Öldrunarstofnanir

Öldrunarstofnanir

Í lögum nr. 125/1999 um málefni aldraðra eru stofnanir fyrir aldraða skilgreindar, aðstöðu lýst og grein gerð fyrir þjónustunni sem þar skal veitt. Annars vegar er um að ræða dvalarrými, þ.e. dvalarheimili, sambýli og íbúðir, sérhannað fyrir þarfir aldraðra sem ekki eru færir um að annast heimilishald þrátt fyrir heimaþjónustu. Hins vegar er um að ræða hjúkrunarrými, þ.e. hjúkrunarheimili eða hjúkrunarrými á öldrunarstofnunum fyrir aldraða einstaklinga sem eru of lasburða til að dveljast á dvalarheimilum, sambýlum eða í sérhönnuðum íbúðum.

Í reglugerð um mat á heilsufari og aðbúnaði íbúa í hjúkrunarrýmum er kveðið á um að heilsufar og aðbúnaður einstaklinga í hjúkrunarrýmum skuli metið árlega og að matið skuli byggt á RAI mælingum. Velferðarráðherra skipar RAI-matsnefnd sem skal hafa umsjón með RAI-mati og notkun þess á hjúkrunarrýmum.

Hjúkrunarrými

Í lögum um aldraða kemur einnig fram að engan megi vista til langdvalar á stofnun fyrir aldraða nema að undangengnu mati á vistunarþörf. Velferðarráðherra skipar þriggja manna nefndir um vistunarmat vegna hjúkrunarrýma og skulu nefndirnar „skipaðar lækni með sérmenntun á sviði öldrunar- eða heimilislækninga, hjúkrunarfræðingi með þekkingu á öldrunarþjónustu og félagsráðgjafa með þekkingu á félagslegri þjónustu við aldraða sem tilnefndur er af velferðarráðherra. Skipa skal þrjá varamenn sem uppfylla sömu menntunarskilyrði og aðalmenn“. Allar upplýsingar um vistunarmat vegna hjúkrunarrýma eru á heimasíðu landlæknisembættisins sem hefur yfirumsjón með framkvæmd matsins.

Dvalarrými

Dvalarrými eru á hefðbundnum dvalarheimilum, sambýlum eða í íbúðum í húsnæði sem er sérhannað fyrir þarfir aldraðra sem ekki eru færir um að annast heimilishald þrátt fyrir heimaþjónustu. Skilgreint er í lögum um málefni aldraðra og reglugerð um stofnanaþjónustu aldraðra hvaða þjónusta skuli vera fyrir hendi í dvalarrýmum, en þar á meðal annars að vera varsla allan sólarhringinn, öryggiskerfi í hverri íbúð og völ á fjölbreyttri þjónustu, svo sem mat, þvotti, þrifum og félags- og tómstundastarfi.

Sótt er um dvalarrými hjá félagsþjónustu í sveitarfélagi umsækjanda. Úthlutun dvalarrýmis skal veitt að undangengnu mati á þörf. Velferðarráðherra skipar matsteymi dvalarrýma í hverju heilbrigðisumdæmi, samkvæmt reglugerð um mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými sem í sitja félagsráðgjafi og hjúkrunarfræðingur. Yfirumsjón með framkvæmd dvalarrýmismats er á hendi velferðarráðuneytisins.

Í reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraða, með áorðnum breytingum, er tiltekið hvernig greiðslum dvalarkostnaðar á stofnunum fyrir aldraða skuli háttað. Í reglugerð um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum er kveðið á um upphæðir daggjalda til að mæta eðlilegum rekstrarkostnaði án viðhalds húsnæðis.


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: