Erlent samstarf á sviði jafnréttismála
Norrænt samstarf
Jafnréttisráðherrar norrænu ríkjanna hafa starfað saman frá árinu 1974 um sameiginleg hagsmunamál á sínu sviði. Norrænu jafnréttisstarfi er stýrt af norrænni ráðherranefnd jafnréttismála (MR-JÄM) og embættismannanefnd um jafnréttismál (ÄK-JÄM). Samstarfið grundvallast á sérstakri samstarfsáætlun sem nær til fjögurra ára í senn. Núgildandi samkomulag gildir fyrir árin 2006–2010 og hefur tvö meginsvið í fyrirrúmi, þ.e. kynferði og völd og kynferði og æsku. Á vegum samstarfsins eru árlega haldnar ráðstefnur og unnið að rannsóknarverkefnum um málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Nánari upplýsingar um samstarfið er að finna á heimasíðunni http://www.norden.org/
Norræna kvenna- og kynjarannsóknastofnunin (http://www.nikk.no/) sem starfar á vegum norræna jafnréttissamstarfsins hefur það hlutverk að eiga frumkvæði að og hrinda í framkvæmd verkefnum sem leitast við að varpa ljósi á spurningar er varða kynjapólitík og jafnréttismál. Virk miðlun á niðurstöðum, rannsóknum og staðreyndum á öllum Norðurlöndunum er mikilvæg fyrir þróunina að jafnréttissinnaðra samfélagi.
Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við nágrannalöndin innan Evrópusambandsins, þ.e. Eistland, Lettland og Litháen, byggist á samstarfsáætlun Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna um jafnréttismál sem var samþykkt af jafnréttisráðherrum landanna árið 1998 og var tíu ára afmæli samkomulagsins fagnað á sameiginlegum ráðherrafundi ríkjanna átta í Eistlandi í maí 2008. Ákveðið var að halda samstarfinu áfram og er mansal eitt af meginþemum þess. Í febrúar 2009 samþykktu jafnréttisráðherrarnir samstarfsáætlun fyrir 2009–2010. Jafnframt var samþykkt samstarfsáætlun um aðgerðir gegn mansali undir heitinu „NB8 Memorandum of Understanding to Combat Trafficking in Human Beeings“.
Evrópusamstarf
Ísland á áheyrnarfulltrúa í ráðgjafarnefnd Evrópusambandsins. Nefndin hittist yfirleitt tvisvar á ári í Brussel. Þar er kynnt hvaða vinna er í gangi við einstakar tilskipanir, hvaða ráðstefnur eru framundan, hverjar áherslur næsta formennskulands eru o.s.frv. Nefndin gerir samþykktir og beinir þeim til framkvæmdanefndarinnar.
Ísland á einnig fulltrúa í jafnréttisnefnd EFTA sem hefur nú fengið aukin verkefni og fjallar einnig um málefni aldraðra og fatlaðra (The EFTA WG on Gender Equality, Anti-Discrimination and Family Policy). Fundir nefndarinnar eru yfirleitt haldnir í tengslum við fundi ráðgjafarnefndar Evrópusambandsins.
Ísland á sæti í jafnréttisnefnd Evrópuráðsins. Evrópuráðið stendur fyrir fjölda ráðstefna og gerir kannanir á ýmsum málum meðal aðildarríkjanna. Til að mynda hefur verið átak í gangi gegn kynbundnu ofbeldi.
Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna
Norrænu löndin beita sér innan Sameinuðu þjóðanna fyrir verkefnum á sviði jafnréttismála á vettvangi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (Commission on the Status of Women). Norðurlöndin hafa undanfarin ár haldið sameiginlegan hliðarviðburð á árlegum fundi kvennanefndarinnar sem venjulega er haldinn um mánaðamótin febrúar/mars. Undirbúningur viðburðarins hvílir jafnan á því landi sem fer með formennsku í norræna samstarfinu og skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar. Nánari upplýsingar um kvennanefndarfundinn er að finna á heimasíðunni http://www.un.org/womenwatch/
Stofnanir á vegum Sameinuðu þjóðanna sem einkum einbeita sér að jafnréttismálum eru fjórar: UNIFEM (Þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna), OSAGI (Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna á sviði jafnréttismála), DAW (Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um málefni kvenna) og INSTRAW (Alþjóðleg rannsóknar- og menntastofnun til framdráttar konum). Á nokkurra ára fresti er Ísland kallað fyrir hjá CEDAW-nefndinni til að gera grein fyrir því hvernig kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur verið fylgt eftir.
