Fylgiskjöl

Ellefu hæstu styrkþegar atvinnumála kvenna 2010

Árla ehf. Árla morgunkorn og snakk – íslenskt, já takk: Vöruþróun og markaðskostnaður vegna morgunkorns 2.000.000 kr.

Viðskiptahugmyndin er að framleiða og selja íslenskt morgunkorn. Í upphafi verður framleiðslan unnin úr maís og hveiti, en hugmyndin er að þróa jafnframt svipaða vöru úr íslensku hráefni (kornmeti). Mikið er flutt inn af morgunkorni til Íslands og því er kjörið viðskiptatækifæri fólgið í því að markaðssetja íslenska vöru inn á þennan markað. Gert er ráð fyrir því að byrja með tvo til þrjá vöruflokka. Markmiðið er að eftir fimm ár verði framleiðsla og sala á alíslensku morgunkorni komin í fullan gang. Búið er að fjárfesta í vélum og tækjum og útvega húsnæði til framleiðslunnar í Borgarnesi. Stefnt er að vöruþróun sem byggist eingöngu á afurðum úr íslensku hráefni.

Kolka – kolefnisviðskipti og ráðgjöf: Markaðssetning og þróun á vörum Kolku: Launastyrkur 2.000.000 kr.

Kolka kolefnisviðskipti og ráðgjöf er fyrsta og eina fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi og byggist á fræðslu, ráðgjöf og miðlun. Fyrsta verkefni þess verður að kynna kolefnismarkað fyrir verðandi markaðsaðilum auk stjórnvalda. Því næst verður ráðgjöf veitt sem undirbúningur fyrir fyrirtæki vegna komandi skuldbindingartímabils. Þegar skuldbindingartímabilið er hafið mun miðlun með kolefnisheimildir hefjast. Starfsemi Kolku byggist á áður óþekktum markaði á Íslandi. Því mun sérfræðiþekking sem byggð hefur verið upp meðal starfsmanna fyrirtækisins nýtast við að kynna kolefnismarkað fyrir fyrirtækjum á Íslandi og veita ráðgjöf áður en viðskipti munu hefjast á Íslandi með kolefnisheimildir. Þegar virkur markaður hefur verið gangsettur á Íslandi mun Kolka einnig bjóða upp á miðlun á kolefnisheimildum.

Aðgengi ehf. Gott aðgengi – upplýsingaveita fyrir þjónustuaðila:
Þróunar- og markaðskostnaður 1.000.000 kr.

Viðskiptahugmyndin er að safna saman á einn stað upplýsingum um aðgengismál í þjónustufyrirtækjum, opinberum byggingum og við áningar- og útivistarstaði. Upplýsingarnar verða aðgengilegar á vefsíðu eftir ítarlega greiningu á staðháttum á hverjum stað. Samhliða verður gert flokkunar- og merkjakerfi með vottun sem tryggir til dæmis að hjólastólanotandi komist þar sem hjólastólamerkið er notað. Verkefnið getur gagnast öllum ferðaþjónustuaðilum, meðal annars innlendum og erlendum ferðaskrifstofum, og stoðkerfi ferðaþjónustunnar ásamt ríki og sveitarfélögum. Áskrifendur geta skráð byggingar á sínum vegum inn á vefinn að undangenginni ítarlegri greiningu á aðstæðum og aðgengismálum á þeim og vottun. Þeir greiða stofngjald fyrir úttekt og birtingu á vef, misháa fjárhæð eftir stærð fyrirtækisins/stofnunarinnar. Árgjald/áskriftargjald verður síðan greitt fyrir áframhaldandi skráningu á vefsvæðinu. Til að byrja með verður lögð áhersla á að fá fyrirtæki í ferðaþjónustu til að skrá sig á vefinn.

Alice Olivia Clarke – Tíra – ljómandi endurskinsfylgihlutir: Vöruþróun og markaðssetning 1.000.000 kr.

Hugmyndin að Tíru kviknaði þegar umsækjandi veitti því athygli hve stór hluti gangandi vegfarenda er illsjáanlegur í skammdeginu. Eftir að hafa skoðað ýmsar útgáfur af endurskinsefnum var ákveðið að vinna með marglitan endurskinsþráð sem hægt var að hekla eða prjóna úr og að flétta saman íslenska lopann og endurskinsþráð. Viðskiptaáætlun var unnin í Brautargengi í Nýsköpunarmiðstöðinni og ein tegund af endurskinsmerki/fylgihlut var þróaður sem var endurskinsblómið. Búið er að sækja um skráningu vörumerkisins Tíra og um hönnunarvernd á blóminu og eru umsóknir langt komnar hjá Einkaleyfisstofu. Í byrjun desember bauðst Tíru að taka þátt í Pop-up verslun hönnuða í húsnæði Hugmyndahúss háskólanna og í framhaldinu tók Epal blómin í umboðssölu. Fjallað hefur verið um endurskinsblómið í ýmsum fjölmiðlum og hefur varan vakið óskipta athygli. Framundan er að hamra járnið á meðan það er heitt og festa vörumerkið í sessi.

 

Berglind Sigurðardóttir – Einkaskóli í fatahönnun: Þróunar- og markaðskostnaður 1.000.000 kr.

Viðskiptahugmyndin er að setja á stofn haustið 2010 einkaskóla í fatahönnun á Íslandi en slíkur skóli er ekki til á landinu. Námið tekur tvö ár og skiptist í fjórar annir. Námskrá skólans byggist á námskrá líkra skóla erlendis. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur veitt skólanum viðurkenningu með fyrirvara um að ljúka nákvæmari námskrá, tilnefna húsnæði og kennara. Starfsgreinaráð hönnunar- og handverksgreina hefur einnig veitt skólanum viðurkenningu. Umsókn hefur verið send til Lánasjóðs íslenskra námsmanna um að veita skólanum viðurkenningu sína og þar með verði unnt að tryggja að námsmenn geti fengið lán fyrir skólagjöldum og framfærslu. Námið verður mótað með tilliti til forkrafna eða inntökuskilyrða í háskólum. Námið opnar möguleika á að byrja eigin hönnun, fá störf hjá tískufyrirtæki eða frekari námi.




Holt og heiðar – Birkisafi: Vöruþróun 1.000.000 kr.

Markmið verkefnisins er að framleiða vörur úr íslenskum birkisafa. Fyrr á öldum gaf skógurinn á Hallormsstað af sér eldivið, ber og sveppi sem nýttir voru til manneldis. Með markvissri ræktun hafa trén orðið stærri og framleiðslan fjölbreyttari en áður var, en ein er sú afurð trjáa á Íslandi sem ekki hefur verið nýtt í þágu manneldis og heilsu, þ.e. birkisafinn. Víða er aldarlöng hefð fyrir neyslu birkisafa til heilsubótar af ýmsu tagi. Birkisafinn hefur að geyma ríkulegan skammt af steinefnum, andoxunarefnum og sykrum sem hafa jákvæð og heilandi áhrif á mannslíkamann. Hann hefur heilnæma virkni og jákvæð áhrif á vökvajafnvægi líkamans og er þvaglosandi. Fyrir þá sem vilja létta sig þykir hann góður þar sem hann styður við náttúrulega úthreinsun líkamans. Þá er sagt að birkisafinn hafi yngingaráhrif, efli kynhvöt, bæli frjókornaofnæmi, lækni gigt og sé góður fyrir húð, hár og neglur. Þá vilja menn einnig trúa því að birkisafinn hægi á útbreiðslu krabbameins. Áhersla á heilsu og lýðheilsu hefur meðal annars gert það að verkum að neytendur verða sífellt meðvitaðri um uppruna og innihald þeirrar vöru sem þeir neyta og þetta tækifæri ætli Holt og Heiðar að nýta sér.

Björkin – sjálfstætt starfandi ljósmæður – Ljósmæðraþjónusta í barneignarferlinu: Markaðs- og þróunarkostnaður 1.000.000 kr.

Fyrirtækið mun halda utan um heimaþjónustu ljósmæðra í sængurlegu á landinu og útvega ljósmæður fyrir konur sem útskrifast í heimaþjónustu frá fæðingarstofnunum. Með bættu skipulagi mun fyrirtækið geta tryggt að alltaf verði tiltækar ljósmæður til að sjá um heimaþjónustu í öllum hverfum allan ársins hring. Sífellt fleiri konur útskrifast í þessa þjónustu eftir barnsfæðingu og það kallar á bætt fyrirkomulag. Einnig mun fyrirtækið bjóða upp á samfellda þjónustu ljósmóður á meðgöngu, í fæðingu og í sængurlegu með áherslu á heimafæðingar en markmið fyrirtækisins er að fjölga þeim. Með því má draga úr kostnaði fyrir heilbrigðiskerfið um leið og stutt er við eðlilegt ferli fæðinga og dregið úr líkum á óþarfa inngripum og stuðlað að jákvæðari upplifun kvenna af fæðingum sínum. Góð útkoma og jákvæð upplifun kvenna af fæðingu skiptir líka miklu máli og dregur úr kostnaði. Boðið verður upp á fjögur til fimm námskeið á mismunandi tímum í barneignarferlinu sem taka mið af þörfum verðandi foreldra á hverjum tímapunkti.

Katrín Birna Þráinsdóttir – BjarmaBerg – blásturshljóðfæraviðgerðir: Markaðssetning og vöruþróun 1.000.000 kr.

Hlutverk BjarmaBergs er viðgerðir á blásturshljóðfærum á landsvísu ásamt því að vera opin vinnustofa fyrir gesti sem eiga leið um og vilja kynnast sérhæfðu handverki. Takmarkaða þjónustu er að fá fyrir þessa hljóðfæraflokka á landinu og þar sem hljóðfæri eru verðmæt er þessi þjónusta nauðsynleg til að lengja líftíma þeirra. Undanfarin fjögur ár hefur umsækjandi sinnt tréblásturshljóðfæraviðgerðum með vinnu og bætti við málmblásturshljóðfæra-viðgerðum um áramótin 2009/2010. Með opinni vinnustofu þar sem gestir geta komið inn og kynnst starfsemi BjarmaBergs sér umsækjandi möguleika á persónulegri þjónustu ásamt því að stuðla að aukinni breidd afþreyingarmöguleika sem styðja við ferðaþjónustu sem er ört vaxandi atvinnugrein á svæðinu.

Laura Valentino – Knús design – Fatnaður fyrir tangódansara:
Markaðskostnaður, vöruþróun og hönnun 1.090.000 kr.

Viðskiptahugmyndin snýst um að hanna og framleiða umhverfisvænan og þægilegan fatnað fyrir tangódansara sem framleiddur verður á Íslandi. Fatnaðurinn verður úr efnum sem eru umhverfisvæn og mun hluti af ágóðanum renna til tangófélaga sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Um íslenska hönnun og framleiðslu er að ræða en um þessar mundir eru tækifæri til framleiðslu og útflutnings mikil. Lögð er áhersla á að vinna með íslenskum hönnuðum og framleiðslufyrirtækjum. Markaðssetning og sala mun fara fram í gegnum Netið en sýnishorn af vörunni verða til sýnis á tangóhátíðum víða um heim.

Ragnheiður Davíðsdóttir – Tjónavarnir: Þróun og markaðssetning
1.000.000 kr.

Viðskiptahugmyndin snýst um að stofna alhliða fyrirtæki sem sinnir fræðslu í forvörnum og öryggismálum. Nafn fyrirtækisins verður „Tjónavarnir“. Verksvið þess og hlutverk verður eftirfarandi: Forvarnafundir um umferðaröryggismál fyrir efstu bekki grunnskóla, námskeið og ráðgjöf í bruna-, vatns- og þjófavörnum á heimilum og sala forvarnabúnaðar á sviði brunavarna, vatnstjónavarna og innbrotavarna. Mikill skortur er á aðilum sem taka að sér ráðgjöf varðandi varnir gegn brunatjónum, vatnstjónum og innbrotum á heimili. Þá er skortur á sérhæfðum aðilum sem kenna notkun brunavarnatækja, svo sem brunaslangna, eldvarnarteppa, slökkvitækja o.þ.l. Hugmyndin er að kynna þessa þjónustu í grunnskólum, leikskólum, foreldrafélögum og jafnvel fyrir fleiri aðilum. Einnig verður boðið upp á fræðslu um almennar tjónavarnir, þ.e. bruna-, vatns- og innbrotavarnir, auk almennrar fræðslu um slysavarnir.

Stáss design – Stáss skartgripalína – til útflutnings: Markaðssetning erlendis 1.000.000 kr.

Sótt er um styrk til að markaðssetja og kynna skartgripalínu Stáss á Norðurlöndunum. Starfsemi Stáss hófst með hönnun og framleiðslu á jólaskrauti úr plexígleri árið 2008 og hefur þróast meðal annars út í hönnun skartgripa. Árið 2008 komu á markaðinn fyrstu vörur úr skartgripalínu Stáss, þ.e. hálsmen og eyrnalokkar. Hönnun skartgripanna tekur mið af útsaumshefð Íslendinga, en gæðir hana nýju lífi með því að notast við ný efni og framleiðslutækni. Vörunni hefur verið vel tekið af neytendum og fyrirtækið fengið jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum. Efnið fæst í óteljandi litum og útgáfum sem gerir úrvinnslumöguleika nær óteljandi og auk þess er efnið tiltölulega ódýrt. Skurðtæknin sem er notuð er geislaskurður og er hægt að gera flókin munstur með hágæða frágangi á skömmum tíma. Um mjög arðbæra vöru er að ræða þar sem framleiðslukostnaður er lágur. Lágt gengi íslensku krónunnar undanfarið hefur gert það að verkum að samkeppnishæfni íslenskra hönnuða og annarra framleiðsluaðila á erlendri grund hefur aukist. Í ljósi þessa er hugmyndin að kanna markaðsetningu og sölu vörunnar erlendis.

 

 


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: