Kvennavísur
Kvennavísur eftir Helgu G. Kristjánsdóttur
| Niðurstaða námskeiðs* Hækk' ekki röddina og halda í sjarminn höndunum sveiflaðu réttsýn og mild. Öndunin má ekki bylgja upp barminn boðorð þau haltu og kjaftaðu að vild. |
Líðanin fyrir ræðu* Þetta er argasta kreppa og krísa krufun til mergjar af sérfræði hóp. Léttvægt það þótti að lofa og prísa lögð ert í gólfið og gerð að þér hróp |
*Höfundur: Helga Guðný Kristjánsdóttir, Borðeyri II, 430 Suðureyri
