Almennt
Almennar upplýsingar
Hlutverk fjölskylduráðsins er m.a. eftirfarandi:
a) að veita stjórnvöldum ráðgjöf í fjölskyldumálum,
b) að annast tillögugerð um framkvæmdaáætlanir í málefnum fjölskyldunnar,
c) að eiga frumkvæði að opinberri umræðu um málefni fjölskyldunnar og veita leiðbeinandi upplýsingar til fjölskyldna um viðbrögð við nýjum og breyttum aðstæðum,
d) að hvetja til aðgerða á sviði fjölskyldumála í samfélaginu og
e) að stuðla að rannsóknum á högum og aðstæðum íslenskra fjölskyldna.
Fjölskylduráð hefur aðsetur á fjölskylduskrifstofu félagsmálaráðuneytisins, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík.
Símanúmer: 545-8100
