Hækkun á framlögum til sveitarfélaga 2006
Heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga 2006
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt að leggja til að heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga ársins 2006, sbr. 13. gr. rgl. nr. 113/2003, hækki úr 3.100 m.kr. í 3.700 m.kr eða sem nemur 600 m.kr. Tekið verður tillit til þeirrar hækkunar við uppgjör framlaganna sem fram fer fyrir jól.
Endanleg útgjaldajöfnunarframlög 2006
Framlög til jöfnunar á tekjutapi sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti
Nefndin lagði jafnframt til hækkun á heildarúthlutun framlaga vegna jöfnunar á tekjutapi sveitarfélaga í kjölfar breytinga á álagningarstofni fasteignaskatts á grundvelli reglugerðar nr. 80/2001 með síðari breytingum. Framlögin hækka úr 1.950,7 m.kr. í 2.279,5 m.kr. eða um 328,8 m.kr.
Endanleg fasteignaskattsframlög 2006
Tekjujöfnunarframlög 2006
Farið hefur fram endurskoðun á útreikningi tekjujöfnunarframlaga fyrir árið 2006, sbr. 12. gr. rgl. nr. 113/2003. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna 2005. Ráðgjafarnefndin lagði til að endanleg tekjujöfnunarframlög ársins næmu 1.085,5 m.kr.
Endanleg tekjujöfnunarframlög 2006
700 millj. kr. aukaframlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2006.
Að tillögu tekjustofnanefndar frá 17. mars 2005 greiðist árlega sérstakt 700 milljón króna aukaframlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árunum 2006 – 2008. Framlaginu er ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir sérstakt viðbótarframlag vegna þróunar í rekstrarumhverfi þeirra og erfiðra ytri aðstæðna.
Á grundvelli 2. gr. reglna nr. 723/2006 um ráðstöfun aukaframlagsins komu 350,0 m.kr. til greiðslu 1. september sl. vegna íbúafækkunar í sveitarfélögum á árunum 2001 – 2005.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs hefur nú samþykkt tillögu, sbr. 3. gr. reglnanna nr. 723/2006, að úthlutun 350,0 m.kr. framlags til sveitarfélaga þar sem hlutfallsleg hækkun útsvarsstofns milli áranna 2000 og 2005 er lægri en hlutfallsleg hækkun ársmeðaltals launavísitölu fyrir sama tímabil.
Einungis kemur til úthlutunar framlags ef heimild sveitarfélags til útsvarsálagningar fyrir tekjuárið 2006 er fullnýtt af sveitarstjórn.
Félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá fundi nefndarinnar 14. desember sl. og mun uppgjör framangreindra framlaga fara fram fyrir jól.