Fréttir

Fjölbýli

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar - 4/2/2012

Í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og velferðarráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar nú í febrúar og mars.

Lesa meira
 

Tekju- og eignamörk vegna lánveitinga til leiguíbúða 2012 - 17/1/2012

Tekju- og eignamörk vegna lánveitinga til leiguíbúða hækkuðu um 5,3% 1. janúar síðastliðinni í samræmi við vísitölu neysluverðs. Tekjumörk einstaklings eru nú 3.894.000 krónur, fyrir hvert barn sem býr á heimilinu 652.000 krónur og tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk 5.452.000 krónur. Eignamörk eru 4.203.000 krónur. Lesa meira
 

Eignamörk við útreikning húsaleigubóta 2012 - 17/1/2012

Viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta hækkaði 1. janúar um 5,3% í samræmi við breytingar á neysluverðsvísitölu og er nú 6.383.000 krónur. Lesa meira
 
Umsókn fyllt út

Tekjuskerðingarmörk vegna húsaleigubóta hækka um 12,5% - 29/12/2011

Velferðarráðherra hefur ákveðið að hækka skerðingarmörk húsaleigubóta vegna fjölskyldutekna um 12,5%, úr 2,0 milljónum króna í 2,25 milljónir króna árið 2012. Þetta er fyrsta skrefið í átt að því að jafna húsnæðisstuðning hins opinbera milli ólíkra búsetuforma. Með breytingunni fjölgar þeim sem eiga rétt á húsaleigubótum.

Lesa meira
 
Íbúðalánasjóður

Svar til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) varðandi Íbúðalánasjóð - 7/10/2011

Íbúðalánasjóður gegnir mikilvægu hlutverki á húsnæðismarkaði, hann verður áfram rekinn sem ein heild og öll starfsemin skilgreind sem þjónusta í almannaþágu. Þetta kemur fram í svari stjórnvalda við ákvörðun ESA frá 18. júlí í sumar en jafnframt að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á lögum og reglum um sjóðinn þannig að starfsemin samræmist samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

Lesa meira
 
Althingi - inngangur

Ný skýrsla um úrræði fyrir fólk í greiðsluvanda á Norðurlöndunum - 27/9/2011

Úrræði fyrir fólk í greiðsluvanda eru að mörgu leyti sambærileg á Norðurlöndunum en útfærslur á framkvæmd eru nokkuð mismunandi. Í nýrri skýrslu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra til Alþingis er gerð grein fyrir úrræðum fyrir skuldara í hverju landanna fyrir sig.

Lesa meira
 
Alþingishúsið

Íbúðalánasjóði veitt heimild til að bjóða óverðtryggð lán - 19/9/2011

Íbúðalánasjóður hefur fengið heimild til að veita óverðtryggð lán samkvæmt breytingu á lögum um húsnæðismál sem Alþingi hefur samþykkt. Íbúðalánasjóði er falið að útfæra hvernig haga skuli fjármögnun og útgáfu óverðtryggðra skuldabréfaflokka og er sú vinna hafin hjá sjóðnum.

Lesa meira
 
Íbúðalánasjóður

Íbúðalánasjóði verði heimilað að veita óverðtryggð lán - 5/9/2011

Íbúðalánasjóði verður veitt heimild til að veita óverðtryggð lán samkvæmt frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi og mælt var fyrir síðastliðið haust. Félags- og tryggingamálanefnd þingsins hefur fjallað um málið og mælir með því að sjóðnum verði veitt þessi heimild.

Lesa meira
 

Könnun á leiguíbúðum sveitarfélaga - 19/7/2011

Leiguíbúðir í eigu sveitarfélaga voru 4.656 árið 2010 og hafði þá fjölgað um 69 frá fyrra ári. Eftirspurn eftir leiguhúsnæði hefur aukist, íbúðum sem standa auðar hefur fækkað umtalsvert og æ fleiri sveitarfélög greiða nú sérstakar húsaleigubætur. Þetta er meðal niðurstaðna úr nýrri könnun Varasjóðs húsnæðismála.

Lesa meira
 

Viðbrögð við ákvörðun ESA um ríkisaðstoð við fjármálafyrirtæki - 1/7/2011

Stjórnvöld munu senda Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) skriflegt svar fyrir lok ágúst vegna ákvörðunar stofnunarinnar um að heimild sem veitt var Íbúðalánasjóði til þess að endurfjármagna skuldabréf fjármálafyrirtækja með veði í íbúðarhúsnæði hafi falið í sér ólögmæta ríkisaðstoð. Ákvörðun ESA mun ekki hafa áhrif á fjárhagslega stöðu sjóðsins. Lesa meira
 

Flýtival




Tungumál



Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica