Hoppa yfir valmynd
3. október 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Styrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála 2008

Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði innflytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á eftirfarandi viðfangsefni:

  • Stöðu innflytjenda á vinnumarkaði meðal annars í ljósi breytts efnahagsástands; starfsþjálfun, starfsnám, réttindi og skyldur.
  • Fræðslu gegn fordómum og aðrar aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun eða fordóma vegna uppruna, kynþáttar eða trúarbragða.

Önnur verkefni koma einnig til álita.

Verkefni skulu vera í samræmi við og í anda stefnu ríkisstjórnarinnar um aðlögun innflytjenda.

Styrkir verða almennt veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 10 milljónir króna. Styrkir geta verið að hámarki helmingur heildarkostnaðar verkefnis.

Umsóknarfrestur er til 31. október 2008. Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði sem eru á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytis. Þar er einnig að finna stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda, framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda og reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði styrkveitinga. Trúnaðar er gætt við meðferð umsókna.

Nánari upplýsingar fást í félags- og tryggingamálaráðuneyti í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið: [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum