Réttindi sjúklinga
Reglur nr. 457/2000 um greiðslu dvalarkostnaðar vegna sjúkrahúsinnlagnar barns
Reglur nr. 457/2000
um greiðslu dvalarkostnaðar vegna sjúkrahúsinnlagnar barns
Gildissvið
Tryggingastofnun ríkisins tekur þátt í óhjákvæmilegum dvalarkostnaði annars foreldris (forráðamanns) á hóteli, gistihúsi eða í orlofsbústað / íbúð félagasamtaka vegna sjúkrahúsinnlagnar barns enda sé a.m.k. 20 km. vegalengd milli heimilis og sjúkrahúss. Ef um erfiða sjúkdómsmeðferð vegna lífshættulegs sjúkdóms er að ræða er heimilt að slík greiðsla nái til beggja foreldra (aðstandenda) barns að 18 ára aldri.
2. gr.
Skilyrði fyrir endurgreiðslu dvalarkostnaðar
Við endurgreiðslu skal framvísa kvittun fyrir dvalarkostnaði og staðfestingu frá sjúkrahúsi um sjúkrahúslegu barns. Ef um er að ræða erfiða sjúkdómsmeðferð vegna lífshættulegs sjúkdóms þar sem báðir foreldrar óska endurgreiðslu skal jafnframt framvísa læknisvottorði.
3. gr.
Fjárhæð endurgreiðslu
Tryggingastofnun greiðir 80% af dvalarkostnaði, þó aldrei meira en sem nemur 50% af daggjaldi til sjúkrahótels RKÍ. Ef um báða foreldra er að ræða greiðist hámark 75% af daggjaldi til sjúkrahótels RKÍ.
4. gr.
Fyrirvari
Ekki er heimilt að taka þátt í dvalarkostnaði foreldris (aðstandanda) og daglegum bílferðum skv. 2. mgr. 5. gr. reglna nr. 213/1999, vegna sama tímabils.
Gildistaka
Reglur þessar eru settar af tryggingaráði skv. j.-lið 1. mgr. 36. gr. laga um almannatryggingar nr. 117/1993 og staðfestast hér með að gilda frá 26. maí 2000.
26. júní 2000
