Hoppa yfir valmynd
26. ágúst 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Byltingarkennd nýjung í þjónustu Tryggingastofnunar

Jóhanna við opnun þjónustuvefs TryggingastofnunarViðskiptavinir Tryggingastofnunar ríkisins geta nú fengið ýmsa mikilvæga þjónustu á netinu með nýja þjónustuvefnum Trygg sem opnaður var í dag. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra lýsti ánægju með þessa nýjung í ávarpi sem hún flutti við opnunina.

Til að byrja með verður á þjónustuvefnum haldið utan um greiðsluyfirlit og tekjuáætlanir og bráðabirgðaútreikningar síðast en ekki síst verður hægt að fá bráðabirgðaútreikning á netinu. Ráðherra sagði ljóst að þetta væri gífurleg framför fyrir viðskiptavini, ekki síst að geta fengið tafarlausan bráðabirgðaútreikning á greiðslum stofnunarinnar til sín og áttað sig þannig á stöðu sinni hverju sinni. Með þessari þjónustu sigldi Tryggingastofnun ríkisins nú hraðbyrði inn í upplýsingaöldina, stórbætti og efldi þjónustu við viðskiptavini sína og gerði hana aðgengilegri.

Tenging frá vef ráðuneytisinsÁvarp Jóhönnu Sigurðardóttur við opnun Tryggs



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum