Almennt

Almennar upplýsingar um húsnæðismál

Velferðarráðuneytið fer með framkvæmd laga og reglugerða um húsnæðismál ásamt stefnumótun.

Í lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál (nánari upplýsingar um lögin), sem tóku gildi 1. janúar 1999, er kveðið á um stjórnskipulag húsnæðismála þar sem velferðarráðherra fer með yfirstjórnina.

Samkvæmt lögunum skal Íbúðalánasjóður, sem er sjálfstæð ríkisstofnun, annast stjórn og framkvæmd húsnæðismála í umboði velferðarráðherra.

Sveitarstjórn ber ábyrgð á og hefur frumkvæði að því að leysa húsnæðisþörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Í því skyni skal sveitarstjórn fylgjast með þörf á húsnæði í sveitarfélaginu. Húsnæðisnefndir sveitarfélaga fara með stjórn og samræmingu húsnæðismála á vegum sveitarfélags.

Velferðarráðherra skipar úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála samkvæmt 41. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, og samkvæmt 65. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Nefndin sker úr ágreiningsmálum er kunna að rísa annars vegar vegna ákvarðanatöku stjórnar Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda og hins vegar vegna ákvarðanatöku félagsmálanefnda.

Velferðarráðuneytið fer með framkvæmd húsaleigulaga nr. 36/1994, laga um fjöleignarhús nr. 26/1994 og laga um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús nr. 75/2008. Ráðherra skipar kærunefnd húsamála sem leysir úr ágreiningi leigjenda og leigusala, eigenda í fjöleignarhúsi og leigjenda og leigutaka lóða undir frístundahús.

Velferðarráðuneytið fer með framkvæmd laga nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Sveitarfélög greiða húsaleigubætur og annast félagsmálanefndir að jafnaði afgreiðslu umsókna.

Sjá einnig:


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica