Húsaleigumál

Leigusamningar. Eyðublöð. Leigutími. Forgangsréttur leigjanda

Leigusamningar

Leigusamningar um húsnæði eiga að vera skriflegir. Einnig eiga allar breytingar á leigusamningi eða viðbætur við hann, sem heimilar eru samkvæmt húsaleigulögum, að vera skriflegar og undirritaðar af aðilum samningsins. Þá getur annar hvor aðili sem þarf samkvæmt ákvæðum húsaleigulaga eða leigusamnings að fá samþykki hins krafist þess að fá það staðfest skriflega.

Íbúðalánasjóður gefur út eyðublöð fyrir leigusamninga. Annars vegar um íbúðarhúsnæði og hins vegar um atvinnuhúsnæði.

Húsaleigusamningur þarf að vera í tveimur samhljóða eintökum leigjenda og leigusala. Eigi að þinglýsa samningi þarf að auki eitt eintak á löggiltum skjalapappír.

Hafi leigusamningi verið þinglýst skal leigjandi láta aflýsa honum þegar leigutíma lýkur. Hafi hann ekki látið gera það í síðasta lagi innan viku þar frá skal honum aflýst að kröfu leigusala.

Húsaleigusamningar á íslensku

Húsaleigusamningar á ensku og pólsku

Leigutími

Húsaleigusamningar geta verið tvennskonar, tímabundnir og ótímabundnir.

Tímabundinn leigusamningur

Tímabundnum leigusamningi lýkur á umsömdum degi án sérstakrar uppsagnar eða tilkynningar af hálfu aðila.

Ótímabundinn leigusamningur

Leigusamningur telst ótímabundinn nema um annað sé ótvírætt samið. Hafi aðilar vanrækt að gera skriflegan samning þá teljast þeir hafa gert ótímabundinn leigusamning. Upphæð leigunnar ákveðst þá sú fjárhæð sem leigusali getur sýnt fram á að leigjandi hafi samþykkt.

Forgangsréttur leigjanda

Meginreglan er sú að leigjandi íbúðarhúsnæðis skal að umsömdum leigutíma loknum hafa forgangsrétt til leigu þess ef leigusali hyggst leigja húsnæðið áfram í a.m.k. eitt ár. Forgangsrétturinn nær bæði til tímabundna og ótímabundna leigusamninga. Undantekningar frá forgangsrétti leigjandi eru í 51. gr. húsaleigulaga. Leigjandi sem vill nýta sér forgangsréttinn þarf að tilkynna leigusala það skriflega og með sannanlegum hætti a.m.k. þremur mánuðum áður en leigusamningurinn rennur út við lok uppsagnarfrests eða við lok umsamins leigutíma, annars fellur forgangsrétturinn niður.


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: