Réttur til fæðingarorlofs og fæðingarstyrks

Réttur til fæðingarorlofs og fæðingarstyrks

Almennt

Lög um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 fjalla um rétt foreldra til greiðslna í fæðingar- og foreldraorlofi.

Við fæðingu barns, ættleiðingu þess eða töku í varanlegt fóstur á hvort foreldri rétt á greiðslum í orlofi í þrjá mánuði auk þess sem þeir eiga sameiginlegan rétt til þriggja mánaða sem þeir mega skipta með sér eins og þeir kjósa. Sé um fjölburafæðingar að ræða eiga foreldrar sameiginlegan rétt til þriggja mánaða til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt. Foreldri getur ekki framselt hinu foreldrinu rétt sinn til fæðingarorlofs.

Forsjárlausir foreldar þurfa alltaf samþykki þess foreldris sem fer með forsjá barns um umgengni til þess að eiga rétt á fæðingarorlofi og greiðslum vegna þess.

Fæðingarorlofssjóður sér um greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi en sjóðurinn er í vörslu Vinnumálastofnunar. Reglurnar geta verið mismunandi eftir því hvort foreldri er á vinnumarkaði, í námi eða utan vinnumarkaðar. Séu verðandi foreldrar ósáttir við afgreiðslu sjóðsins á umsókn þeirra eða þeir telja að brotið hafi verið á rétti þeirra samkvæmt lögunum geta þeir kært ákvörðunina til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála.

Foreldrar á vinnumarkaði

Hvort foreldri á rétt á leyfi frá störfum í þrjá mánuði auk þriggja mánaða sameiginlega sem þeir mega skipta á milli sín eins og þeir kjósa. Starfsmaður þarf að tilkynna vinnuveitanda um töku fæðingarorlofs eins fljótt og kostur er og í síðasta lagi átta vikum fyrir fyrirhugaðan fæðingardag barns. Rétturinn stofnast við fæðingu barns en þó er í sumum tilvikum heimilt að hefja töku orlofs mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns. Starfsmaður á alltaf rétt á að taka fæðingarorlof í einu lagi en getur hagað því þannig að það skiptist á fleiri tímabil í samráði við vinnuveitanda.

Til þess að foreldri eigi rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði þarf foreldrið að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Til þátttöku á vinnumarkaði telst starf í þjónustu annarra í a.m.k. 25% starfshlutfalli eða í sjálfstæðum atvinnurekstri. Til þátttöku á vinnumarkaði telst einnig orlof eða leyfi, hvort sem það er launað eða ekki, sá tími sem foreldri er á atvinnuleysisbótum eða á rétt á atvinnuleysisbótum, ef foreldri er á sjúkradagpeningum eða hefði átt rétt á þeim og sá tími sem foreldri fær bætur í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa.

Eigi foreldri rétt á greiðslum í fæðingarorlofi en hafi ekki verið á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabili tekna á hann rétt á lágmarksgreiðslum.

Foreldrar skulu sækja um greiðslur í fæðingarorlofi til Fæðingarorlofssjóðs sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barnsins.

Foreldrar utan vinnumarkaðar

Foreldrar utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% vinnu eiga sjálfstæðan rétt til fæðingarstyrks í allt að þrjá mánuði hvort um sig vegna fæðingar, frumættleiðingar barns eða töku barns í varanlegt fóstur. Þessi réttur er ekki framseljanlegur. Auk þessa eiga foreldrar sameiginlegan rétt á fæðingarstyrk í þrjá mánuði til viðbótar sem þeir geta skipt með sér eins og þeir kjósa.

Til þess að eiga rétt á greiðslu fæðingarstyrks þarf foreldri að eiga lögheimili hér á landi við fæðingu, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur og hafa átt lögheimili hér á landi síðustu tólf mánuði þar á undan. Þó er heimilt að líta til búsetu í öðru EES-ríki að vissum skilyrðum uppfylltum hafi foreldri átt lögheimili hér á landi að minnsta kosti síðasta mánuðinn fyrir fæðingu barns.

Foreldri skal sækja um greiðslu fæðingarstyrks til Vinnumálastofnunar þremur vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns.

Foreldrar í fullu námi

Foreldrar í námi þurfa að hafa verið í fullu námi í að minnsta kosti sex mánuði af síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns til þess að eiga rétt á greiðslu fæðingarstyrks. Hvort foreldri á rétt til greiðslu fæðingarstyrks í þrjá mánuði auk þess sem þeir eiga rétt til þriggja mánaða sameiginlega sem þeir geta skipt með sér eins og þeir kjósa.

Foreldri í námi þarf að leggja fram staðfestingu frá skóla um að það hafi verið skráð í fullt nám og sýnt fram á viðunandi námsárangur. Foreldri skal eiga lögheimili hér á landi við fæðingu, ættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur og hafa átt lögheimili hér á landi síðustu tólf mánuði þar á undan. Þó er heimilt að veita undanþágu hafi foreldri flutt tímabundið af landi brott vegna náms enda hafi foreldri átt lögheimili hér á landi samfellt að minnsta kosti fimm ár fyrir flutning. Hafi foreldri átt lögheimili hér á landi að minnsta kosti síðasta mánuð fyrir fæðingu barns er heimilt að líta til búsetu í öðru EES-ríki að vissum skilyrðum uppfylltum.

Foreldri skal sækja um greiðslu fæðingarstyrks þremur vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns.

  • Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar á heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs

Foreldraorlof

Foreldrar eiga rétt til foreldraorlofs í 13 vikur til að annast barn sitt. Hvort foreldri um sig á sjálfstæðan rétt til foreldraorlofs og er sá réttur ekki framseljanlegur. Réttur foreldra til foreldraorlofs fellur niður þegar barn verður átta ára en hann getur orðið virkur aftur ef barn greinist með alvarlegan eða langvinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun áður en það verður 18 ára.

Foreldri á rétt til að taka foreldraorlof í einu lagi en er heimilt að haga því með öðrum hætti eftir samkomulagi við vinnuveitanda.


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica