Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir
Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir
Í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 er kveðið á um grunnskipulag heilbrigðisþjónustu á Íslandi og skiptingu landsins heilbrigðisumdæmi sem nánar er kveðið á um í reglugerð nr. 785/2007 um heilbrigðisumdæmi, með (1.) breytingu nr. 765/2008 og (2.) breytingu nr. 1084/2008.
Í lögum um heilbrigðisþjónustu er áhersla lögð á að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og eftirlit með henni. Einnig er lögð áhersla á að almenn heilbrigðisþjónusta sé veitt í heimabyggð og að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Þrátt fyrir skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi skulu sjúklingar „jafnan eiga rétt á að leita til þeirrar heilsugæslustöðvar eða heilbrigðisstofnunar sem þeir eiga auðveldast með að ná til hverju sinni“.
Heilbrigðisstofnanir sem veita almenna heilbrigðisþjónustu í hverju umdæmi eiga samkvæmt lögunum að hafa með sér samstarf um skipulag heilbrigðisþjónustu á viðkomandi svæði og skal í hverju heilbrigðisumdæmi starfrækt heilbrigðisstofnun eða heilbrigðisstofnanir.
Umdæmissjúkrahús skulu veita almenna sjúkrahúsþjónustu, meðal annars á göngu- og dagdeildum eftir því sem við á. Í tengslum við þau skulu vera hjúkrunarrými og fæðingarhjálp að uppfylltum faglegum kröfum og önnur heilbrigðisþjónusta sem sjúkrahúsinu er falið að veita eða samið hefur verið um. Á heilbrigðisstofnunum sem veita bæði almenna sjúkrahúsþjónustu og heilsugæsluþjónustu skal starfsemi samtvinnuð og starfsmenn ráðnir til að sinna báðum þáttum eftir því sem við á.
Sérhæfð heilbrigðisþjónusta er veitt á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, sérhæfðum heilbrigðisstofnunum og öðrum heilbrigðisstofnunum.
Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús og Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og sérhæft sjúkrahús.
- Sjúkrahús
- Heilbrigðisstofnanir
- Útgefið efni um sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir
- Lög og reglugerðir
- Erindisbréf forstöðumanna
- Fjöldi rúma á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum (upplýsingar frá 2007 og 2005)
