Fylgiskjöl

Styrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2009

 

  • Hera Ósk Einarsdóttir hlaut styrk til rannsóknarinnar Áhrif efnahagsástandsins á stöðu pólskra íbúa Reykjanesbæjar. Markmiðið er að kanna stöðu og aðstæður pólskra íbúa Reykjanesbæjar eftir efnahagshrunið. Rannsóknin hlaut styrk að fjárhæð 800.000 kr.
  • InterCultural Ísland hlaut styrk til að rannsaka nýtingu menntunar og mannauðs innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði. Í rannsókninni verður leitast við að ná til einstaklinga sem hafa menntun frá upprunalandi sínu og störfuðu þar í sérhæfðum störfum sem tengdust menntun þeirra og greina ástæður þess að fólk af erlendum uppruna starfar frekar í ósérhæfðum störfum á Íslandi. Rannsóknin hlaut styrk að fjárhæð 1.000.000 kr.
  • Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hlaut styrk til rannsóknarinnar Þjóðhagsleg þýðing innflytjenda á vinnumarkaði. Í rannsókninni verður könnuð staða útlendinga á íslenskum vinnumarkaði og hvaða störf þeir mönnuðu í góðærinu og hvaða áhrif atvinnuleysið hefur haft á þennan hóp. Rannsóknin hlaut styrk að fjárhæð 1.000.000 kr.
  • Kristinn Jón Bjarnason hlaut styrk fyrir rannsóknina Heyrnalausir nýbúar á Íslandi. Í rannsókninni verður kannað verður hvernig heyrnalausum innflytjendum hefur tekist að aðlagast lífinu á Íslandi. Rannsóknin hlaut styrk að fjárhæð 400.000 kr.
  • Borgarbókasafn Reykjavíkur hlaut styrk í verkefnið Söguhringur kvenna. Um er að ræða samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Markmiðið með verkefninu er að stuðla að þátttöku erlendra kvenna í íslensku samfélagi, styrkja tengsl kvennanna og styrkja hæfileikann til að tjá sig meðal annarra. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 200.000 kr.
  • Miðberg og Þjónustumiðstöð Breiðholts hlutu styrk í verkefnið Ísjakar á sólarströnd en tilgangur verkefnisins er að rjúfa einangrun kvenna og barna af erlendum uppruna með fræðslu og kynna þeim leiðir til sjálfshjálpar í nærumhverfi sínu. Styrkja á konurnar til að hittast, leita sér fræðslu og taka þátt í samfélaginu. Kynna á fyrir konunum og börnunum það fjölbreytta starf sem fer fram í frístundastarfi barna, unglinga og fullorðinna í hverfinu, svo og kynna menningarstarf borgarinnar almennt, til dæmis bóka-, byggða- og listasöfn. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 500.000 kr.
  • Félagsmiðstöðin Pleizið í Dalvíkurbyggð hlaut styrk í verkefnið Allir með. Markmið verkefnisins er að tengja nemendur af erlendum uppruna betur við samnemendur sína og samfélagið á staðnum. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 675.000 kr.
  • Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi hlaut styrk í verkefnið Taktu þátt 30+. Verkefnið felst í því að gefa konum af erlendum uppruna á Íslandi tækifæri til að vera virkir þátttakendur í íslensku samfélagi, koma í veg fyrir einangrun þeirra og gera þeim kleift að nýta menntun og kunnáttu sína til fulls. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 400.000 kr.
  • Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir hlaut styrk í verkefnið Upplýsingaefni á Tungumálatorgi. Markmið verkefnisins er að þróa áfram tenglasafn þannig að einstaklingum og stofnunum verði auðveldað að birta tenglana að hluta eða í heild á heimasíðum sínum. Um er að ræða framhald á verkefni sem hlaut styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála árið 2008. Unnt er að skoða vefinn á http://fjolvaki.mcc.is/ Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 750.000 kr.
  • Móðurmál hlaut styrk til verkefnisins Móðurmálskennsla barna af erlendum uppruna: Endurmenntun og starfsþjálfun kennara. Markmiðið er að efla kennslufræðilega færni og þekkingu þeirra kennara sem leggja stund á móðurmálskennslu barna af erlendum uppruna. Kennararnir koma allir út röðum innflytjenda og eru búsettir hérlendis. Gildi verkefnisins er að tryggja faglegar áherslur í vinnu með tvítyngdum börnum innflytjenda. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 400.000 kr.
  • Garðabæjardeild Rauða kross Íslands hlaut styrk í verkefnið Félagsvinur – Mentor er málið, félagsvinur karla af erlendum uppruna í atvinnuleit. Markmið verkefnisins er að sjálfboðaliði aðstoði og leiðbeini við leitun að úrræðum sem geta gagnast innflytjanda í atvinnuleit. Sambandið tekur mið af þörfum innflytjandans. Hlutverk sjálfboðaliðans er að hvetja til virkni meðan á atvinnuleit stendur, aðstoða við að setja raunhæf markmið og sýna stuðning við eftirfylgni þeirra, auk þess getur sambandið leitt til aukinnar þekkingar á íslensku samfélagi og rofið félagslega einangrun. Samstarf er við Eflingu og Vinnumálastofnun. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 250.000 kr.
  • Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Tungumálaver í Laugalækjarskóla hlutu styrk í verkefnið Vettvangur ólíkra menningarheima í íslensku skólasamfélagi. Tilgangur verkefnisins er að styrkja jákvæða reynslu af samstarfi skóla, foreldra og nemenda og koma þeirri reynslu í farveg sem nær til foreldra á öllu landinu. Skapa á virkt tengslanet foreldra innflytjendabarna um félagslegt öryggi barna sinna í skólum landsins og stuðla að virkri þátttöku þeirra í námi barna sinna. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 750.000 kr.
  • Fjölmenning ehf. hlaut styrk til þess að þróa námsefni fyrir ólæsa fullorðna innflytjendur. Ætlunin er að gefa út kennsluefni fyrir ólæsa fullorðna innflytjendur og þá sem ekki eru læsir á latneskt stafróf. Kennsluefnið mun samanstanda af lestrarbók, verkefnabók og hljóðbók. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 250.000 kr.
  • Leikskólasvið Reykjavíkurborgar hlaut styrk til þýðingar á handbók fyrir foreldra af erlendum uppruna um starf leikskóla. Handbók verður gefin út og þýdd á sjö algengustu tungumálin sem töluð eru í leikskólum borgarinnar. Handbókin er um starfsemi leikskóla fyrir foreldra af erlendum uppruna. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 940.000 kr.
  • Mannréttindaskrifstofa Íslands hlaut styrk til að átaksverkefnisins Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti – Fögnum fjölbreytninni! Alþjóðadagur gegn kynþáttamisrétti og Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti eru átaksverkefni sem vinna gegn kynþáttamisrétti. Verkefnið miðast að því að kynna daginn og merkingu hans fyrir almenningi og jafnframt að vekja athygli á forvarnastarfi gegn kynþáttafordómum á Íslandi. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 280.000 kr.
  • Stígamót hlutu styrk til verkefnis um gerð handbókar fyrir erlendar konur í ofbeldissamböndum. Markmið verkefnisins er að þróa og vinna upplýsingaefni fyrir erlendar konur í ofbeldissamböndum. Efnið getur einnig nýst þeim aðilum sem líklegt er að vegna starfa sinna hafi afskipti af þessum konum. Fjallað verður um löggjöf er varðar ofbeldi gegn konum og úrræði, til dæmis öruggt húsnæði og heilbrigðisþjónustu. Gerð verður grein fyrir reglum varðandi skilnað, skilyrði Útlendingastofnunar varðandi dvalarleyfi o.s.frv. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 600.000 kr.

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: