Almennt um félagsþjónustu sveitarfélaga
Félagsþjónusta
Sveitarfélög skulu sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsþjónusta sveitarfélaga heyrir undir velferðarráðuneytið sem hefur eftirlit með því að sveitarfélögin veiti lögbundna þjónustu.
Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga skv. 1. grein laganna er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúanna og stuðla að velferð á grundvelli samhjálpar. Skal það meðal annars gert með því að bæta lífskjör þeirra sem standa höllum fæti, tryggja uppeldisskilyrði barna, veita aðstoð til þess að fólk geti búið sem lengst á eigin heimili, stundað atvinnu og lifað sem eðlilegustu lífi. Einnig skal gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir félagsleg vandamál. Við framkvæmd félagsþjónustunnar skal einstaklingurinn hvattur til að bera ábyrgð á sjálfum sér og öðrum, sjálfsákvörðunarréttur hans virtur og hann styrktur til sjálfshjálpar.
Sveitarstjórn ber að kjósa félagsmálaráð eða félagsmálanefnd sem fer með stjórn og framkvæmd félagsþjónustu í viðkomandi sveitarfélagi. Sveitarstjórn er heimilt er að fela stofnun að sjá um framkvæmd félagsþjónustunnar. Með félagsþjónustu sveitarfélaga er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf við einstaklinga og fjölskyldur þar sem sérstök áhersla er lögð á málefni barna, ungmenna, fatlaðra og aldraðra. Þjónusta í heimahúsum og nærumhverfi einstaklinga og fjölskyldna er lykilorð og ber sveitarfélaginu meðal annars að beita úrræðum eins og félagslegri ráðgjöf, félagslegri heimaþjónustu og stuðningi vegna húsnæðis-, vímuefna- og fjáhagsvanda, sbr. meginmarkmið laganna í 1. grein laganna. Félagsþjónustunni ber að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar. Sveitarfélaginu ber að setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar. Velferðarráðuneytið hefur gefið út leiðbeinandi reglur með fjárhagsviðmiði sem er uppfært árlega. Reglurnar eru eingöngu leiðbeinandi.
Ákvörðun félagsmálanefnda er hægt að skjóta til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, innan fjögurra vikna frá tilkynningu um ákvörðun.
Velferðarráðuneytið hefur gefið út reglur um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga í sérstökum tilvikum við erlenda ríkisborgara, utan EES, sem ekki eiga lögheimili á Íslandi. Reglurnar eru settar í samræmi við 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og festa í sessi framkvæmd sem viðhöfð hefur verið um árabil þegar fyrirsjáanlegt er að einstaklingur hefur ekki möguleika á að fara úr landi eða framfleyta sér hér á landi án aðstoðar íslenskra stjórnvalda. Reglurnar hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.
