Verkefni um gerð fjölskylduvefs
7/6/2001
Félagsmálaráðuneytið í samstarfi við Fjölskylduráð hefur nú ráðist í verkefni um gerð sérstaks fjölskylduvefs. Starfsmaður hefur verið ráðinn í sumar til að kanna hvort grundvöllur sé fyrir að koma slíkum vefi á laggirnar. Ef til framkvæmda kemur verður það markmið vefsins að auka aðgengi almennings að upplýsingum á netinu er varða málefni fjölskyldunnar. Þeir sem eru áhugasamir um fjölskylduvefinn eru hvattir til að hafa samband og geta sent tölvupóst á
hledis.sigurdardottir@fel.stjr.is