Beint í leiðarkerfi vefsins.
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur úthlutað styrkjum úr þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2008. Nítján verkefni hlutu styrk, samtals um 9,6 milljónir króna.
Lesa meiraEinstaklingar sem verða óvinnufærir vegna líffæragjafar geta átt rétt á tekjutengdum greiðslum í þrjá mánuði verði nýtt frumvarp félags- og tryggingamálaráðherra að lögum. Námsmönnum verða einnig tryggð ákveðin réttindi við þessar aðstæður.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur veitt samtals 5 milljónir króna í styrki til hjálparsamtaka sem starfa í þágu heimilislausra og liðsinna fjölskyldum í fjárhagsvanda.
Lesa meiraÍ samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi.
Lesa meiraFrumvarp félags- og tryggingamálaráðherra um stofnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda hefur verið samþykkt sem lög frá Alþingi. Lögin taka gildi 1. janúar næstkomandi.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að senda ekki jólakort með kveðjum ráðherra og starfsfólks ráðuneytisins en styrkja þess í stað Einstök börn, stuðningsfélag barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma, um 250.000 krónur sem er andvirði hefðbundinna jólakortasendinga.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra mælti fyrir á Alþingi í dag frumvarpi um stofnun þjónustu- og þekkinarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda.
Lesa meiraVerkefnisstjórn 50+ stendur fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 19. nóvember 2008 kl. 8.30–10.00 á Grand hóteli í Reykjavík þar sem fjallað verður um stöðu miðaldra og eldra fólks nú þegar þrengir að á vinnumarkaði.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, ávarpaði málþing Almannaheilla í dag. Á þinginu var rætt hvernig íslensk samtök sem starfa í almannaþágu geti bruðist við afleiðingum fjármálakreppunnar og átt þátt í því að byggja upp nýtt og betra samfélag.
Lesa meiraEfnt var til afmælishátíðar í Þjóðmenningarhúsinu 1. nóvember síðastliðinn í tilefni tíu ára afmælis Barnahúss. Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður félags- og tryggingamálaráðherra, flutti þar ávarp fyrir hönd Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra fjallaði um alvarlega stöðu á vinnumarkaði og mögulegar aðgerðir til að sporna við vaxandi atvinnuleysi þegar hún ávarpaði ársfund Vinnumálastofnunar sem haldinn er í dag.
Lesa meiraHuga þarf að breyttu skipulagi í öldrunarþjónustu þannig að verkefnum sé sinnt sem best og á sem hagkvæmastan hátt. Þetta kom fram í ávarpi félags- og tryggingamálaráðherra á fundi Félags stjórnenda í öldrunarþjónustu sem haldinn var í dag.
Lesa meiraHöfum við hagsmuni barna að leiðarljósi? er yfirskrift málþings um fjölskyldumál á Íslandi sem haldið verður á Grand Hóteli Reykjavík mánudaginn 27. október næstkomandi. Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.
Lesa meiraAlcoa Fjarðaál hlaut í dag árlega viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir störf sín í á sviði jafnréttismála. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, afhenti verðlaunin.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við Staðlaráð Íslands að það hafi umsjón með gerð staðals um launajafnrétti kynjanna sem atvinnurekendur geta síðan fengið formlega vottun fyrir.
Lesa meiraÞau áföll sem riðið hafa yfir þjóðina á síðustu vikum hafa skapað ríkari nauðsyn en ella til að huga sérstaklega vel að öflugu vinnuverndarstarfi sagði í ávarpi félags- og tryggingamálaráðherra við upphaf vinnuverndarviku sem sett var í dag.
Lesa meiraÍ samræmi við tilmæli félags- og tryggingamálaráðherra og samkomulags ráðuneytisins, Íbúðalánasjóðs og Reykjavíkurborgar hefur verið ákveðið að auka þjónustu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna vegna núverandi aðstæðna í efnahagslífi þjóðarinnar. Fjármagn hefur verið tryggt til að efla þjónustuna.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur með reglugerðarbreytingu rýmkað heimildir Íbúðalánasjóðs til að koma til móts við lántakendur sem lenda í greiðsluvanda. Íbúðalánasjóður hefur jafnframt mildað innheimtuaðgerðir stofnunarinnar með tilliti til ástands efnahagsmála.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra kallaði eftir samheldni þjóðarinnar í þeim efnahagslegu erfiðleikum sem nú er við að etja um allan heim í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í gærkvöldi.
Lesa meiraFimm sóttu um embætti ríkissáttasemjara sem auglýst var laust til umsóknar 7. september síðastliðinn en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðuneytið stendur nú fyrir könnun á ofbeldi gegn konum sem er liður í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn ofbeldi.
Lesa meiraÞann 27. október næstkomandi stendur nefnd um einstæða og forsjárlausa foreldra og stjúpfjölskyldur fyrir ráðstefnu um fjölskyldumál á Grand Hóteli kl. 12.30-17.00.
Lesa meiraÁ vettvangi félags- og tryggingamálaráðuneytisins er nú unnið að því að færa umsjón með vinnumálum fatlaðra til Vinnumálastofnunar. Gert er ráð fyrir því að þessi breyting geti átt sér stað um næstu áramót sagði ráðherra þegar hún ávarpaði ráðstefnu félagsins Fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur 27. september 2008.
Lesa meiraVinátta, virðing og ábyrgð eru meðal mikilvægra forsendna jafnréttis kynja og jafnréttis í víðum skilningi. Þetta eru þættir sem Hjallastefnan leggur mikla rækt við og stuðlar að á markvissan hátt í orði og verki sagði félags- og tryggingamálaráðherra þegar hún ávarpaði starfsmenn Hjallastefnunnar á ráðstefnu þeirra í dag.
Lesa meiraÞátttaka eldra fólks á vinnumarkaði er og verður áfram lykill að velferð samfélagsins sagði félags- og tryggingamálaráðherra á ráðstefnu verkefnisstjórnar 50+ sem haldin var í dag undir yfirskriftinni: Eldri starfsmenn - akkur vinnustaða.
Lesa meiraMeginvandi þjónustu við börn með athyglisbrest og ofvirkni eru óskýr mörk milli stjórnvalda og óljós verkaskipting. Stjórnvöldum ber að leysa þann vanda og að því er unnið sagði félags- og tryggingamálaráðherra við upphaf ráðstefnu ADHD samtakanna sem nú stendur yfir.
Lesa meiraÞað hefur sýnt sig að stuðningur við konur í atvinnulífinu skilar árangri og góðum verkefnum sagði félags- og tryggingamálaráðherra við opnun nýrrar heimasíðu verkefnis um atvinnumál kvenna í dag (www.atvinnumalkvenna.is). Framlag til verkefnisins var tvöfaldað á þessu ári.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, opnaði í dag formlega nýja heimasíðu þróunarverkefnisins Jafnrétti í skólum. Heimasíðan er aðgengilegur gagnabanki með fróðleik fyrir alla þá sem vilja fræða og fræðast um jafnrétti kynjanna.
Lesa meiraÉg dáist að hugrekki ykkar og viljastyrk sagði félags- og tryggingamálaráðherra við flóttakonurnar frá Al Walleed þegar hún ávarpaði þær við mótttöku sem bæjarstjórn Akraness hélt þeim og börnum þeirra í dag.
Lesa meiraPalestínsku flóttamennirnir úr Al-Walleed flóttamannabúðunum í Írak komu til landsins í gær. Þetta eru átta konur og börn þeirra, tíu stúlkur og ellefu drengir. Þau hafa nú öll fengið nýtt heimili á Akranesi.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, er nú stödd í Peking á opnunarhátíð Ólympíuleika fatlaðra sem fram fer í dag. Fimm íslenskir afreksmenn keppa á leikunum.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað úrskurðarnefnd frístundahúsamála í samræmi við lög um frístundabyggð sem tóku gildi 1. júlí.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra kynnti stöðu mála á vinnumarkaði á fundi ríkisstjórnar í morgun.
Lesa meiraUnnið hefur verið að endurbótum og leiðréttingum á eldri húsaleigubótabæklingi. Nú liggur fyrir 11. útgáfa bæklingsins um húsaleigubætur.
Lesa meiraViðskiptavinir Tryggingastofnunar ríkisins geta nú fengið ýmsa mikilvæga þjónustu á netinu með nýja þjónustuvefnum Trygg sem opnaður var í dag. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, lýsti ánægju með þessa nýjung í ávarpi sem hún flutti við opnunina.
Lesa meiraClaus Hjort Frederiksen, atvinnumálaráðherra Danmerkur, og Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, ræddu ýmis málefni á sviði velferðar- og vinnumála á fundi í morgun. Ráðherrann er í stuttri heimsókn til þess að kynna sér þessi mál á Íslandi.
Lesa meiraHinn 1. ágúst síðastliðinn tóku gildi breytingar á lögum um útlendinga, nr. 96/2002. Á heimasíðu Fjölmenningarseturs má sjá í stuttu máli hvaða áhrif breytingarnar hafa á rétt útlendinga til dvalar á Íslandi á fjórum erlendum tungumálum auk íslensku.
Lesa meiraÁkvörðun hefur verið tekin um úthlutun úr Framkvæmdasjóði fatlaðra árið 2008. Alls er úthlutað rúmum milljarði króna úr sjóðnum sem verður að stærstum hluta varið til uppbyggingar búsetuúrræða fyrir fatlaða.
Lesa meiraSamþykkt hefur verið reglugerð sem heimilar Íbúðalánasjóði lánveitingar til fjármálafyrirtækja í þeim tilgangi að endurfjármagna tímabundið íbúðalán sem þessi fyrirtæki hafa veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði.
Lesa meiraEftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent frá sér ákvarðanir í tengslum við formlegt rannsóknarferli sem hófst í júní 2006 í kjölfar dóms EFTA-dómstólsins frá apríl 2006 þar sem hnekkt var niðurstöðu stofnunarinnar frá því í ágúst 2004.
Lesa meiraRíkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, um að veita 5 milljarða króna lánsfjárheimild til Íbúðalánasjóðs vegna leiguíbúða.
Lesa meiraHámarkslán Íbúðalánasjóðs hækka í 20 milljónir króna og lánsviðmið verður allt að 80% af kaupverði íbúðar samkvæmt reglugerðum sem félags- og tryggingamálaráðherra undirritaði í dag.
Lesa meiraNý þjónustumiðstöð fyrir aldraða var formlega tekin í notkun á Nesvöllum í Reykjanesbæ 14. júní. Félagsþjónusta Reykjanesbæjar er þar til húsa, auk tómstundaaðstöðu, mötuneytis og dagvistar fyrir aldraða.
Lesa meiraÞing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) samþykkti 10. júní síðastliðinn yfirlýsingu um félagslegst réttlæti á alþjóðavettvangi og hvernig mæta megi mögulegum neikvæðum áhrifum alþjóðavæðingar efnahagslífsins á félags- og vinnumál í heiminum.
Lesa meiraBygging 44 rýma hjúkrunarheimilis sem reist verður við Boðaþing í Kópavogi hefur verið boðin út. Tilboð verða opnuð 22. júlí næstkomandi. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2009.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur sett nýja reglugerð um mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými.
Lesa meiraFramkvæmdir eru hafnar við byggingu hjúkrunarheimilis við Suðurlandsbraut 66 í Reykjavík. Verkið annast fyrirtækið Jáverk ehf. sem átti lægsta tilboð þeirra fjórtán sem buðu í framkvæmdina. Tilboðinu var tekið 23. maí og er vinna þegar hafin.
Lesa meiraÞingsályktun um framkvæmdaáætlun í barnaverndarmálum sem samþykkt var samhljóða á Alþingi í lok vorþings hefur verið birt.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, setti í dag að tillögu stjórnar Íbúðalánasjóðs reglur til að aðstoða þolendur náttúruhamfara með frestun eða skuldbreytingu á lánum sjóðsins.
Lesa meiraRíkisstjórnin hefur samþykkt tillögu félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra um að ráðist verði í gerð lagafrumvarps til að styrkja réttarstöðu lifandi líffæragjafa, einkum til að bæta tekjumissi og mæta kostnaði einstaklinga sem hlotist getur af líffæragjöf.
Lesa meiraÍslensk sendinefnd skipuð fulltrúum flóttamannanefndar og Útlendingastofnunar lagði í dag af stað til flóttamannabúðanna Al Waleed í Írak til að taka viðtöl við flóttafólk sem boðið verður hæli hér á landi nú í haust.
Lesa meiraAlþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof er varða réttindi foreldra í fæðingarorlofi. Breytingarnar taka til réttinda foreldra sem hafa eignast börn, ættleitt börn eða tekið börn í varanlegt fóstur 1. júní 2008 eða síðar.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, lýsti ánægju með endurbætur á húsnæði Hrafnistu í Reykjavík í ávarpi sem hún flutti við hátíðlega athöfn sem þar var haldin á sjómannadaginn við vígslu endurbótanna.
Lesa meiraSamband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir kynningu á áætlunum Evrópusambandsins á ráðstefnu 3. júní 2008 þar sem fjallað verður um möguleg sóknarfæri sveitarfélaga, landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga á sviði Evrópusamstarfs.
Lesa meiraFjögur frumvörp félags- og tryggingamálaráðherra voru samþykkt sem lög frá Alþingi í gær auk tveggja þingsályktunartillagna.
Lesa meiraUndirritaður var í dag samningur um rannsókn á ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum. Rannsóknin hefst í haust.
Lesa meiraMiklu skiptir að stjórnendur fyrirtækja sýni í verki skilning á því að hagsmunir starfsmanna eru hagsmunir fyrirtækisins sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, þegar hún flutti ávarp við útskrift Stóriðjuskóla ÍSAL.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, keypti í morgun fyrsta álfinn í árlegri álfasölu SÁÁ. Allur ágóði af álfasölunni rennur til unglingadeildar SÁÁ á Vogi.
Lesa meiraHinn 19. september 2008 verður haldin ráðstefna um fjölbreytileika í stjórnun fyrirtækja í Salnum í Kópavogi. Með þessari ráðstefnu lýkur verkefninu um jafnréttiskennitöluna.
Lesa meiraHátt á annað hundrað tillögur bárust í samkeppni um merki og stef dags barnsins sem haldinn var í fyrsta sinn á Íslandi 25. maí síðastliðinn.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, ávarpaði börn í Laugarnesskóla þegar kynnt voru veggspjöld með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Lesa meiraGera þarf störf í öldrunarþjónustu eftirsóknarverð þannig að mannekla og mikil starfsmannavelta standi ekki í vegi fyrir nægu framboði þjónustu og dragi úr gæðum hennar. Þetta kom meðal annars fram í ávarpi félags- og tryggingamálaráðherra á aðalfundi Öldrunarráðs Íslands í dag.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðuneytið hefur til fróðleiks tekið saman upplýsingar um móttöku flóttafólks undanfarin ár í ljósi mikillar opinberrar umræðu undanfarið.
Lesa meiraVelmegun Íslendinga má ekki snúast upp í græðgi og ábyrgðarleysi sagði meðal annars í ávarpi Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, í móttöku sem haldin var í tilefni 80 ára afmælis Mæðrastyrksnefndar.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, lagði áherslu á samfélagslega ábyrgð og skyldur þegar hún fjallaði um aðstæður heimilislausra á málþingi um heimilislausar konur sem haldið var í dag.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, boðar endurskoðun á reglugerð um bifreiðamál hreyfihamlaðra en fjárhæðir uppbóta og styrkja hafa ekki hækkað í mörg ár. Þetta kom meðal annars fram í ávarpi hennar á þingi Sjálfsbjargar í dag.
Lesa meiraÁður en árið er liðið munu þeir lífeyrisþegar sem verst eru settir hafa fengið einhverjar mestu kjarabætur sem um getur í langan tíma. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, í ávarpi sínu á sambandsstjórnarfundi Landssambands eldri borgara.
Lesa meiraÍ tilefni fréttar í Morgunblaðinu í dag, 8. maí 2008, vill Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, koma eftirfarandi á framfæri.
Lesa meiraFjölga þarf úrræðum fyrir börn sem greinast með þroskafrávik og geðraskanir og koma í veg fyrir að togstreita milli ráðuneyta, ríkis og sveitarfélaga um greiðslu kostnaðar fyrir meðferð og úrræði bitni á þjónustu við börn. Þetta kom meðal annars fram í ávarpi Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, á vorþingi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.
Lesa meiraRáðstefnan um umfjöllun fjölmiðla um innflytjendur og afbrot var vel sótt, en þar komu saman innflytjendur, starfsfólk sem vinnur að málefnum innflytjenda, fræðimenn, lögregla, fjölmiðlafólk og fleiri.
Lesa meiraBæklingurinn Konur og karlar á Íslandi 2008 er kominn út. Þar er að finna samantekt á helstu tölum um hlutfall kynjanna í ýmsum málaflokkum. Bæklingurinn er einnig gefinn út á ensku.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, opnaði formlega nýtt Foreldrahús Vímulausrar æsku í gær að Borgartúni 6 í Reykjavík.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, ávarpaði aðalfund Aðstandendafélags aldraðra sem haldinn var í Hafnarfirði 10. apríl síðastliðinn.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, þar sem lagt er til að á tímabilinu 1. júlí 2008 til 1. janúar 2009 geti öryrkjar valið um að hafa 100.000 kr. frítekjumark á mánuði vegna atvinnutekna eða telja 60% af atvinnutekjum til tekna við útreikning tekjutryggingar.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra afhenti Franch Michelsen úrsmíðameistara og Gullkúnst Helgu við Laugaveginn fyrstu viðurkenningar MND-félagsins um að aðgengi verslananna væri til fyrirmyndar fyrir hjólastóla.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðuneytið og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hafa ákveðið að efna til samstarfs um rekstur á nýju búsetuúrræði með félagslegum stuðningi fyrir allt að 20 einstaklinga. Á næstu þremur árum mun félags- og tryggingarmálaráðuneytið leggja verkefninu til 85,6 milljónir króna.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, undirritaði í dag reglugerð sem kveður á um hækkun húsaleigubóta frá og með 1. apríl 2008. Húsaleigubætur hafa ekki hækkað frá árinu 2000. Einnig mun ríkið nú í fyrsta skipti koma að greiðslu sérstakra húsaleigubóta.
Lesa meiraAmal Tamimi er fyrsti innflytjandinn sem hefur stýrt fundum innflytjendaráðs, meðal annars þeim fundi ráðsins þegar tillaga til félags- og tryggingamálaráðherra um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda var samþykkt.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, ávarpaði fund Félags eldri borgara í Hafnarfirði þegar 40 ára afmælis þess var minnst 25. mars síðastliðinn.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, ávarpaði aðalfund Öldrunarfræðafélags Íslands sem haldinn var 27. mars síðastliðinn.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, staðfesti föstudaginn 28. mars síðastliðinn tillögu ráðgjafarnefndar Varasjóðs húsnæðismála um rekstrarframlög vegna leiguíbúða sveitarfélaga fyrir árið 2007. Framlögin eru veitt á grundvelli laga um húsnæðismál og reglugerðar um Varasjóðinn.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur undirritað reglugerð sem kveður á um hækkun lífeyris almannatrygginga hjá öryrkjum og ellilífeyrisþegum frá og með 1. febrúar síðastliðnum.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðuneytið og samráðshópur ráðuneyta um framkvæmd aðgerðaáætlunar ríkisstjórnarinnar í málefnum barna stóð fyrir fjölmennri ráðstefnu á Grand Hótel Reykjavík í dag um eflingu foreldrafærni.
Lesa meiraEfnt er til opins málþings miðvikudaginn 12. mars næstkomandi um reynslu og ávinning kanadískra fyrirtækja af því að hafa fjölbreytni starfsmanna í fyrirrúmi. Tilgangurinn er að benda íslenskum fyrirtækjum, stofnunum og starfsfólki á þau tækifæri er felast í fjölbreytni starfsmanna.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur falið Framkvæmdasýslu ríkisins að bjóða út byggingu hjúkrunarheimilis fyrir 110 aldraða við Suðurlandsbraut 66 í Reykjavík. Áætlað er að nýtt heimili verði tekið í notkun um mitt ár 2010.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðuneytið og samráðsnefnd ráðuneytanna um framkvæmd aðgerðaáætlunar til að styrkja stöðu barna og ungmenna efna til ráðstefnu 17. mars næstkomandi. Tilgangurinn er að kynna ólíkar aðferðir til eflingar foreldrafærni, hérlendis sem erlendis.
Lesa meiraÍ dag voru samþykkt á Alþingi ný lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem ætlað er að leysa af hólmi eldri lög um sama efni. Í lögunum er að finna ýmis nýmæli auk þess sem einstaka ákvæði eldri laga eru skýrð nánar.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað nefnd til að kanna hvort lög og reglugerðir hér á landi uppfylli kröfur sem lagðar eru á þau ríki sem fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun sem undirritaður var af hálfu Íslands 30. mars 2007.
Lesa meiraRáðstefna um foreldrafærni verður haldin mánudaginn 17. mars 2008 kl. 9–17 á Grand Hótel Reykjavík.
Lesa meiraRáðgjafamiðstöðin Sjónarhóll stóð fyrir málþinginu „Á ég að gæta bróður míns?“ fimmtudaginn 7. febrúar síðastaliðinn þar sem fjallað var um systkini barna með sérþarfir.
Lesa meiraHinn 4. febrúar síðastliðinn héldu félags- og tryggingamálaráðuneytið og Barnaverndarstofa málþing um drög að stefnumarkandi áætlun ríkisins um barnavernd. Til málþingsins voru boðaðar sveitarstjórnir og barnaverndarnefndir, auk félagasamtaka og annarra aðila er málefnið snerta.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur skipað fulltrúa í átta svæðisráð í málefnum fatlaðra.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur skipað Sigríði Lillý Baldursdóttur í embætti forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins. Skipun þessi er til fimm ára frá og með 6. febrúar 2008. Fimm umsækjendur voru um stöðuna.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um frístundabyggð. Með frumvarpinu er réttarstaða leigutaka lóða undir frístundahús bætt og meðal annars lagt til að þeir fái einhliða rétt til að framlengja leigusamning ef ekki semst um áframhaldandi leigu við landeiganda.
Lesa meiraHinn 5. febrúar næstkomandi kl. 8.00-10.00 munu Straumhvörf - efling þjónustu við geðfatlaða og Samtök atvinnulífsins standa fyrir morgunverðarfundi um félagsleg fyrirtæki og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja á Hilton Reykjavík Nordica.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað í samstarfsnefnd um málefni aldraðra í kjölfar flutnings málefna aldraðra frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og tryggingamálaráðuneytisins um áramótin. Formaður nefndarinnar er Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað sérstakan starfshóp sem hefur það hlutverk að fjalla um með hvaða hætti standa megi að gerð og framkvæmd heildstæðrar áætlunar um aðgerðir gegn mansali á Íslandi.
Lesa meiraÍ samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og félags- og tryggingamálaráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar í febrúar næstkomandi ef næg þátttaka fæst.
Lesa meiraErindi frá málþingi innflytjendaráðs og félags- og tryggingamálaráðuneytis um málefni innflytjenda 11. janúar 2008 eru komin á heimasíðu ráðuneytisins.
Lesa meiraÍ dag var dreift á Alþingi frumvarpi félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum.
Lesa meiraInnflytjendaráð og félagsmálaráðuneytið stóðu fyrir málþinginu. Í lokaávarpi Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, kom fram að vinnan við áætlunina er eitt af forgangsmálum félags- og tryggingamálaráðuneytis og tímabært sé að hugleiða lagasetningu um málefni innnflytjenda.
Lesa meiraJóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, heimsækir nú hjúkrunarheimili og öldrunarstofnanir og kynnir sér starfsemi þeirra og uppbyggingu.
Lesa meiraÍ gær heimsótti Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Tryggingastofnun ríkisins en frá síðustu áramótum heyrir stofnunin undir félags- og tryggingamálaráðuneytið.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra skal uppreikna árlega tekju- og eignamörk í reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr. 873/2001. Við þann uppreikning skal miða við hækkun á neysluverðsvísitölu á nýliðnu ári.
Lesa meiraViðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta tekur breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á neysluverðsvísitölu.
Lesa meiraÍ tilefni Evrópuársins 2007, árs jafnra tækifæra, hefur verið gefið út trúarbragðadagatal fyrir árið 2008. Með dagatalinu er ætlunin að vekja áhuga og athygli á þeim fjölda trúarbragða og hátíða sem iðkuð eru um allan heim.
Lesa meira