Kærunefnd barnaverndarmála
Málskot til kærunefndar barnaverndarmála
I. Aðilar barnaverndarmáls geta skotið ákvörðunum barnaverndarnefnda, sem ekki verður skotið til dómstóla, til kærunefndar barnaverndarmála.
Helstu ákvarðanirnar eru um:
A. Nafnleynd tilkynnanda, sbr. 19. gr. laganna.
B. Úrræði án samþykkis foreldra, þ.e. ákvarðanir skv. 26. gr. laganna varðandi:
- eftirlit með heimili,
- fyrirmæli um aðbúnað og umönnun barns, svo sem um dagvistun, skólasókn, læknisþjónustu, rannsókn, meðferð eða þjálfun,
- að ekki megi fara með barn úr landi.
C. Takmarkaðan aðgang aðila að tilteknum gögnum, sbr. 45. gr. laganna.
D. Ákvörðun barnaverndarnefndar um lögmannsaðstoð, sbr. 47. gr. laganna.
E. Umgengni foreldra og annarra nákominna við barn í fóstri, sbr. 74. gr. laganna.
F. Endurskoðun fóstursamnings, sbr. 77. gr. laganna.
G. Umgengni foreldra og annarra nákominna við barn á heimili eða stofnun á vegum Barnaverndarstofu, sbr. 81. gr. laganna.
H. Framfærsluskylda foreldra meðan barn er í vistum utan heimilis, sbr. 89. gr. laganna.
II. Skjóta má tilteknum ákvörðunum Barnaverndarstofu til kærunefndar barnaverndarmála:
A. Ákvörðun Barnaverndarstofu varðandi ágreining milli barnaverndarnefnda um hvaða nefnd skuli fara með mál, sbr. 3. og 5. mgr. 15. gr. laganna.
B. Ákvarðanir Barnaverndarstofu um leyfisveitingar:
- Leyfi til að taka barn í fóstur, sbr. 66. gr. laganna.
- Leyfi til að setja á stofn og reka heimili eða stofnun samkvæmt lögunum, sbr. 2. og 4. mgr. 83. gr. laganna.
- Leyfi til að setja á stofn og reka heimili án atbeina barnaverndaryfirvalda, sbr. 2. mgr. 91. gr. laganna.
III. Ákvörðun heimilis eða stofnunar skv. 79. gr. sem skjóta má til kærunefndar barnaverndarmála.
- Barn, sem dvelst á heimili eða stofnun skv. 79. gr. laganna, eða foreldri þess, hefur rétt til að skjóta til kærunefndar barnaverndarmála ákvörðun um takmarkanir á réttindum og þvingunarráðstafanir, sbr. 82. gr. Um málskotsréttinn skal kveðið nánar á um í reglugerð.
