Beint í leiðarkerfi vefsins.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ræddi meðal annars um mikilvægi opinberrar stefnu í málefnum innflytjenda, með áherslu á samfélag þar sem allir geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna, þegar hann ávarpaði fjölmenningarráðstefnuna Brjótum múra sem haldin var á Akranesi síðastliðinn föstudag.
Lesa meira
Velferðarráðuneytið og Mannréttindaskrifstofa Íslands hafa gert með sér samning um lögfræðiráðgjöf við innflytjendur þeim að kostnaðarlausu. Mannréttindaskrifstofan annast þjónustuna og veitir velferðarráðuneytið fjórar milljónir króna til verkefnisins.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur falið flóttamannanefnd að fjalla um möguleika þess að taka á móti fólki frá Haítí á grundvelli ákvæða í lögum um útlendinga sem fjalla um fjölskyldusameiningu og heimildar til að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað Mörð Árnason formann flóttamannanefndar. Hann tekur við af Guðrúnu Ögmundsdóttur sem sagði af sér formennsku í október síðastliðnum, en varamaður hefur gegnt formennsku frá þeim tíma.
Lesa meiraÉg dáist að hugrekki ykkar og viljastyrk sagði félags- og tryggingamálaráðherra við flóttakonurnar frá Al Walleed þegar hún ávarpaði þær við mótttöku sem bæjarstjórn Akraness hélt þeim og börnum þeirra í dag.
Lesa meiraPalestínsku flóttamennirnir úr Al-Walleed flóttamannabúðunum í Írak komu til landsins í gær. Þetta eru átta konur og börn þeirra, tíu stúlkur og ellefu drengir. Þau hafa nú öll fengið nýtt heimili á Akranesi.
Lesa meiraÍslensk sendinefnd skipuð fulltrúum flóttamannanefndar og Útlendingastofnunar lagði í dag af stað til flóttamannabúðanna Al Waleed í Írak til að taka viðtöl við flóttafólk sem boðið verður hæli hér á landi nú í haust.
Lesa meira