Fréttir

Rannsóknarsetur í húsnæðismálum á Bifröst

25/8/2003

Fréttir og tilkynningar - Húsnæðismál


Rannsóknarsetur í húsnæðismálum á Bifröst

    - 25. ágúst 2003 -

    Árni Magnússon félagsmálaráðherra, Guðmundur Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs og Runólfur Ágústsson rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst undirrituðu samkomulag um stofnun Rannsóknarseturs í húsnæðismálum við Viðskiptaháskólann á Bifröst við setningu 86. starfsárs Viðskiptaháskólans á Bifröst á sunnudag.

    Gert er ráð fyrir að Rannsóknarsetur í húsnæðismálum einbeiti sér í fyrstu að hagrænum og efnahagslegum rannsóknum á sviði húsnæðismála, jafnframt því að vinna að víðtækri upplýsingaöflun á sviði húsnæðismála. Því var jafnframt undirritað samkomulag um að rannsóknarsetrið sjái um sérstaka gagnaöflun og úrvinnslu upplýsinga á sviði húsnæðismála fyrir félagsmálaráðuneyti og Íbúðalánasjóð. Félagsmálaráðherra hefur þegar tryggt 1 milljón króna til þess verkefnis.


    Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs
    og Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst undirrita samkomulagið.

    Stofnun Rannsóknarseturs í húsnæðismálum er mikilvæg því húsnæðismál hafa víðtæk áhrif á allt samfélagið, félagslega, efnahagslega og hagfræðilega. Þrátt fyrir það hafa húsnæðismál ekki verið mikið skoðuð út frá hagrænu og efnahagslegu sjónarhorni. Með stofnun Rannsóknarsetursins er bætt úr því.

    Stjórn Rannsóknarseturs í húsnæðismálum verður skipuð þremur fulltrúum tilnefndum af Íbúðalánasjóði, félagsmálaráðherra og Viðskiptaháskólanum á Bifröst.

    Við stofnun Rannsóknarseturs var sett á fót sérstök rannsóknarstaða. Gert er ráð fyrir að í rannsóknarstöðuna verði ráðinn vel menntaður hagfræðingur með haldgóða þekkingu á íslenskum fjármála- og fasteignamarkaði. Viðkomandi mun veita Rannsóknarsetri í húsnæðismálum forstöðu.

    Viðskiptaháskólinn á Bifröst mun ráða í stöðuna haustið 2003, að undangenginni almennri auglýsingu og umsögn stjórnar rannsóknarsetursins.

    Auk rannsókna, gagnaöflunar og úrvinnslu upplýsinga á sviði húsnæðismála er rannsóknarsetrinu ætlað að vera fagaðilum til ráðuneytis um húsnæðismál, einkum félagsmálaráðuneyti og Íbúðalánasjóði.

    Innifalin í starfsskyldum forstöðumanns rannsóknarseturs er kennsla við Viðskiptaháskólann á Bifröst sem svarar til 20% fullrar kennslu, enda er gert ráð fyrir að nemendur Viðskiptaháskólans muni koma að starfi Rannsóknarseturs samkvæmt ákvörðun forstöðumanns og skólayfirvalda.

    Nánari upplýsingar um stofnun Rannsóknarseturs í húsnæðismálum við Viðskiptaháskólans á Bifröst gefa Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði í síma 897 5686, netfang hallur@ils.is eða hallur.magnusson@fel.stjr.is og Runólfur Ágústsson rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst í síma 433 3000, netfang runolfur@bifrost.is.

    Fleiri myndir:

    Senda grein

    Flýtival




    Tungumál



    Útlit síðu: