Eldri fréttir FEL

Fagnar frumkvæði SP-fjármögnunar

26.5.2010

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra fagnar frumkvæði SP-fjármögnunar til umbreytingar gengistryggðra bílalána, í samræmi við það frumvarp sem ráðherra hefur lagt fram á Alþingi um sama efni:

arnimask„Þetta frumkvæði sýnir svo ekki verður um villst að svigrúm er til slíkra aðgerða hjá eignaleigufyrirtækjunum,“ segir ráðherra. „Lagafrumvarpið mun tryggja að allir lántakendur njóti þessa sama réttar, hver sem lánveitandinn er. Þá er rétt að árétta að falli dómur Hæstaréttar um lögmæti gengistryggðra lána á þann veg að lántakendur fái meiri rétt með þeim dómi en þeim úrræðum sem leiða af tilboðum einstakra fyrirtækja eða frumvarpi ráðherra um bílalán, munu allir lántakendur njóta þess.“


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica