Eldri fréttir FEL

Ráðin aðstoðarmaður heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra

8/9/2010

Anna Sigrún BaldursdóttirAnna Sigrún Baldursdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðbjarts Hannessonar heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra.

Anna Sigrún var áður aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar, fyrrverandi félags- og tryggingamálaráðherra, sem nú gegnir embætti efnahags- og viðskiptaráðherra.

Anna Sigrún starfaði á Landspítalanum við fjármálráðgjöf frá 2007–2009 og þar áður við heilbrigðisþjónustu hérlendis og í Svíþjóð.

Anna Sigrún lauk hjúkrunarfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1995 og MBA-prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007.

Senda grein

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: