Aðlögun innflytjenda

Stofnun innflytjendaráðs og nefndar um flóttafólk

Innflytjendaráð

Félagsmálaráðherra hefur skipað innflytjendaráð til fjögurra ára. Meginverkefni ráðsins er að fjalla um helstu atriði er snerta aðlögun útlendinga að íslensku samfélagi. Meðal annars skal ráðið að vera stjórnvöldum til ráðgjafar við stefnumótun í málaflokkum. Í skýrslu nefndar um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi er að finna nánari umræðu um verkefni ráðsins.

Innflytjendaráði sitja:

  • Hrannar Björn Arnarsson, tiln. af félags- og tryggingamálaráðherra, formaður, varaformaður Amal Tamimi,
  • Hildur Jónsdóttir tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, varamaður Védís Jóhanna Geirsdóttir,
  • Sveinn Magnússon, tiln. af heilbrigðismálaráðuneyti, varam. Helgi Már Arthursson,
  • Haukur Guðmundsson, tiln. af dóms- og kirkjumálaráðuneyti, varam. Rósa Dögg Flosadóttir,
  • Kristín Jónsdóttir, tiln. af menntamálaráðuneyti, varam. Guðni Olgeirsson,
  • Tatjana Latinovic, án tilnefningar, varam. Andrea Sompit Siengboom.

Nefnd um flóttafólk

Meginverkefni nefndarinnar er að leggja til tillögur til ríkisstjórnarinnar um móttöku kvótaflóttafólks og hafa umsjón með aðstoð og þjónustu við það. Nefndin skal jafnframt taka til athugunar aðstæður flóttamanna og annarra sem fengið hafa dvalarleyfi af mannúðarástæðum og vinna í nánu samráði við Útlendingastofnun. 

Í nefndinni eiga sæti:

  • Guðrún Ögmundsdóttir formaður, tiln. af félagsmálaráðherra, varaformaður Ingibjörg Broddadóttir,
  • Haukur Guðmundsson, tiln. af dóms- og kirkjumálaráðuneyti, varamaður Rósa Dögg Flosadóttir,
  • Nikulás Hannigan, tiln. af utanríkisráðuneyti, varamaður Ingibjörg Davíðsdóttir,
  • Atli Viðar Thorstensen, tiln. af Rauða krossi Íslands, varamaður Helga Halldórsdóttir.

Starfsmaður innflytjendaráðs og nefndar um flóttafólk er Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneyti.


Flýtival




Tungumál



Útlit síðu: