljón króna aukaframlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2007 - 20.12.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar frá 7. desember sl. um úthlutanir framlaga um ráðstöfun 1.400 m.kr. aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2007.

Lesa meira
 

Nýtt skipurit félags- og tryggingamálaráðuneytisins endurspeglar breytingar á verkefnum - 19.12.2007

Nýtt skipurit félags- og tryggingamálaráðuneytisins mun öðlast gildi 1. janúar 2008. Skipuritið felur í sér umtalsverðar breytingar á skipulagi félagsmálaráðuneytisins, meðal annars í samræmi við breytingar sem verða á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins um næstu áramót.

Lesa meira
 

Bætt kjör lögfest - 14.12.2007

Alþingi hefur samþykkt ný lög um breytingu á lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Lesa meira
 

Lokafundur Evrópuárs jafnra tækifæra - 10.12.2007

Evrópuárið 2007, Ár jafnra tækifæra, er nú á lokaspretti sínum og verður næstkomandi fimmtudag, 13. desember, fjallað um þau verkefni sem unnið hefur verið að á árinu á lokafundi í Þjóðminjasafninu.

Lesa meira
 

Aðgerðir gegn mansali: Ánægja með skjót viðbrögð ríkisstjórnarinnar - 10.12.2007

Forsvarsmenn átaks gegn kynbundnu ofbeldi afhentu félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, blómvönd sem þakklætisvott fyrir skjót viðbrögð ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn mansali.

Lesa meira
 

Samkomulag um hlutverk og rekstur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna - 7.12.2007

Félagsmálaráðherra undirritaði í dag samkomulag um áframhaldandi rekstur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sem gildir til ársins 2012.

Lesa meira
 

Aðgerðaáætlun gegn mansali - 7.12.2007

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra um að gerð verði aðgerðaáætlun gegn mansali.

Lesa meira
 

Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að bæta kjör aldraðra og öryrkja - 5.12.2007

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að styrkja stöðu aldraðra og öryrkja með því að draga úr tekjutengingum og skerðingum bóta í almannatryggingakerfinu. Lesa meira
 

Ein heildstæð löggjöf um velferðarþjónustu sveitarfélaga - 5.12.2007

Í ávarpi á fundi Félags stjórnenda í öldrunarþjónustu setti félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, fram þá skoðun að stefna eigi að því að sett verði ein heildstæð löggjöf um velferðarþjónustu sveitarfélaga.

Lesa meira
 

Nýtt starfsþjálfunarverkefni fyrir innflytjendur undirbúið hjá Vinnumálastofnun - 4.12.2007

Lokaráðstefna verkefnisins Framtíðar í nýju landi var haldin síðastliðinn föstudag. Á ráðstefnunni var fjallað um hugmyndafræði, starfsaðferðir og árangur verkefnisins sem miðar að því að efla ungmenni af erlendum uppruna í námi og starfi.

Lesa meira
 

Afmælishátíð í tilefni af 75 ára afmæli fyrstu barnaverndarlaga á Íslandi - 4.12.2007

Á 75 ára afmælishátíð barnaverndarlöggjafar á Íslandi voru fimm einstaklingar heiðraðir og veitti félagsmálaráðherra þeim listaverk í tilefni af því. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra fagnar umræðu um kjör örorku- og ellilífeyrisþega - 3.12.2007

Fulltrúar örorku- og ellilífeyrisþega gengu á fund félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur. Erindið var að afhenda ráðherra undirskriftir rúmlega 4.300 örorku- og ellilífeyrisþega sem krefjast bættra kjara. Lesa meira
 

Alþjóðadagur fatlaðra - 3.12.2007

Þriðji desember er alþjóðadagur fatlaðra og er hans víða minnst í dag. Með deginum er ætlað að ýta undir þekkingu og skilning á málefnum einstaklinga með fötlun og kalla fram stuðning og virðingu við réttindi, jafnræði og velferð einstaklinga með fötlun í samfélaginu. Lesa meira
 

Málþing um velferðarmál í vestnorrænu löndunum haldið 30. nóvember nk. - 28.11.2007

Fjallað verður um velferðarmál í Færeyjum, Grænlandi og Íslandi í Norræna húsinu föstudaginn 30. nóvember næstkomandi klukkan 13.00 til 16.15. Viðfangsefnin eru meðal annars vestnorræn velferð og norræna velferðarlíkanið, heilsa og velferð barna og staða kynjanna.

Lesa meira
 

Atvinnuleysi 0,8% í október - 28.11.2007

Skráð atvinnuleysi í október 2007 var 0,8%, eða það sama og í september síðastliðnum samkvæmt Vinnumálastofnun. Lesa meira
 

Aukaúthlutun styrkja til atvinnumála kvenna 2007 - 28.11.2007

Vakin er athygli á að félagsmálaráðherra auglýsir aukaúthlutun á styrkjum til atvinnumála kvenna árið 2007. Styrkirnir eru ætlaðir konum sem eru með góða viðskiptahugmynd og stefna á að koma á fót sjálfstæðum atvinnurekstri. Lesa meira
 

Erindi á ráðstefnunni Kynbundinn launamunur – aðferðir til úrbóta - 27.11.2007

Föstudaginn 23. nóvember síðastliðinn var haldin ráðstefnan Kynbundinn launamunur – aðferðir til úrbóta.

Lesa meira
 

Reglugerð varðandi eignaskiptayfirlýsingar fyrir hesthús - 27.11.2007

Félagsmálaráðherra hefur gefið út reglugerð um breytingu á reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum, nr. 910/2000.

Lesa meira
 

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur 4. tbl. 2007 - 23.11.2007

Út er komið 4. tölublað af fréttabréfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur árið 2007. Lesa meira
 

Þingsályktun um aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna er komin út í enskri þýðingu - 21.11.2007

Félagsmálaráðuneyti hefur látið þýða þingsályktun um aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna á ensku. Þýðingin er aðgengileg á heimsíðu ráðuneytisins. Lesa meira
 

Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta - 21.11.2007

Jafnréttisstofa í samstarfi við Ár jafnra tækifæra og félagsmálaráðuneytið efnir til ráðstefnunnar Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta þann 23. nóvember klukkan 13–16 í Sunnusal Hótel Sögu. Lesa meira
 

Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta - 21.11.2007

Jafnréttisstofa í samstarfi við Ár jafnra tækifæra og félagsmálaráðuneytið efnir til ráðstefnunnar Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta þann 23. nóvember klukkan 13–16 í Sunnusal Hótel Sögu. Lesa meira
 

Áætluð framlög 2008 - 20.11.2007

Félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, annars vegar um áætlun um úthlutun framlaga til sveitarfélaga vegna lækkaðra fasteignaskattstekna á árinu 2008 og hins vegar um áætlun um úthlutun framlaga til sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu í grunnskólum á árinu 2008.

Lesa meira
 

Erindi frá síðasta morgunverðarfundi verkefnisstjórnar 50+ - 16.11.2007

Þriðji og síðasti morgunverðarfundur í fundaröð verkefnisstjórnar 50+ var haldinn fimmtudaginn 15. nóvember 2007.

Lesa meira
 

Nýtt frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna - 14.11.2007

Frumvarp félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, um breytingu á lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, hefur verið lagt fram á Alþingi.

Lesa meira
 

Yfirstjórn málefna aldraðra og lífeyrismála flyst til félagsmálaráðuneytisins - 13.11.2007

Félagsmálaráðherra fagnar umtalsverðum breytingum varðandi verkefni á sviði málefna aldraðra og lífeyrismála sem kveðið er á um í nýju frumvarpi sem dreift var á Alþingi í gær.

Lesa meira
 

Að gera jafnréttisstarf sýnilegt - 12.11.2007

Lokaráðstefna Evrópuverkefnisins Jafnréttisvogin verður haldin föstudaginn 16. nóvember á Hótel Loftleiðum. Verkefnið snýst um að mæla stöðu jafnréttis hjá sveitarfélögum í fimm löndum og verða niðurstöður þess kynntar á ráðstefnunni. Lesa meira
 

Nefnd um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og barna þeirra - 12.11.2007

Félagsmálaráðherra hefur í samræmi við þingsályktun um aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna, sem samþykkt var á 134. löggjafarþingi, skipað nefnd er fjalli um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra.

Lesa meira
 

Uppeldisráðgjöf og þjálfun í foreldrafærni í undirbúningi - 12.11.2007

Félag um foreldrajafnrétti hélt á feðradaginn ráðstefnuna „Réttindi barns við skilnað“. Á ráðstefnunni fjallaði félagsmálaráðherra um „Barnið í nútímafjölskyldunni“ og tilkynnti um skipan nefndar sem ætlað er að fjalla um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra.

Lesa meira
 

Þriðji morgunverðarfundur verkefnisstjórnar 50+ - 12.11.2007

Fimmtudaginn 15. nóvember næstkomandi verður þriðji morgunverðarfundur verkefnisstjórnar 50+ haldinn á Grand Hóteli Reykjavík klukkan 8.30. Lesa meira
 

Minnisvarði afhjúpaður um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur - 9.11.2007

Hinn 7. nóvember sl. var afhjúpaður minnisvarði um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur.

Lesa meira
 

Jafnréttisfræðsla í leikskólum og grunnskólum - 9.11.2007

Nú er að fara af stað samvinnuverkefni félagsmálaráðuneytisins og margra aðila um jafnréttisfræðslu í leikskólum og grunnskólum. Verkefnið verður unnið í skólum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akureyri. Félagsmálaráðuneytið, Jafnréttisstofa og Jafnréttisráð eru aðilar að verkefninu ásamt fyrrnefndum sveitarfélögum.

Lesa meira
 

Verkefnastjóri þróunarverkefna Fjölmenningarseturs - 2.11.2007

Fjölmenningarsetur leitar að verkefnastjóra við að þróa verkefni og móta ferli við móttöku innflytjenda í íslensku samfélagi. Markmiðið með þessu nýja starfi er að auðvelda samskipti á þessu sviði og efla þátttöku innflytjenda í samfélaginu.

Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra vill stöðva fyrirhugaðar skerðingar á örorkulífeyri - 2.11.2007

Félagsmálaráðherra ávarpaði í dag þing Landssambands íslenskra verzlunarmanna. Þingið er haldið á 50 ára afmæli landssambandsins og árnaði félagsmálaráðherra félagsmönnum þess heilla og þakkaði það kraftmikla og oft á tíðum brautryðjendastarf sem unnið hafi verið á þeirra vegum að hagsmunum launþega.

Lesa meira
 

Laus störf lögfræðinga á skrifstofu jafnréttis- og vinnumála - 31.10.2007

Félagsmálaráðuneytið auglýsir eftir tveimur lögfræðingum til starfa á skrifstofu jafnréttis- og vinnumála. Lesa meira
 

Frumvarpi til nýrra heildarlaga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla var dreift á Alþingi í dag - 30.10.2007

Frumvarpi félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, til nýrra heildarlaga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla var í dag dreift á Alþingi. Lesa meira
 

Annar morgunverðarfundur verkefnisstjórnar 50+ - 29.10.2007

Annar fundur verkefnisstjórnar 50+ verður haldinn föstudaginn 2. nóvember næstkomandi kl. 8.30 á Grand Hóteli Reykjavík. Lesa meira
 

Ávarp félagsmálaráðherra á ársfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - 26.10.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ávarpaði ársfund Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem haldinn var í Félagsgarði í Kjós 26. október 2007. Lesa meira
 

Samningur undirritaður um þjónustu við flóttafólk - 26.10.2007

Félagsmálaráðherra og borgarstjóri undirrituðu í morgun samning um móttöku og fjölþætta aðstoð og þjónustu við flóttafólk 2007–2008.

Lesa meira
 

Ávarp félagsmálaráðherra á málþingi Samtaka félagsmálastjóra - 25.10.2007

Ávarp

Félagsmálaráðherra ávarpaði í dag málþing Samtaka félagsmálastjóra sem haldið var undir yfirskriftinni „Nýir tímar - hvert stefnir?“ og var haldið í samvinnu við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar.

Lesa meira
 

Reglugerð um ættleiðingarstyrki - 25.10.2007

Félagsmálaráðherra hefur sett reglugerð um ættleiðingarstyrki á grundvelli laga um ættleiðingarstyrki, nr. 152/2006. Lesa meira
 

Starfshópar til að fylgja eftir stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum - 25.10.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur skipað tvo starfshópa til að fylgja eftir stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum. Þar er megináherslan lögð á að unnið verði markvisst gegn kynbundnum launamun.

Lesa meira
 

Menntaskólanum í Kópavogi veitt viðurkenning Jafnréttisráðs árið 2007 - 24.10.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra afhenti í dag viðurkenningu Jafnréttisráðs á Hilton Reykjavik Nordica og að þessu sinni var viðurkenningin veitt Menntaskólanum í Kópavogi, en þetta var í sextánda skiptið sem viðurkenningin er veitt.

Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra ávarpar ráðstefnuna „Hvaðan kemur hræðslan við jafnrétti?“ - 24.10.2007

Háskóli Íslands í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar, atvinnuþróunarfélög og tengslanet kvenna á landsbyggðinni efndu í tilefni af kvennafrídeginum 24. október til jafnréttisráðstefnu undir yfirskriftinni „Hvaðan kemur hræðslan við jafnrétti?“ Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra ávarpar ráðstefnu í tilefni af vinnuverndarviku - 24.10.2007

Félagsmálaráðherra flutti ávarp 23. október 2007 á ráðstefnu Vinnueftirlits ríkisins í tilefni af upphafi vinnuverndarvikunnar sem nú stendur. Yfirskrift vinnuverndarvikunnar er „Hæfilegt álag er heilsu best“.

Lesa meira
 

Dagskrá félagsmálaráðherra á kvennafrídeginum - 24.10.2007

Í tilefni af kvennafrídeginum í dag, 24. október, er dagskrá félagsmálaráðherra þétt skipuð. Jóhanna Sigurðardóttir segir það augljóst að breytinga sé þörf í jafnréttismálum.

Lesa meira
 

Fyrstu skrefin eru komin út á tíu tungumálum - 18.10.2007

Bæklingurinn Fyrstu skrefin hefur að geyma nauðsynlegustu upplýsingar fyrir innflytjendur sem ætla að setjast að á Íslandi. Textinn er bæði á íslensku og erlenda tungumálinu. Innflytjendaráð stendur að útgáfu bæklingsins í samvinnu við fjölmarga aðila.

Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra flutti ávarp á ársfundi Alþýðusambands Íslands - 18.10.2007

Ávarp félagsmálaráðherra á ársfundi Alþýðusambands Íslands 2007. Lesa meira
 

Jafnrétti skilar arði - 18.10.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sat fund norrænna jafnréttisráðherra í Helsinki þann 15. október. Eitt meginumræðuefni fundarins var fyrirkomulag og reynsla af fæðingarorlofi á Norðurlöndunum. Lesa meira
 

Fyrsti morgunverðarfundur verkefnisstjórnar 50+ - 16.10.2007

Fyrsti morgunverðarfundur verkefnisstjórnar 50+ verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 19. október næstkomandi kl. 8.30-10.00. Umfjöllunarefnið að þessu sinni verður sveigjanleg starfslok - ávinningur allra. Lesa meira
 

Fundaröð verkefnisstjórnar 50+ - 16.10.2007

Verkefnisstjórn 50+ mun halda þrjá morgunverðarfundi á næstunni á Grand Hótel Reykjavík.

Lesa meira
 

Ráðstöfun aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2007 - 11.10.2007

Félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutanir framlaga til sveitarfélaga á grundvelli reglna nr. 884/2007.

Lesa meira
 

Áætluð úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2007 - 11.10.2007

Félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2007 á grundvelli 12. gr. reglugerðar nr. 113/2003. Lesa meira
 

Skýrsla kynnt um aðstæður fólks á húsnæðismarkaði - 11.10.2007

Skýrsla um aðstæður fólks á húsnæðismarkaði var kynnt á blaðamannafundi í félagsmálaráðuneytinu í dag.

Lesa meira
 

Nýjar íbúðir fyrir fólk sem býr við geðfötlun - 10.10.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra heimsækir í dag fimm íbúa í nýjum íbúðum fyrir geðfatlaða við Lindargötu í Reykjavík. Lesa meira
 

Frumvarp til nýrra heildarlaga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla samþykkt í ríkisstjórn - 9.10.2007

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag frumvarp félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, sem fer nú til umfjöllunar í þingflokkum stjórnmálaflokkanna. Lesa meira
 

Flóttafólk frá Kólumbíu til Íslands - 8.10.2007

Þriðjudaginn 9. október kemur hópur kólumbískra flóttamanna til landsins í boði íslenskra stjórnvalda. Alls taka stjórnvöld á móti 30 kólumbískum flóttamönnum í ár. Um er að ræða konur og börn.

Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra flutti ávarp við setningu aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands í dag - 6.10.2007

Í ávarpi sínu fjallaði ráðherra meðal annars um þau sameiginlegu gildi sem eru grundvöllurinn í stefnu stjórnvalda og Öryrkjabandalags Íslands og óskaði eftir góðu og farsælu samstarfi á komandi árum. Lesa meira
 

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur 3. tbl. 2007 - 5.10.2007

Út er komið 3. tölublað af fréttabréfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur árið 2007. Þar er fjallað um greiðslur bótanna á II. ársfjórðungi 2007, fjölda einstaklinga að meðaltali er njóta húsaleigubóta og meðaltal húsaleigu. Lesa meira
 

Stefna ríkisstjórnarinnar um aðlögun innflytjenda hefur verði þýdd á ensku - 5.10.2007

Stefna ríkisstjórnarinnar um aðlögun innflytjenda hefur verði þýdd á ensku. Með þeim hætti gefst enskumælandi innflytjendum kostur á að kynna sér stefnuna. Einnig mun þýðingin nýtast þeim sem vilja kynna sjónarmið íslenskra stjórnvalda um aðlögun innflytjenda á erlendri grund. Lesa meira
 

Reglur um ráðstöfun 1.400 millj. kr. aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2007 - 4.10.2007

Félagsmálaráðherra hefur, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, gefið út reglur um ráðstöfun 1.400 m.kr. aukaframlagsins til sveitarfélaga á árinu 2007. Framlaginu er ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir sérstakt viðbótarframlag vegna þróunar í rekstrarumhverfi þeirra og erfiðra ytri aðstæðna. Á grundvelli viljayfirlýsingar ríkisstjórnar Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 22. mars 2007 nemur þetta tímabundna aukaframlag 1.400 milljónum króna á árunum 2007 og 2008.

Lesa meira

 

Aðgerðir Vinnumálastofnunar vegna eftirlits með fyrirtækjum vegna erlendra starfsmanna - 2.10.2007

Vinnumálastofnun hleypir í dag af stokkunum sérstöku eftirlitsátaki með fyrirtækjum vegna erlendra starfsmanna undir heitinu allt í ljós, í samvinnu við félagsmálaráðuneytið og ASÍ. Átakið mun standa yfir um allt land en með sérstaka áherslu á fyrirtæki í byggingariðnaði á höfuðborgarsvæðinu. Lesa meira
 

Dagur barnsins árlega haldinn hátíðlegur á Íslandi - 2.10.2007

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu félagsmálaráðherra um að sérstakur dagur verði helgaður börnum hér á landi. Lagt er til að dagur barnsins verði síðasti sunnudagur í maí ár hvert, í fyrsta sinn árið 2008. Beri daginn uppá hvítasunnudag skal dagur barnsins vera næsti sunnudagur á undan hvítasunnudegi. Þessi tími er m.a. talinn æskilegur þar sem framundan eru skólalok og upphaf sumarfría. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra skipar verkefnisstjórn er endurskoðar almannatryggingalöggjöfina - 1.10.2007

Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur í dag í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 23. maí sl. og í ljósi þess að almannatryggingar munu flytjast frá heilbrigðisráðuneyti til félagsmálaráðuneytisins þann 1. janúar 2008 skipað fimm manna verkefnisstjórn sem vinna skal heildstæðar tillögur um eðlilegar fyrstu aðgerðir, langtíma stefnumótun og nauðsynlegar breytingar á almannatryggingalöggjöfinni. Lesa meira
 

Styrkir úr Þróunarsjóði innflytjendamála 2007 - 28.9.2007

Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði málefna innflytjenda með það að markmiði að auðvelda innflytjendum aðlögun að íslensku samfélagi og gera samfélaginu betur kleift að koma til móts við þá.   Lesa meira
 

Verkefnisstjóri í upplýsingamiðlun - 28.9.2007

Félagsmálaráðuneytið f.h. Fjölmenningarseturs óskar að ráða starfsmann í 100% stöðu til að vinna við miðlun upplýsinga um réttindi og skyldur innflytjenda á Íslandi og fjölmenningu. Lesa meira
 

Ný tækni - sama sagan, kynferðislegt ofbeldi gegn börnum - 26.9.2007

Ráðstefna Barnaheilla - Save the Children á Íslandi verður haldin í Norræna húsinu þann 11. október kl. 9- 17.
Meirihluti íslenskra barna notar Netið daglega til fróðleiks og skemmtunar. En hversu berskjölduð eru börn okkar fyrir áreiti og ofbeldi á Netinu? Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra undirbýr breytingar á lögum um greiðslur foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna - 25.9.2007

Félagsmálaráðherra undirbýr breytingar á lögum um greiðslur foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. Jóhanna Sigurðardóttir hefur frá því að hún tók við embætti félagsmálaráðherra í lok maí sl. undirbúið breytingar á lögum nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna. Lesa meira
 

Geðheilbrigði í breyttri veröld: Áhrif menningar og margbreytileika - 25.9.2007

Í tilefni alþjóða geðheilbrigðisdagsins 2007 verður ráðstefnan Geðheilbrigði í breyttri veröld: Áhrif menningar og margbreytileika haldin í ráðhúsi Reykjavíkur 10. október næstkomandi.   Lesa meira
 

Fréttatilkynning - nefnd um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra - 21.9.2007

Félagsmálaráðherra tilkynnir um skipun nefndar til að fjalla um einstæða og forsjárlausa foreldra og stjúpforeldra. Lesa meira
 

Stefna ríkisstjórnarinnar í málefnum barna og fjölskyldna - 21.9.2007

Erindi félagsmálaráðherra á málstofu Rannsóknaseturs í barna- og fjölskylduvernd (RBF) og Félagsráðgjafaskorar HÍ. Lesa meira
 

Úrbætur í húsnæðismálum einstæðra foreldra - 18.9.2007

Í kjölfar frétta af neyðarástandi í húsnæðismálum einstæðra foreldra hafði félagsmálaráðherra frumkvæði að viðræðum við borgarstjórann í Reykjavík og forystumenn Félags einstæðra foreldra um mögulegar lausnir á vandanum. Niðurstaða þessara aðila er að grípa þegar til sameiginlegra aðgerða sem á næstu vikum ættu að geta hátt í tvöfaldað skammtíma neyðar vistunarrými á vegum Félags einstæðra foreldra.

Lesa meira

 

Nýr upplýsingabæklingur á ensku fyrir erlenda starfsmenn - 18.9.2007

Vinnumálastofnun hefur gefið út bækling á ensku um lífs- og vinnuskilyrði á Íslandi. Í bæklingnum er leitast við að gefa hagnýtar og greinagóðar upplýsingar um flest það sem erlendir starfsmenn þurfa að vita og hafa í huga fyrstu mánuðina á Íslandi. Lesa meira
 

Mótvægisaðgerðir á vegum félagsmálaráðuneytis - 17.9.2007

Á vegum félagsmálaráðuneytisins verður á næstu tveimur árum varið ríflega 1.125 milljónum til mótvægisaðgerða í fimm aðskildum verkefnum sem nýtast munu um allt land. Verkefnin eru hluti af viðamiklum mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna skerðingar aflaheimilda í þorski sem kynntar hafa verið.

Lesa meira
 

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts - 13.9.2007

Félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 3. september sl. Lesa meira
 

Samráðshópar um markmið ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum - 11.9.2007

Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, kynnti í ríkisstjórn í morgun ákvarðanir sínar og fjármálaráðherra um að skipa þrjá starfshópa til að fylgja eftir markmiðum er fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 23. maí sl. á sviði jafnréttismála. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra hefst handa við endurskoðun almannatrygginga - 7.9.2007

Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 23. maí 2007 og í ljósi þess að málefni aldraðra og almannatryggingar munu flytjast frá heilbrigðisráðuneyti til félagsmálaráðuneytis um næstu áramót hefur félagsmálaráðherra ákveðið að hefja vinnu við endurskoðun á almannatryggingalöggjöfinni. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra kallar eftir samstarfi ASÍ og Vinnumálastofnunar um eftirlitsátak með réttindum og kjörum erlendra starfsmanna - 7.9.2007

Í ljósi framkominna upplýsinga og rökstudds gruns um að fjöldi fyrirtækja er starfa hér á landi hafi látið hjá líða að tilkynna til Vinnumálastofnunar um ráðningu erlendra starfsmanna og upplýsa um réttindi þeirra og kjör hefur félagsmálaráðherra kallað eftir eftirlitsátaki og hertum aðgerðum Vinnumálastofnunar til úrbóta. Lesa meira
 

Málefni útlendinga á íslenskum vinnumarkaði - 1.9.2007

Félagsmálaráðherra óskar eftir greinargerð fyrir 1. nóvember nk. frá þeim opinberu aðilum sem koma að málefnum útlendinga á íslenskum vinnumarkaði. Lesa meira
 

Styrkir veittir í tilefni Evrópuársins 2007 - 31.8.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra veitti styrki í tilefni Evrópuársins 2007, Árs jafnra tækifæra, í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Lesa meira
 

Nefnd skipuð um eflingu húsnæðislánakerfisins og lánveitingar - 27.8.2007

Félagsmálaráðherra hefur skipað nefnd til að móta tillögur sem miða að því að efla hinn félagslega þátt húsnæðislánakerfisins, þar með talinn leigumarkaðinn, og lánveitingar til fólks undir skilgreindum eigna- og tekjumörkum. Lesa meira
 

Úrslit ljósmyndasamkeppninnar - 22.8.2007

Hinn 19. ágúst síðastliðinn voru úrslit í ljósmyndasamkeppninni í tilefni Árs jafnra tækifæra kunngjörð í Norræna húsinu. Sýning með völdum myndum úr keppninni var einnig opnuð á sama stað og verða myndirnar til sýnis fram til 26. ágúst næstkomandi.

Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra skipar Jafnréttisráð - 21.8.2007

Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur skipað níu manna Jafnréttisráð í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000.

Lesa meira
 

Styrkir til námskeiða í íslensku - 20.8.2007

Menntamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku haustið 2007.

Lesa meira
 

Opnun ljósmyndasýningar í Norræna húsinu - 17.8.2007

Fyrr í sumar efndi félagsmálaráðuneytið í samvinnu við vinnuskóla landsins til ljósmyndasamkeppni þar sem nemendur vinnuskólanna voru hvattir til að fanga fjölbreytileikann í myndefni sínu. Lesa meira
 

Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda - 14.8.2007

Félagsmálaráðherra felur innflytjendaráði að hefja vinnu við framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra skipar stjórn Vinnueftirlits ríkisins - 7.8.2007

Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur skipað níu manna stjórn Vinnueftirlits ríkisins til fjögurra ára í samræmi við lög nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Lesa meira
 

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur 2. tbl. 2007 - 7.8.2007

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur kemur nú út í breyttu formi. Lesa meira
 

Nýr bæklingur með leiðbeiningum um vinnuvernd - 3.8.2007

Vinnueftirlit ríkisins hefur gefið út bækling á níu tungumálum með leiðbeiningum um vinnuvernd. Lesa meira
 

Skipun í embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu - 2.8.2007

Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur skipað Kristínu Ástgeirsdóttur í embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Skipun þessi er til fimm ára frá og með 1. september nk. Lesa meira
 

Frestur til að senda umsögn rennur út 15. ágúst nk. - 1.8.2007

Frestur til að senda umsögn til félagsmálaráðuneytisins um tillögu að frumvarpi til laga um réttindi og skyldur í skipulögðum frístundabyggðum rennur út 15. ágúst nk. Lesa meira
 

Nýir formenn innflytjendaráðs og flóttamannanefndar - 31.7.2007

Félagsmálaráðherra hefur skipað Hrannar Björn Arnarsson formann innflytjendaráðs og Guðrúnu Ögmundsdóttur formann flóttamannanefndar.

Lesa meira
 

Skipun samráðshóps um aðgerðaáætlun í þágu barna og ungmenna - 16.7.2007

Alþingi samþykkti þann 13. júní síðastliðinn tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna. Samráðshópur hefur verið skipaður til að stuðla að samræmingu og eftirfylgni aðgerða. Lesa meira
 

Umsækjendur um embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu - 13.7.2007

Embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu var auglýst laust til umsóknar 24. júní 2007. Umsóknarfrestur vegna starfsins rann út 9. júlí síðastliðinn. Lesa meira
 

Umsagnarferli vegna vinnslu frumvarps til laga um jafnréttismál stendur til 10. ágúst - 13.7.2007

Í byrjun mars 2007 skilaði nefnd um endurskoðun gildandi jafnréttislaga tillögum sínum til félagsmálaráðherra í formi frumvarps til nýrra laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Opið umsagnarferli um drögin stendur til 10. ágúst næstkomandi. Lesa meira
 

Breiðavíkursamtökin opna heimasíðu - 10.7.2007

Félagsmálaráðherra opnaði í gær með formlegum hætti nýjan vef Breiðavíkursamtakanna við hátíðlega athöfn í félagsheimili Laugarneskirkju. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra styrkir átaksverkefni fyrir fötluð ungmenni - 5.7.2007

Í gær og dag hafa fjölmiðlar vakið athygli á mismunandi launakjörum sem fatlaðir og ófatlaðir búa við í sameiginlegu átaksverkefni ÍTR og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík. Eftir að hafa kynnt sér málið hefur félagsmálaráðherra ákveðið að veita sérstakan styrk til verkefnisins svo mismunun þessi verði leiðrétt nú þegar.

Lesa meira
 

Hámarkslánshlutfall Íbúðarlánasjóðs lækkað og félagslegi þáttur húsnæðiskerfisins efldur - 4.7.2007

Félagsmálaráðherra hefur undirritað reglugerð sem kveður á um að hámarkslánshlutfall Íbúðalánasjóðs skuli lækkað úr 90% í 80%. Hámarkslán helst óbreytt 18 milljónir króna. Breytingin gildir frá deginum í dag, 4. júlí. Jafnframt verður unnið að eflingu félagslega þáttar húsnæðiskerfisins. Lesa meira
 

Móttaka hóps flóttafólks 2007 - 4.7.2007

Gert er ráð fyrir að 30 manna hópur flóttafólks frá Kólumbíu komi til landsins í september. Um er að ræða konur og börn sem hafa dvalið í Ekvador. Lesa meira
 

Auglýst eftir sérfræðingum til að stytta biðlista - 29.6.2007

Auglýst er eftir sérfræðingum til að taka þátt í teymum sem verða sett á fót í samræmi við aðgerðaáætlun Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra til að vinna á biðlistum Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Lesa meira
 

Styrkir vegna Evrópuárs jafnra tækifæra - 29.6.2007

Í tilefni af Evrópuári jafnra tækifæra auglýsir félagsmálaráðuneytið eftir umsóknum um styrki úr sérstökum verkefnasjóði til verkefna sem hafa það markmið að vinna að almennri og víðtækri vitundarvakningu í samfélaginu um mismunun á grundvelli kyns, öldrunar, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar og trúar. Lesa meira
 

Hrannar Björn ráðinn aðstoðarmaður félagsmálaráðherra - 27.6.2007

Hrannar Björn Arnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra og mun hann hefja störf 1. júlí næstkomandi. Lesa meira
 

Ráðist gegn biðlistum hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins - 26.6.2007

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögur Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra um að hefja sérstakar aðgerðir til að vinna á biðlistum hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Lesa meira
 

Félagsmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga haldi áfram nánu samstarfi - 22.6.2007

Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga lýstu yfir ánægju með áherslur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þegar Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra heimsótti skrifstofur Sambandsins í dag. Jóhanna sagðist vilja skoða með sveitarfélögunum aðgerðir varðandi félagslegt húsnæði og húsaleigubætur. Lesa meira
 

Höfðahreppur verður Sveitarfélagið Skagaströnd - 22.6.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra staðfesti í dag ákvörðun hreppsnefndar Höfðahrepps frá 12. júní síðastliðnum um að sveitarfélagið skuli heita Sveitarfélagið Skagaströnd. Nafnbreytingin tekur gildi 1. september næstkomandi. Lesa meira
 

Barátta gegn mansali eitt mikilvægasta samstarfsverkefni þjóðanna á 21. öld - 22.6.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagði á Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf að eitt mikilvægasta verkefni þjóða heims á 21. öld væri að koma í veg fyrir mansal, bæði kynlífsþrælkun og nauðungarvinnu. Alþjóðavinnumálastofnunin áætlar að 12,3 milljónir manna séu ánauðugar. Lesa meira
 

Jafnrétti í reynd - 19.6.2007

Í grein í Morgunblaðinu í tilefni af kvenréttindadeginum skorar Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra á alla sem áhrif hafa á vinnumarkaði að setja mál fjölmennra kvennastétta í forgang svo það endurspeglist raunverulega í kjarasamningum.

Lesa meira
 

Tímamótasamþykkt um vinnuskilyrði sjómanna á fiskiskipum - 18.6.2007

Alþjóðasamþykkt sem er ætlað að bæta aðstæður um 30 milljóna manna sem starfa við fiskveiðar um allan heim var samþykkt með miklum meiri hluta atkvæða á 96. þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) í Genf á föstudag. Lesa meira
 

Atvinnuleysi minnkar enn - 14.6.2007

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var atvinnuleysi í maímánuði 1,1% sem er mun minna en á sama tíma fyrir ári. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra ávarpar Alþjóðavinnumálaþingið - 13.6.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ávarpaði í dag þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem haldið er um þessar mundir í Genf. Í ávarpi sínu fjallaði félagsmálaráðherra meðal annars um stefnu nýrrar ríkisstjórnar í jafnréttismálum, einkum varðandi aðgerðir til að eyða launamun kvenna og karla. Lesa meira
 

Alþingi samþykkir aðgerðaáætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna - 13.6.2007

Alþingi samþykkti í dag með 47 samhljóða atkvæðum tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra til þingsályktunar um aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna. Skipaður verður samráðshópur fimm ráðuneyta til að fylgja áætluninni eftir. Lesa meira
 

Starfsmenn frá Klúbbnum Geysi í félagsmálaráðuneytinu - 11.6.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur endurnýjað samstarfssamning við Klúbbinn Geysi um að félagar í honum komi til starfa í ráðuneytinu. Klúbburinn Geysir er fyrir fólk sem býr eða hefur búið við geðræna kvilla. Samstarfið hefur gefið góða raun. Lesa meira
 

Aðgerðaáætlun í þágu barna og ungmenna - 5.6.2007

Tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára aðgerðaáætlun í þágu barna og ungmenna verður dreift á Alþingi í dag.

Lesa meira

 

Félagsmálaráðherra heimsækir stofnanir ráðuneytisins - 30.5.2007

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hóf í dag að heimsækja stofnanir ráðuneytisins og byrjaði á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Hún segir ljóst eftir heimsóknina að skoða megi ýmsar leiðir til að stytta biðlista. Lesa meira
 

Nýr félagsmálaráðherra tekur við embætti - 24.5.2007

Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður tók við embætti félagsmálaráðherra á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Lesa meira
 

Heimsókn jafnlaunanefndar frá Noregi - 24.5.2007

Efnt verður til samráðsfundar með norskri „jafnlaunanefnd“ í Norræna húsinu föstudaginn 25. maí og hefst fundurinn klukkan 9. Nefndinni er ætla að kanna hvaða þættir séu líklegir til að draga úr launamun kynjanna. Fundurinn er opinn fjölmiðlum.

Lesa meira
 

Jafnréttiskennitalan - 24.5.2007

Konur skipa 8% stjórnarsæta í 100 stærstu fyrirtækjum landsins og eru 14% meðal æðstu stjórnenda fyrirtækjanna samkvæmt athugun Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála við Háskólann á Bifröst. Lesa meira
 

Ráðherraskipti í félagsmálaráðuneytinu - 24.5.2007

Jóhanna Sigurðardóttir er nýr félagsmálaráðherra. Lesa meira
 

Sérútgáfa af Jafnréttu - 22.5.2007

Hlutfall kvenna á Alþingi er 32% en karlmanna 68% eftir síðustu Alþingiskosningar. Þetta kemur meðal annars fram í sérútgáfu af Jafnréttu. Lesa meira
 

Íslenska foreldra- og fæðingarorlofskerfið fyrirmynd í Evrópu - 22.5.2007

Íslenska foreldra- og fæðingarorlofskerfið vakti sérstaka athygli á fundi félags- og jafnréttismálaráðherra Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna. Félagsmálaráðherra Þýskalands telur það góða fyrirmynd fyrir önnur Evrópuríki en þátttaka karla í barna- og fjölskylduábyrgð er óviðunandi víða í álfunni. Lesa meira
 

Erindi frá ráðstefnunni „mótum framtíð“ birt - 15.5.2007

Erindi á ráðstefnunni mótum framtíð - straumar og stefnur í félagslegri þjónustu eru birt á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins. Lesa meira
 

Samningur við RKÍ vegna móttöku flóttafólks - 14.5.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, undirrituðu á fimmtudag samning um móttöku flóttafólks 2007–2008. Lesa meira
 

Alþjóðahús veitir innflytjendum almenna og lögfræðilega ráðgjöf - 14.5.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, undirrituðu á fimmtudag samkomulag um að styrkja almenna og sérhæfða ráðgjöf Alþjóðahússins fyrir fólk af erlendum uppruna sem er búsett hér á landi. Lesa meira
 

Fréttabréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur 1. tbl. 2007 - 14.5.2007

Út er komið 1. tölublað af fréttabréfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur árið 2007. Í því er meðal annars farið yfir heildargreiðslur húsaleigubóta 2006, samanburð við árið 2005, áætlanir fyrir árið 2007 og þróunina frá árinu 1998.

Lesa meira
 

Embætti skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneytinu - 14.5.2007

Félagsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á nýrri skrifstofu barna- og fjölskyldumála í ráðuneytinu. Lesa meira
 

Atvinnuleysi 1,1% í aprílmánuði - 12.5.2007

Skráð atvinnuleysi í apríl 2007 var 1,1%. Atvinnuleysi er um 11,7% minna en á sama tíma fyrir ári. Lesa meira
 

Reglur og samskiptahefðir á íslenskum vinnumarkaði verði virtar - 11.5.2007

Starfshópur um málefni útlendinga á íslenskum vinnumarkaði leggur áherslu á að stjórnvöldum verði auðveldað að hafa eftirlit með að atvinnurekendur og erlendir starfsmenn þeirra hér á landi fari að lögum og að koma verði í veg fyrir að reglur og samskiptahefðir á vinnumarkaði raskist. Lesa meira
 

Skoðanakönnun um nýtt nafn á Höfðahrepp - 9.5.2007

Hreppsnefnd Höfðahrepps samþykkti á fundi sínum 9. maí síðastliðinn að gera skoðanakönnun á viðhorfi íbúa til þess að nafni sveitarfélagsins verði breytt og tekið upp nafnið Sveitarfélagið Skagaströnd sem nafn á sveitarfélaginu. Lesa meira
 

Væntanleg viðbygging Fjöliðjunnar - 7.5.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra telur að væntanleg viðbygging Fjöliðjunnar á Akranesi gerbreyti þjónustu við þá sem þurfa á hæfingu eða verndaðri vinnu að halda. Áform um 497 fermetra viðbótarhúsnæði voru kynnt í dag. Lesa meira
 

Opnun reiknistofu Atvinnuleysistryggingasjóðs á Skagaströnd - 7.5.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra opnaði formlega reiknistofu Atvinnuleysistryggingasjóðs á Skagaströnd föstudaginn 4. maí síðastliðinn. Sex nýir starfsmenn voru ráðnir til skrifstofunnar en forstöðumaður er Líney Árnadóttir. Lesa meira
 

Valdefling í verki - fræðsludagar á Akureyri - 3.5.2007

Félagsmálaráðuneytið stendur að fræðsludögum AE starfsendurhæfingar um batahvetjandi þjónustu ásamt Hugarafli og Akureyrarbæ 10. og 11. maí næstkomandi. Lesa meira
 

Framlög óskert til stofnkostnaðar og uppbyggingar í þágu geðfatlaðra - 1.5.2007

Vegna fjölmiðlaumfjöllunar tekur félagsmálaráðuneytið fram að framlög til átaks í þjónustu við geðfatlaða að fjárhæð 1,5 milljarðar króna renna óskert til stofnkostnaðar og uppbyggingar á þjónustuúrræðum. Lesa meira
 

Vinnuréttardagur - 30.4.2007

Fjallað verður um vinnurétt á málþingi Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 4. maí næstkomandi. Lesa meira
 

Bætt þjónusta við fatlaða - ný búsetuúrræði fyrir geðfatlaða í Þingeyjarsýslum - 30.4.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri undirrituðu í dag þjónustusamning um málefni fatlaðra og samkomulag um ný búsetuúrræði og eflingu dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatlað fólk í Þingeyjarsýslum. Lesa meira
 

Aukin þjónusta við geðfatlað fólk – ný búsetuúrræði á Austurlandi - 30.4.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi (SAUST), undirrituðu í dag samkomulag um verkefni til að fjölga búsetuúrræðum og efla dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatlað fólk á Austurlandi. Lesa meira
 

Þjónustusamningur við Sveitarfélagið Hornafjörð um þjónustu við fatlaða - 30.4.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri undirrituðu í morgun þjónustusamning milli félagsmálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um þjónustu við fatlaða. Lesa meira
 

Tilraunaverkefni um þjónustu við geðfatlaða í Reykjavík - 27.4.2007

Að tillögu Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra hefjast viðræður milli félagsmálaráðuneytisins og Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um að koma á fót tilraunaverkefni sem felur í sér að borgin annist uppbyggingu búsetu og þjónustu fyrir geðfatlaða sem búa í Reykjavík. Lesa meira
 

Ný skrifstofa barna- og fjölskyldumála í félagsmálaráðuneytinu - 26.4.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur ákveðið að setja á fót skrifstofu barna- og fjölskyldumála í félagsmálaráðuneytinu. Staða skrifstofustjóra hefur verið auglýst laus til umsóknar. Lesa meira
 

Tekið á móti flóttafólki frá Kólumbíu - 25.4.2007

Tekið verður á móti allt að 30 flóttamönnum frá Kólumbíu í ár samkvæmt tillögu flóttamannanefndar. Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í dag fyrir hönd Reykjavíkurborgar að verða við beiðni félagsmálaráðuneytisins um að taka við hópnum þegar hann kemur til landsins. Lesa meira
 

Evrópuár jafnra tækifæra sett hér á landi - 25.4.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra setti Evrópuár jafnra tækifæra 2007 hér á landi á ráðstefnu sem félagsmálaráðuneytið efndi til af þessu tilefni í Iðnó í dag. Heildarfjárhæðir til verkefna frá íslenskum stjórnvöldum og Evrópusambandinu í tengslum við átaksárið nema um 23 milljónum króna. Lesa meira
 

Félagsvinakerfi meðal fjölbreyttra verkefna sem fá styrk úr starfsmenntasjóði - 25.4.2007

Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins hefur úthlutað vegna ársins 2007 rúmlega 48 milljónum króna úr starfsmenntasjóði til 45 verkefna. Tilkynnt var um styrkveitingarnar á blaðamannafundi í húsakynnum Rauða kross Íslands við Efstaleiti í Reykjavík í hádeginu. Lesa meira
 

Fréttabréf 2007:2 - 25.4.2007

Í Fréttabréfi félagsmálaráðuneytisins segir frá því að Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra setji „Evrópuár jafnra tækifæra fyrir alla 2007“ hér á landi á ráðstefnu í Iðnó miðvikudaginn 25. apríl. Enn fremur er sagt frá því að sífellt fleiri fyrirtæki lýsi áhuga á að fá jafnlaunavottun.

Lesa meira
 

Starfshópur um frístundahúsamálefni sammála um drög að frumvarpi - 24.4.2007

Starfshópur um málefni er varða frístundahús leggur til að samningar um leigu á lóð undir frístundahús kveði á um endurskoðun á leigu og forkaupsrétt leigjenda við sölu á leigulóð. Enn fremur er lagt til að farin verði hliðstæð leið og í fjöleignarhúsalögunum við úrlausn tiltekinna ágreiningsefna. Lesa meira
 

Bæklingur um húsaleigubætur - 24.4.2007

Unnið hefur verið að endurbótum og leiðréttingum á eldri húsaleigubótabæklingi frá árinu 2003. Lesa meira
 

Ávinningur af aukinni atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja - 23.4.2007

Athugun Rannsóknaseturs verslunarinnar, sem félagsmálaráðuneytið tók þátt í að styrkja, bendir til að ríkissjóður gæti hagnast á því að afnema tekjutengingu bóta vegna launa eldri borgara og öryrkja. Ástæðan eru auknar skatttekjur sem þessir einstaklingar myndu greiða í ríkissjóð. Lesa meira
 

Ráðstefna í tilefni af Ári jafnra tækifæra 2007 - 19.4.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra setur verkefnið Evrópuár jafnra tækifæra fyrir alla hér á landi á ráðstefnu sem félagsmálaráðuneytið efnir til í Iðnó miðvikudaginn 25. apríl. Ætlunin er að vekja athygli almennings á að allir eigi rétt á jöfnum tækifærum án tillits til uppruna, kyns, trúar, lífsskoðunar, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar og aldurs. Lesa meira
 

Jafnlaunavottun sem fyrst í framkvæmd - 16.4.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra vill að tillögur samráðshóps um vottun jafnra launa komist sem fyrst í framkvæmd. Deloitte á Íslandi, Háskólinn í Reykjavík, Íslandspóstur og Orkuveitan hafa þegar ákveðið að sækjast eftir jafnlaunavottun og fjölmörg fleiri fyrirtæki hafa lýst yfir áhuga sínum á að hljóta slíka vottun. Lesa meira
 

Vill skoða kosti lagasetningar um greiðsluaðlögun - 12.4.2007

Í ávarpi sínu á ársfundi Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna í morgun sagðist Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra vilja skoða kosti þess að setja sérstaka löggjöf um úrræði vegna greiðsluerfiðleika. Lesa meira
 

Ársfundur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna - 11.4.2007

Á ársfundi Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna á Grand Hóteli fimmtudaginn 12. apríl verður meðal annars fjallað um löggjöf um úrræði vegna greiðsluerfiðleika. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra ávarpar fundinn og Arne Roti lögfræðingur kynnir norsk lög um greiðsluaðlögun. Lesa meira
 

Vel heppnuð og fjölsótt ráðstefna - 2.4.2007

Um 600 gestir sóttu ráðstefnuna mótum framtíð um félagslega þjónustu á fimmtudag og 400 á föstudag. Fyrirlesarar voru liðlega 100 talsins. Í ráðstefnulok afhenti MND-félagið MND-teymi Landspítala - háskólasjúkrahúss fólkslyftu og hóstavél að gjöf. Lesa meira
 

Undirritun samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra - 30.3.2007

Ísland hefur undirritað samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og viðbótarbókun samningsins. Harald Aspelund, varafastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum, skrifaði undir samninginn fyrir Íslands hönd klukkan 16.25 að íslenskum tíma í dag. Fjölmenni á ráðstefnunni mótum framtíð fylgdist með beinni sjónvarpsútsendingu frá athöfninni í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.

Lesa meira
 

Öndunarvélaþjónusta veitt - 29.3.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tilkynntu á blaðamannafundi á ráðstefnunni mótum framtíð í morgun að ríkisstjórnin hefði ákveðið að koma á tilraunaverkefni til tveggja ára um notendastýrða þjónustu fyrir fjóra til sex einstaklinga sem þurfa á öndunarvélaþjónustu að halda.  Lesa meira
 

Réttarbætur kynntar á ráðstefnu um félagsþjónustu á Nordica hotel - 29.3.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra greindi frá því í setningarræðu sinni á ráðstefnunni mótum framtíð – stefnur og straumar í félagslegri þjónustu á Nordica hotel í morgun að hann hefði óskað eftir því við utanríkisráðuneytið að það undirritaði nýjan samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og viðauka hans. Ráðstefnugestir eru um 500 og fyrirlesarar og málshefjendur liðlega 100. Lesa meira
 

Orlof húsmæðra 2007 - 28.3.2007

Félagsmálaráðuneytið auglýsir fjárhæð framlags sveitarfélaga samkvæmt lögum um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, fyrir árið 2007. Lesa meira
 

Þróunarsjóður og aðlögunarverkefni á sviði innflytjendamála - 27.3.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra tilkynnti á íbúaþingi á Ísafirði að ákveðið hefði verið að stofna þróunarsjóð á sviði innflytjendamála. Jafnframt verður starfsemi Fjölmenningarseturs og Alþjóðahúss efld auk þess sem ráðist verður í tilraunaverkefni í Bolungarvík og Fjarðabyggð til að auðvelda innflytjendum aðlögunina að íslensku samfélagi Lesa meira
 

Verkefnisstjórn um verkefnaflutning milli ríkis og sveitarfélaga - 23.3.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur skipað verkefnisstjórn sem á að fjalla um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði velferðarmála. Jafnframt skipaði félagsmálaráðherra í nefnd sem fjallar um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði málefna fatlaðra.

Lesa meira
 

Viljayfirlýsing ríkisstjórnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga - 23.3.2007

Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir tímabundnu aukaframlagi árin 2007 og 2008 sem nemur 700 milljónum króna hvort ár til að jafna aðstöðumun sveitarfélaga. Viljayfirlýsing þessa efnis var undirrituð í gær. Lesa meira
 

Frumvarp nefndar um endurskoðun jafnréttislaga í umsagnarferli - 22.3.2007

Frumvarp nefndar um endurskoðun laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er komið í opið umsagnarferli og birt á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins.

Lesa meira
 

Fréttabréf 2007:1 - 21.3.2007

Í Fréttabréfi félagsmálaráðuneytisins segir Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra að honum virðist óhjákvæmilegt að herða jafnréttislögin. Vakin er athygli á að frumvarp nefndar sem endurskoðaði lögin sé komið í opið umsagnarferli á heimasíðu ráðuneytisins. Lesa meira
 

Ný skammtímavistun fyrir fötluð börn og ungmenni á Suðurnesjum - 20.3.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra opnaði nú síðdegis nýja skammtímavistun fyrir fötluð börn og unglinga á Suðurnesjum. Nýtt húsnæði og gjörbreytt aðstaða eykur stórlega möguleikana á að mæta mismunandi þjónustuþörf. Lesa meira
 

Breytingar á lögum um lögheimili og brunavarnir - 20.3.2007

Alþingi hefur samþykkt frumvarp til laga um breytingu á lögum um lögheimili og lögum um brunavarnir sem umhverfisnefnd Alþingis lagði fram. Það var byggt á tillögum starfshóps félagsmálaráðherra varðandi búsetu í atvinnuhúsnæði annars vegar og tillögum umhverfisráðherra og Brunamálastofnunar varðandi Hringrásarmálið hins vegar. Lesa meira
 

Innflytjendur - hvalreki eða ógn fyrir landsbyggðina? - 19.3.2007

Getur Ísland tekið við þeim fjölda innflytjenda sem hefur flust hingað eftir frekari opnun Evrópu? Fjölmenningarsetrið og Háskólasetur Vestfjarða telur að ákveðinn ótti hafi einkennt umræðuna og efnir til ráðstefnu á Hömrum á Ísafirði 26. til 28. mars um þátttöku og móttöku innflytjenda í dreifbýli. Lesa meira
 

Ný lög um útsenda starfsmenn framfaraspor - 16.3.2007

Alþingi samþykkti í morgun sem lög frumvarp Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. „Þetta er mikið framfaraspor“, segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Lesa meira
 

Lög sett um aðild starfsmanna að evrópskum samvinnufélögum - 16.3.2007

Alþingi samþykkti í dag sem lög frumvarp Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra um aðild starfsmanna að evrópskum samvinnufélögum. Með slíku félagsformi eru aðilar sem reka starfsemi í fleiri en einu ríki evrópska efnahagssvæðisins losaðir undan óhagræði og kostnaðarauka sem getur fylgt því að stofna útibú á grundvelli mismunandi löggjafar í aðildarríkjunum. Lesa meira
 

Félagsmálaráðherra leggur fram á Alþingi skýrslu um 95. Alþjóðavinnumálaþingið 2006 - 15.3.2007

Ný rammasamþykkt um stefnu í vinnuverndarmálum er birt í skýrslu um 95. Alþjóðavinnumálaþingið, sem haldið var árið 2006, og félagsmálaráðherra Magnús Stefánsson hefur lagt fyrir Alþingi. Einnig eru birt tilmæli um reglur um ráðningarsamband atvinnurekanda og launamanns sem miða að því að koma í veg fyrir gerviverktöku launamanna. Lesa meira
 

Verslunarstörf henta eftirlaunaþegum vel - 15.3.2007

Í viðhorfskönnun sem Rannsóknasetur verslunarinnar lét gera meðal eldri borgara í lok febrúar kemur í ljós að um 66% þeirra sem eru á eftirlaunaaldri, eða eru að komast á þann aldur, telja að verslunarstörf henti eftirlaunaþegum mjög vel eða frekar vel. Lesa meira
 

Ráðherra í veikindaleyfi - 15.3.2007

Vegna inflúensu verður Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra í veikindaleyfi fram í næstu viku. Herdís Á. Sæmundardóttir varaþingmaður tekur sæti Magnúsar á Alþingi í fjarveru hans. Lesa meira
 

„Mótum framtíð“, ráðstefna um félagslega þjónustu - 14.3.2007

Félagsmálaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um það sem efst er á baugi og nýstárlegast í félagslegri þjónustu á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum. Lesa meira
 

Tekið á móti flóttamönnum á hverju ári - 13.3.2007

Að tillögu Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra og Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra hefur ríkisstjórnin markað þá stefnu að tekið verði á móti hópi flóttamanna hér á landi á hverju ári. Lesa meira
 

Sátt um mikilvæg skref í jafnréttisbaráttunni - 8.3.2007

„Sá kynbundni launamunur sem kom fram í könnun Capacent Gallup síðastliðið haust er að mínu mati brýnasta viðfangsefni jafnréttismála í dag,“ segir Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra í grein í Morgunblaðinu i dag á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Lesa meira
 

Tillögur að efldri jafnréttislöggjöf - 7.3.2007

Nefnd undir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur, fyrrverandi hæstaréttardómara, sem félagsmálaráðherra skipaði í fyrrasumar, hefur endurskoðað jafnréttislögin og leggur til lagabreytingar í því skyni að auka skilvirkni laganna og efla úrræði. Lesa meira
 

Íslensk dagskrá á 51. kvennanefndarfundi SÞ í New York - 2.3.2007

Félagsmálaráðuneytið stóð fyrir íslenskri dagskrá á fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York þar sem meðal annars var fjallað um fæðingarorlof feðra og Hjallastefnuna. Lesa meira
 

Aðgerðaáætlun gegn ofbeldi kynnt á 51. kvennanefndarfundi SÞ í New York - 1.3.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra kallaði ofbeldi gegn börnum „andstyggileg mannréttindabrot“ á 51. kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York. Aðalefni fundarins er mismunun og ofbeldi gegn stúlkubörnum. Lesa meira
 

Hækkun lánsfjárhlutfalls og lánsfjárhæðar Íbúðalánasjóðs - 28.2.2007

Lánshlutfall almennra lána Íbúðalánasjóðs hækkar úr 80 prósentum í 90 prósent og hámarksfjárhæð almennra lána hækkar úr 17 í 18 milljónir króna. Lesa meira
 

Endurskoðun á greiðsluhlutfalli Jöfnunarsjóðs vegna húsaleigubóta ársins 2006 - 28.2.2007

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt að leggja til að greiðsluhlutfall sjóðsins vegna greiðslu sveitarfélaga á húsaleigubótum á árinu 2006 væri hækkað úr 40,5 prósentum í 54,8 prósent. Lesa meira
 

Áætluð almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla 2007 - 28.2.2007

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur gert tillögu að áætlun um úthlutun almennra jöfnunarframlaga til sveitarfélaga vegna reksturs grunnskóla á árinu 2007. Lesa meira
 

Áætluð útgjaldajöfnunarframlög 2007 - 28.2.2007

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt að leggja til að áætlun um heildarúthlutun úgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2007, sbr. 13. gr. rgl. nr. 113/2003, nemi 3.700 milljónum króna.

Lesa meira
 

Atvinnuþátttaka á EES-svæðinu - 22.2.2007

Um 83 prósent Íslendinga á aldrinum 15 til 64 ára voru með einhverjum hætti virk á íslenskum vinnumarkaði árið 2005, en meðaltal í ríkjum Evrópusambandsins var rétt ríflega 63 prósent. Lesa meira
 

Endurskoðuð áætlun í jafnréttismálum - 20.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra leggur fram tillögu til þingsályktunar um endurskoðaða áætlun í jafnréttismálum í því skyni að fylgja eftir og meta stöðu verkefna sem hafa verið unnin á því sviði. Jafnréttisáætlunin byggist á fyrri áætlun frá árinu 2004 en þau verkefni sem lokið er hafa verið tekin út og nýjum verkefnum bætt inn þar sem við á. Lesa meira
 

Ávarp á Þjóðahátíð Austurlands 2007 - 19.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra flutti ávarp á fjölsóttri Þjóðahátíð Asturlands á Fáskrúðsfirði í gær, en þar kynntu erlendir Austfirðingar menningu heimalands þeirra. Í ávarpi sínu vakti félagsmálaráðherra athygli á nýrri innflytjendastefnu ríkisstjórnarinnar og veitti viðtöku skýrslu Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um innflytjendamál. Skýrslunni er ætlað að vera leiðarvísir fyrir sveitarfélögin um aðlögun innflytjenda.

Lesa meira
 

Formlegar viðræður ríkis og sveitarfélaga um verkefnaflutning - 16.2.2007

Að tillögu Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra ákvað samráðsfundur ríkis og sveitarfélaga að hefja formlegar viðræður um að sveitarfélög taki að sér fleiri verkefni sem ríkið sinnir. Í því sambandi er rætt um málefni fatlaðra og aldraðra. Lesa meira
 

Yfirlýsing um reglulega móttöku flóttamanna - 15.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra undirrituðu í dag yfirlýsingu í utanríkisráðuneytinu sem styrkir stoðir flóttamannahjálpar hér á landi og tryggir samfellu sem auðveldar áætlanagerð til lengri tíma. Lesa meira
 

Viðbrögð við umræðum um Breiðavíkurheimilið - 13.2.2007

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að bregðast við upplýsingum um brot gegn börnum sem vistuð voru á vegum hins opinbera á Breiðavíkurheimilinu með skipan þverfaglegs sérfræðingateymis á Landspítala –háskólasjúkrahúsi og heildstæðri rannsókn. Lesa meira
 

Leiðrétting á fæðingarorlofsgreiðslum - 13.2.2007

Foreldrar fá leiðréttingu á fæðingarorlofsgreiðslum komi í ljós við endurskoðun Fæðingarorlofssjóðs að þeir hafi orðið fyrir skerðingu vegna þess að mið var tekið af fyrri fæðingarorlofsgreiðslum. Foreldrar eru hvattir til að senda Fæðingarorlofssjóði beiðni um endurupptöku máls síns sem fyrst.

Lesa meira
 

Svar um búsetumál geðfatlaðra í Reykjavík - 9.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur svarað fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur alþingismanns um búsetumál geðfatlaðra í Reykjavík. Lesa meira
 

Skóflustunga að sambýli Styrktarfélags vangefinna - 8.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýju sambýli Styrktarfélags vangefinna að Langagerði 122 í Reykjavík. „Við ætlum okkur ekkert minna en að Ísland verði í fremstu röð meðal þjóða heims í þjónustu við fatlað fólk á næstu árum,“ sagði félagsmálaráðherra við þetta tækifæri. Lesa meira
 

Frumvarp sem tryggir betri sýn yfir vinnumarkaðinn - 8.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi til laga um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. Megintilgangur frumvarpsins er að veita íslenskum stjórnvöldum betri sýn yfir stöðuna á innlendum vinnumarkaði að því er varðar starfsemi erlendra þjónustufyrirtækja sem og fjölda erlendra starfsmanna er starfa hjá slíkum fyrirtækjum. Enn fremur er markmiðið að unnt sé að viðhalda því eftirliti sem tíðkast á íslenskum vinnumarkaði með að ákvæði laga og kjarasamninga séu virt. Lesa meira
 

Svar við fyrirspurn um stuðningsfjölskyldur - 7.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur svarað fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur alþingismanns um stuðningsforeldra. Lesa meira
 

Reglum um fæðingarorlofsgreiðslur breytt - 7.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur afnumið þá framkvæmd að fyrri fæðingarorlofsgreiðslur séu lagðar til grundvallar í tekjuviðmiði þegar annað barn fæðist. Lesa meira
 

Jafnréttisgátlisti fyrir stefnumótun - 7.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur svarað fyrirspurn frá Merði Árnasyni alþingismanni um jafnréttisumsögn með stjórnarfrumvörpum. Hann segist sammála fyrirspyrjanda um að mikilvægt sé að stjórnvöld og aðrir sem koma að stefnumótun og smíði laga og reglugerða hafi jafnréttissjónarmið til hliðsjónar í sínum störfum. Lesa meira
 

EES-vefsvæði félagsmálaráðuneytisins opnað - 6.2.2007

Í heimsókn sinni í sendiráð Íslands í Brussel í síðustu viku opnaði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra sérstakt vefsvæði, Brussel-setrið, sem tileinkað er þeim málaflokkum EES-samningsins sem varða félagsmálaráðuneytið.

Lesa meira
 

Námskeið um hlutverk og stöðu fulltrúa félagsmálanefnda - 6.2.2007

Félagsmálaráðuneytið heldur námskeið fyrir kjörna fulltrúa félagsmálanefnda um hlutverk þeirra og stöðu, hið fyrsta í dag. Námskeiðin eru haldin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtaka sveitarfélaga. Lesa meira
 

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs skipuð - 5.2.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur skipað ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til fjögurra ára. Lesa meira
 

Kvenréttindafélagi Íslands færð gjöf á 100 ára afmæli - 29.1.2007

Á aldarafmæli Kvenréttindafélags Íslands var tilkynnt að ríkisstjórnin hefði að tillögu félagsmálaráðherra ákveðið að færa félaginu 1 milljón króna að gjöf. Með því undirstrikar ríkisstjórnin mikilvægi framlags Kvenréttindafélagsins til jafnréttisbaráttu á Íslandi. Lesa meira
 

Stefna ríkisstjórnarinnar um aðlögun innflytjenda - 24.1.2007

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt stefnu um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi sem innflytjendaráð hefur unnið á undanförnum misserum.

Lesa meira
 

Aukin ábyrgð atvinnurekenda á vinnuvernd - 24.1.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra segir að með nýrri reglugerð um skyldu atvinnurekenda til að gera áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sé ábyrgð vinnuveitenda aukin og kerfisbundnu vinnuverndarstarfi komið á. Meginmarkmið þess sé að greina áhættuþætti þannig að koma megi í veg fyrir slys og vinnutengda sjúkdóma. Lesa meira
 

Styrkveitingum til Byrgisins ses. hætt - 15.1.2007

Félagsmálaráðuneytið hefur ákveðið á grundvelli greinargerðar Ríkisendurskoðunar um fjármál sjálfseignarstofnunarinnar Byrgisins, sem tekin var saman að beiðni ráðuneytisins frá 16. nóvember sl. og afhent ráðuneytinu í dag, 15. janúar, að hætta styrkveitingum til stofnunarinnar. Lesa meira
 

Formleg opnun skrifstofu Fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga - 12.1.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra opnaði í dag að viðstöddu fjölmenni skrifstofu Fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga. Lesa meira
 

Þjónustusamningur um málefni fatlaðra á Eyjafjarðarsvæðinu - 8.1.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu í dag þriggja ára samning um málefni fatlaðra á Eyjafjarðarsvæðinu. Samningsfjárhæð er rúmir 2,2 milljarðar króna. Lesa meira
 

Upplýsingar um Íbúðalánasjóð á mörgum tungumálum - 5.1.2007

Íbúðalánasjóður veitir nú á vefsíðu sinni grunnupplýsingar um íbúðalán sjóðsins á 8 erlendum tungumálum.

Lesa meira
 

Styrkur afhentur RKÍ vegna flóttamanna í Króatíu - 5.1.2007

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur í samráði við flóttamannanefnd ákveðið að veita Rauða krossi Íslands styrk að fjárhæð kr. 3.816.000 til flóttamannaverkefnis í Króatíu. Styrkurinn var afhentur í dag. Lesa meira
 

Fæðingarorlofssjóður fluttist til Vinnumálastofnunar um áramótin - 4.1.2007

Um áramótin fluttist Fæðingarorlofssjóður frá Tryggingastofnun ríkisins til Vinnumálastofnunar. Skrifstofa og meginþjónusta Fæðingarorlofssjóðs er staðsett að Strandgötu 1, 530 Hvammstanga. Lesa meira
 

Greiðslur til Byrgisins stöðvaðar tímabundið - 2.1.2007

Félagsmálaráðuneytið hefur að tilmælum Ríkisendurskoðunar stöðvað tímabundið greiðslur til Byrgisins líknarfélags ses. Ráðuneytið sendi Byrginu ábyrgðarbréf þar um 29. desember sl. Lesa meira
 

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica