Reglugerð nr. 432/1987 um starfsheiti og starfsréttindi matvælafræðinga með áorðnum breytingum samkvæmt reglugerðum nr. 163/1988, 10/1989 og 418/1989
Rétt til þess að kalla sig matvælafræðing og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn, er hefur fengið til þess leyfi heilbrigðismálaráðherra.
[Starfsleyfi skv. 1. gr. skal veita þeim sem lokið hafa B.S. prófi í matvælafræðum frá Háskóla Íslands. Ráðherra getur að fenginni umsögn landlæknis, matvæla- og næringa fræðingafélags Íslands og þeirrar deildar Háskóla Íslands, þar sem matvælafræði er kennd, veitt þeim starfsleyfi, ótakmarkað eða tímabundi, sem lokið hafa sambærilegu háskólaprófi erlendis. Í þeim tilvikum skal umsækjandi sanna þekkingu sína í íslenskri matvælalöggjöf og geta mælt og ritað á íslenskt mál, sé um erlenda ríkisborgara að ræða.]1)
1) Rg 163/1988, 1.gr
Matvælafræðingur skal starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um matvæli og aðrar neysluvörur. Starfssvið matvælafræðinga er á heilbrigðisstofnunum, kennslustofnunum heilbrigðisstétta og matvælastofnunum. Matvælafræðingar starfa á eigin ábyrgð.
Óheimilt er að ráða sem matvælafræðinga aðra en þá, sem hafa starfsleyfi samkvæmt reglugerð þessari.
Matvælafræðingi er skylt að gæta þagmælsku um atriði, sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst þótt hann láti af störfum. Sömu reglur gilda um starfsfólk það sem matvælafræðingar kunna að hafa í starfi.
Matvælafræðingi ber að þekkja skyldur sínar, viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjungar, er varða starfið.
Um matvælafræðinga gilda að öðru leyti reglur læknalaga nr. 80/1969, svo sem um viðurlög við brotum í starfi, sviptingu starfsleyfis og endurveitingu starfsleyfis.
Ráðherra getur í auglýsingu sett nánari ákvæði um framkvæmd þessarar reglugerðar.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, öðlast þegar gildi.
[…]1)
[Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. er ráðherra heimilt til 31. desember 1990, að veita starfsleyfi þeim einstaklingum, sem gegndu störfum matvælafræðinga við gildistöku reglugerðar nr. 423/1987 og höfðu gert það í a.m.k. þrjú ár. Leita skal umsagnar sömu aðila og um getur í 1.gr. Slíku starfsleyfi fylgir ekki réttur til að kallast matvælafræðingur]2)
1) Rg 10/1989, 1.gr
2) Rg 418/1989, 1.gr
1. september 1987.
Guðmundur Bjarnason.
Ingimar Sigurðsson
